Dagblaðið Vísir - DV - 19.06.2020, Blaðsíða 12

Dagblaðið Vísir - DV - 19.06.2020, Blaðsíða 12
12 FRÉTTIR 19. JÚNÍ 2020 DV Áslaug Arna varð ung mjög ábyrg og sjálfbjarga. MYND/VALLI Óhrædd við að hrista upp í hlutunum Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir dómsmálaráðherra verður þrítug í nóvember. Þrátt fyrir ungan aldur eru afrek hennar mörg og mikil. Þorbjörg Marinósdóttir tobba@dv.is Á slaug er uppalin að mestu í Ártúnsholtinu og er dóttir Kristínar Steinarsdóttur kennara og Sigurbjörns Magnússonar hæstaréttarlögmanns. Móðir Áslaugar Örnu lést fyrir átta árum úr krabbameini og er fjölskyldan mjög samrýnd. Áslaug er miðjubarn. Bróðir hennar Magnús er fæddur 1987 og yngri systirin Nína Kristín er fædd 1993. Áslaug varð snemma mjög ábyrg og sjálfbjarga. „Ég var alin upp til að vera mjög sjálf- stæð. Systir mín þurfti mikla athygli vegna fötlunar sinnar og ég þurfti því að vera sjálf- stæðari fyrir vikið og stóð eftir sterkari. Foreldrar mín- ir pössuðu alltaf upp á mig og veittu mér athygli, en ég fékk að hafa fyrir hlutum og það er ekki neikvætt.“ Áslaug er lögfræðingur að mennt, en vann hin ýmsu störf meðfram námi. Hún fór fljótlega að starfa í kringum hesta en foreldrar Áslaugar voru mikið hestafólk og heldur hún enn mikið upp á hestamennsku og fer á bak með föður sínum þegar tæki- færi gefst. Hún starfaði sem blaðamaður á Morgunblaðinu í tvö ár með skóla og sem lög- reglumaður á Suðurlandi, sem er krefjandi starf fyrir unga manneskju, en ekkert getur sagt til um hvernig spi- last úr deginum á vakt. „Lífsreynsla mín fram að þeim tíma hjálpaði mér í starfinu, til dæmis að vera skilningsrík í erfiðum að- stæðum og geta sett mig í spor fólks. Maður þarf að leyfa sér að vera mannlegur í þessu starfi þegar það á við. Ég spurði til dæmis einu sinni hvort ég mætti knúsa börnin, ef mér fyndist það við hæfi í erfiðum heimilisaðstæðum. Svarið var já og mér sagt að treysta dómgreind minni. Lögreglumenn eru fyrst og fremst í þjónustustarfi við fólk.“ Háskólaárin nýtt í að safna reynslu „Markmiðið var ekki endi- lega að komast inn á þing svona snemma. Fyrir mér voru stjórnmál alltaf spenn- andi en ég sá frekar fyrir mér að það væri eitthvað sem ég færi í seinna á lífsleiðinni. Ég sá fyrir mér að nýta háskóla- árin til þess að fá fjölbreytta starfsreynslu,“ segir Áslaug sem gerði það svo sannarlega. Hún hefur ekki valið sér þægilega innivinnu síðustu ár og hlýtur ansi oft að hafa verið mjög andlega þreytt og jafnvel hrygg eftir erfiðan dag, þar sem tekið er á flókn- um og viðkvæmum málum, bæði sem lögreglukona og nú sem dómsmálaráðherra. „Maður lærir að takast á við tilfinningar sínar og leyfa sér að líða illa í stutta stund og halda síðan áfram.“ Vopnleysið skapar traust Sem dómsmálaráðherra er Ás- laug æðsti yfirmaður lögregl- unnar á Íslandi. Vopnaburður lögreglumanna er reglulega til umræðu, en lögreglan á Ís- landi er almennt óvopnuð að frátalinni kylfu og piparúða. „Það er hennar aðalsmerki að vera óvopnuð og leysa málin án vopnaskaks. Hluti af ástæðunni fyrir því hve mikils trausts og stuðnings lögreglan nýtur, er hversu hófstillt hún er almennt séð í aðgerðum og viðbrögðum sínum.“ Umræða um vopn sem eiga ekki að valda mannsláti (svo sem rafbyssur) hefur fengið hljómgrunn meðal lögreglu- manna, sem sumir hverjir kalla eftir millistigi milli kylfu og byssu. „Ég held að sú nálgun, að lögreglan sé án vopna, hafi skapað það mikla traust sem hún nýtur og það er ekki sjálfgefið að hún haldi því trausti. Ekki stendur til að breyta því verklagi sem nú er varðandi vopnaburð lög- reglunnar.“ Áslaug segir það alls óvíst að það myndi skapa lögreglu- mönnum meira öryggi í starfi að auka vopnaburð og bendir á að sérsveitin sé kölluð út þegar grunur leikur á um að hættustigið sé þess eðlis að nauðsynlegt geti reynst að grípa til vopna. Þegar Áslaug tók við dóms- málaráðuneytinu var mikill órói innan lögreglunnar og

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.