Dagblaðið Vísir - DV - 19.06.2020, Blaðsíða 40
19. júní 2020 | 24. tbl. | 111. árg
dv.is/frettaskot askrift@dv.is 512 7000
SAND KORN
LOKI
Stemming í
sveitinni?
Íslensk hönnun: Sigurður Már · Íslensk framleiðsla
Dóra komin á hótel
Þúsundþjalasmiðurinn Dóra
Takefusa er ýmsu vön þegar
það kemur að veitingarekstri
en hún rak um árabil barinn
Joline í Danmörku, Dolly í
Hafnarstræti og Café Lyst.
Nú er Dóra mætt með alla
sína orku og sjarma á Hótel
Varmaland í Borgarfirði.
Dóra starfar þar sem aðstoð-
arhótelstjóri. Hótel Varma-
land var opnað í fyrra eftir
umfangsmikla endurbyggingu
og endurnýjun á Húsmæðra-
skólanum við Varmaland. Þar
er einnig að finna veitinga-
staðinn Calor Restaurant sem
er með dásamlegt útsýni til
allra átta yfir Borgarfjörð.
Daði Már
á Facebook
Augljóst er að stjórnmála-
flokkarnir eru farnir að huga
að næstu þingkosningum nú
þegar kjörtímabilið siglir inn
í sinn síðasta fjórðung.
Varaformannslaus Viðreisn
heldur senn sinn aðalfund.
Var sagt frá því í fréttum
að Daði Már Kristófersson,
verðandi fyrrverandi sviðs-
forseti Félagsvísindasviðs
Háskóla Íslands, hefur boðið
fram krafta sína í stöðu vara-
formanns. Daði Már byrjaði á
Facebook í vikunni, en hann
hefur ekki sést þar áður. Daði
útilokar ekki að bjóða sig
fram til Alþingis fari svo að
hann nái varaformannskjöri.
Það, auk nýtilfundins áhuga
Daða á samfélagsmiðlum,
rennur auðvitað sterkum
stoðum undir þá kenningu að
hann geri nákvæmlega það –
fari í framboð.
Líklegt þykir að forysta
flestra flokka á Alþingi í dag
gefi kost á sér til áframhald-
andi starfa og því lítil endur-
nýjun í vændum. n
Íslensk hönnun: Sigurður Már · Íslensk framleiðsla
Afmælistilboð
Fríform fagnar 20 ára
afmæli sínu í ár.
Við bjóðum viðskiptavinum
okkar 20% afslátt af
öllum innréttingum í júní.
Fríform ehf.
Askalind 3,
201 Kópavogur.
562–1500
Friform.is
Mán. – Föst . 10 –17
Laugardaga LOKAÐ
20
0
0
—
2
0
20
MYND/VILHELM