Dagblaðið Vísir - DV - 21.02.2020, Blaðsíða 26

Dagblaðið Vísir - DV - 21.02.2020, Blaðsíða 26
Sérblað 21. febrúar 2020KYNNINGARBLAÐ Bólstrarinn við Langholtsveg var stofnaður 1944 af Gunnari V. Kristmannssyni. Í dag er fyrirtækið rekið af syni hans, Hafsteini Gunnarssyni, og má með sanni segja að fyrirtækið sé með landsins mesta úrval af áklæðum, gluggatjöldum og veggfóðri. „Við bjóðum upp á gríðarlegt úrval af ýmiss konar gæðaefnum frá fremstu framleiðendum heims. Við erum algerlega óhrædd við að flytja inn dýrari efni því það hefur komið á daginn að fólk vill frekar fá góð efni sem endast vel, og er tilbúið til þess að borga aðeins meira til þess að upplifa alvöru gæði og góða endingu,“ segir Hafsteinn. Veglegt velúr „Stöðugt eru að koma nýjar tegundir bæði af klassískum efnum og tískuefnum og hefur velúr til dæmis verið að koma sterkt inn í innanhússhönnun í dag. Við flytjum inn ótrúlega áferðarfallegt velúrefni í hæsta gæðastaðli frá ROMO sem er textílfyrirtæki í fremstu röð með dýr og flott efni,“ bendir Hafsteinn á. Bólstrarinn býður einnig upp á fjölbreytt úrval af veggfóðri frá þekktustu merkjum í Evrópu. Og að sjálfsögðu, eins og nafnið gefur til kynna, býður Bólstrarinn upp á fyrsta flokks bólstrunarþjónustu. Gluggatjöld í öllum heimsins litum, stærðum og áferð Bólstrarinn þjónustar hvort sem er einstaklinga, arkitekta eða innanhússarkitekta við innréttingar og nýbyggingar. „Fólk er mikið til að velja gluggatjaldaefni sem hefur góða hljóðdempunareiginleika. Þetta er orðið sérstaklega mikilvægt í nýbyggingum þar sem íbúðir eru hannaðar til þess að vera opnari og rýmri, gólfteppi og annar textíll eru mikið til horfinn og harðari gólfefni eru valin í staðinn. Þetta getur valdið slæmri hljóðvist í íbúðinni og þá verður nauðsynlegt að velja hágæða gluggatjöld sem minnka bergmál,“ segir Hafsteinn. Bólstrarinn býður upp á fjölmargar prufubækur sem hægt er að fá lánaðar heim þegar velja skal rétta efnið. „Það er eiginlega nauðsynlegt að fara með efnið heim til þess að skoða það í þeirri birtu sem er í rýminu og sjá það í samhengi við það sem er þar fyrir,“ segir Hafsteinn. Bólstrarinn býður einnig upp á þá þjónustu að fá fagaðila heim til þess að taka mál, ráðleggja við val á gluggatjöldum og jafnvel hjálpa til við uppsetningu þegar þar að kemur. Nánari upplýsingar má nálgast á www.bolstrarinn.is Bólstrarinn er staðsettur að Langholtsvegi 82 Sími: 568-4545 bolstrarinn@islandia.is Opnunartími: mán–fös 09.00–18.00 BÓLSTRARINN: Hágæða gluggatjöld frá Bólstraranum
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.