Dagblaðið Vísir - DV - 21.02.2020, Blaðsíða 38
38 FÓKUS 21. febrúar 2020
Höfuðborg Bandaríkjanna,
Washington DC, heill-
ar milljarðamæringinn
einnig en hann keypti gam-
alt textílsafn í borginni árið
2016. Það kostaði hann 23
milljónir dollara, en um
sögufrægan stað er að ræða
í hverfinu Kalorama. Hverfið er vinsælt meðal ríka og
fræga fólksins en Obama-hjónin búa rétt hjá, sem og
turtildúfurnar Ivanka Trump og Jared Kushner. Hús
Jeffs telur rúma 2.500 fermetra og er stærsta heimilið
í Washington DC. Nú ku Jeff vera að endurbæta húsið
fyrir tólf milljónir dollara.
Svona eyðir ríkasti
maður heims
auðæfum sínum
n Jeff Bezos er sá ríkasti n Einn af
stærstu landeigendum Bandaríkjanna
eftir fasteignakaup síðustu ára
J
eff Bezos, framkvæmdastjóri og einn af stofnendum
Amazon, er ríkasti maður heims. Auðæfi hans eru
metin á tæplega 130 milljarða dollara en hann hefur
eytt gríðarmiklu fé í steinsteypu síðustu ár. Hann er
talinn einn af stærstu landeigendum í gjörvöllum Bandaríkj-
unum og keypti nýlega dýrasta húsið í Los Angeles.
Viðskiptamógúllinn skildi við eiginkonu sína til 24 ára,
MacKenzie Bezos, í fyrra og var því haldið fram að það væri
meðal dýrustu skilnaða sögunnar. Óljóst er hve mikið af fast-
eignabraski Jeffs skilaði sér til MacKenzie við skilnaðinn. Í
dag eru auðæfi MacKenzie metin á tæplega fjörutíu milljarða
dollara sem þýðir að hún er ein ríkasta kona heims. Kíkjum á
í hvað peningur ríkasta fólks heims hefur farið í síðustu ár og
áratugi.
Jeff hefur gengið frá stórum kaupum eftir að skiln-
aðurinn gekk í gegn. Hann keypti til að mynda þrjár
samliggjandi íbúðir á 42. stræti í New York í júní í fyrra
og greiddi fyrir þær áttatíu milljónir dollara, um tíu
milljarða króna. Um er að ræða þakíbúð á þremur
hæðum og tvær íbúðir fyrir neðan hana. Samtals er um
að ræða tólf svefnherbergi og tæplega 1.600 fermetra.
Jeff á tvö heimili í Medina í Washington. Hann greiddi
tíu milljónir dollara fyrir aðra eignina árið 1998. Sú er
rúmir 1.900 fermetrar og búin fimm svefnherbergjum
og fimm baðherbergjum. Hin eignin er smærri í snið-
um, litlir 770 fermetrar, en kostaði 53 milljónir dollara.
Medina er í grennd vvið Washington-vatnið í Seattle
og þar hafa fjölmargir stórlaxar búið sér heimili, til að
mynda Bill Gates.
Amazon-jöfurinn keypti glæsihýsi í spænskum stíl í
einu af dýrustu hverfum Los Angeles, Beverly Hills,
árið 2007. Það kostaði 24,45 milljónir dollara og er
búið sjö svefnherbergjum og sjö baðherbergjum. Við
húsið er tennisvöllur, stór sundlaug, fjórir gosbrunn-
ar og bílskúr fyrir sex bifreiðar. Tíu árum síðar keypti
Jeff minna hús við hliðina á glæsihýsinu. Það hús
keypti hann á 12,9 milljónir dollara og er það aðeins
búið fjórum svefnherbergjum.
Nýjustu kaup Jeffs áttu sér stað fyrir stuttu þegar hann
keypti Warner-óðalið sem var hannað fyrir Jack Warn-
er, fyrrverandi forstjóra Warner Bros. Studios. Jeff
keypti húsið af milljarðamæringnum David Geffen á
165 milljónir dollara. Er þetta dýrasta heimili sem hef-
ur verið selt í Los Angeles.
Mógúllinn á einnig bú-
garð um fimmtíu kíló-
metra fyrir utan bæinn
Van Horn í Texas. Þar
eru einnig höfuðstöðv-
ar geimfyrirtækis Jeffs,
Blue Origin, sem skráði
sig í sögubækurnar
árið 2015 þegar endur-
nýtanlegu eldflauginni
New Shepard var skot-
ið á loft út í geim og
henni síðan lent.
Jeff á þrjár íbúðir
í hinni sögufrægu
Century-
byggingu í New
York með út-
sýni yfir Central
Park. Íbúðirn-
ar keypti hann
á 7,65 milljónir
dollara árið 1999.
Hann keypti síð-
an fjórðu íbúð-
ina í byggingunni
á 5,3 milljónir
dollara árið 2012.
Tvær flugur
Þau dýrustu
Þakíbúð og
tvær til
Búgarðurinn
1, 2, 3, 4
Textílsafn tekið í gegn
Stórlaxablús