Dagblaðið Vísir - DV - 21.02.2020, Blaðsíða 30
Sérblað 21. febrúar 2020KYNNINGARBLAÐ
STÆRSTA VERKEFNI VILLIKATTA TIL ÞESSA:
Styrktu málstaðinn
með Gæludýr.is
Villikettir eru dýraverndunarsamtök sem stuðla að því að sporna
við fjölgun villikatta á Íslandi á
mannúðlegan hátt. Félagið er
starfrækt á sex stöðum á landinu
og fer vaxandi. Starf okkar er alfarið
unnið í sjálfboðavinnu og oft þarf
að reiða sig á aðstoð frá velviljuðum
dýravinum.
Aðstoðin hefur til dæmis verið í
formi styrkja eða gjafa, sem hægt
er að setja í körfu hjá Gæludýr.is á
Smáratorgi. Þangað má koma með
opna matarpoka sem ekki nýtast.
Einnig hefur fólk sýnt mikla velvild
þegar við sendum út neyðarkall
vegna bráðatilfella, sem skapast
t.d. þegar félagið hefur þurft að
leggja út miklar fjárhæðir fyrir
dýralæknakostnaði.
Fanga – gelda – sleppa
Meginstarf Villikatta felst í að fanga
villiketti. Allajafna er notast við
alþjóðlega aðferð sem kallast TNR
(Trap-Neuter-Return) og við kjósum
að kalla Fanga – gelda – sleppa.
Villikettir eru fangaðir í búr og fara
síðan í geldingu hjá dýralækni.
Eftir geldingu fá þeir að jafna sig
í húsnæði á okkar vegum og er
síðan skilað aftur á sitt heimasvæði.
Þar sjá sjálfboðaliðar um að fóðra
kettina. Smám saman fækkar
köttunum á svæðinu þar sem engin
fjölgun verður vegna geldinganna.
Finna kettlingum og
vergangsköttum nýtt heimili
En það eru ekki allir kettir sem eiga
von á að bjarga sér eftir geldingu
vegna ýmissa ástæðna og þá þarf
að finna þeim húsaskjól. Önnur
vaxandi starfsemi félagsins hefur
því verið að sinna vergangsköttum
og -kettlingum. Vergangskettir
eru fangaðir, þeim veitt húsaskjól
og læknishjálp ef með þarf. Ef
eigandinn finnst ekki, er þeim fundið
nýtt heimili. Kettlingar finnast því
miður oft einir síns liðs og litlir
kettlingar lifa ekki lengi bjargarlausir.
Flestum er bjargað, en sumir lifa
vosbúðina ekki af.
Stærsta verkefni sem félagið
hefur tekist á við
Félagið hefur að auki tekið þátt
í nokkrum stórum verkefnum og
aðstoðað þar sem margir kettir hafa
safnast saman. Þessi verkefni hafa
fengið vinnuheiti eins og 75 katta
húsið og 100 katta húsið. Núna er
í gangi verkefni þar sem verið er
að aðstoða við að fanga, gelda
og hjúkra hátt í 200 köttum og
kettlingum. Þetta er stærsta verkefni
sem félagið hefur tekist á við og eins
og gefur að skilja þarf húsaskjól fyrir
alla þessa ketti. Eins og staðan er
í dag eru Villikettir húsnæðislausir
og þurfa því að reiða sig á velvild
sjálfboðaliða og kisuvina með
húsaskjól. Húsnæðisþörfin er því
brýn svo félagið geti haldið starfsemi
sinni áfram.
Villikettir, Orijen og Acana
Snemma í ár hófst samstarf við
innflytjendur Orijen- og Acana-
kattafóðurs á Íslandi þar sem
Villikettir fá nú styrk út frá sölu
á fóðrinu. Orijen og Acana eru
kanadísk fóðurmerki sem hafa
unnið til fjölda verðlauna á
heimsvísu og hafa unnið með
góðgerðarsamtökum til að stuðla
að aukinni velferð gæludýra. Orijen-
og Acana-kattafóður inniheldur
hátt hlutfall af kjöti og er korn- og
hveitilaust og leitast er við að fóðra
gæludýr á sem líkastan hátt og
þau myndu nærast úti í náttúrunni.
Orijen- og Acana-kattafóður má
m.a. fá í verslunum Gæludýr.is.
Þeim sem vilja styðja við
starfsemi Villikatta bendum við
á heimasíðu félagins villikettir.is
og söfnunarkörfuna í Gæludýr.is
Smáratorgi. Með kaupum á Orijen-
og Acana-kattafóðri styður þú við
starfsemi Villikatta, en fóðrið færðu
meðal annars í verslunum Gæludýr.is.