Dagblaðið Vísir - DV - 21.02.2020, Blaðsíða 52

Dagblaðið Vísir - DV - 21.02.2020, Blaðsíða 52
52 FÓKUS 21. febrúar 2020 Einmana heimasæta vill kynnast ungum manni E f fólk er ekki svo heppið að parast til lengri eða skemmri tíma í skóla, á vinnustað eða skemmtistöðum, eða í gegnum áhugamál á borð við hestamennsku, dans eða útivist, er ekki um auðugan garð að gresja. Hér tíðkast ekki, eins og t.d. í Bandaríkjunum, að vinir og kunningjar reyni að leiða saman makalausa einstaklinga og verki þá sem eins konar hjúskaparmiðlun. Hér er líka varla hægt að tala um hverfiskrár eins og þær þekkjast víðast hvar í hinum vestræna heimi þar sem er ekkert tiltökumál fyrir fólk eitt á röltinu að líta inn og spjalla yfir glasi.“ Búturinn hér að ofan er úr grein Helgarpóstsins í september 1986 en þar kom meðal annars fram að einkamálaauglýsingum í DV hefði farið fjölgandi miss- erin þar á undan. Stefnumótasíður á netinu, samfé- lagsmiðlar og forrit á borð við Tinder hafa leitt til þess að einkamálaauglýsingar í prentmiðlum heyra nánast sögunni til. Smáauglýsingar þar sem einhleypt fólk óskar eftir maka eða skyndikynnum eiga sér þó enn lengri sögu hér á landi. Ein elsta auglýsingin sem rak á fjörur blaðamanns birtist í dagblaðinu Vísi í október árið 1933. Hér gefur á að líta annað dæmi um auglýsingu, sem birtist í Morgun- blaðinu í desember 1939. Brjef til íslenskra stúlkna! Maður á besta aldri sem hefir nokkur efni og sjálfstæðan atvinnurekstur, sem bóndi í nánd við Reykjavík, óskar eftir að kynnast ungri og góðri stúlku í þeim tilgangi að til hjúskapar kynni að draga. Stúlkan þarf að vera vel að sjer, og af góðu fólki komin. Helst úr sveit. Þær ís- lenskar konur, sem vilja svara brjefi þessu, geri svo vel og sendi nafn sitt og heimilisfang, ásamt aldri og mynd af sjer (helst brjóstmynd og almynd), í lokuðu umslagi á skrifstofu Morgunblaðsins í Reykjavík, fyrir 20. febr. Næstkomandi. Umslagið ber að merkja „Dulinn“. Full- komnum trúnaði heitið. Morgunblaðið, mars 1936. Einkamálaauglýsingar sem birtust í íslenskum prent- miðlum á stríðsárunum eru margar hverjar litaðar af áhrifum hersetu Breta og Bandaríkjamanna, líkt og þessi, sem birtist í dagblaðinu Vísi í september 1941: Þrír ungir Íslendingar í fastri stöðu óska eftir að kynnast stúlkum sem ekki eru, eða hafa verið í „ástandinu“, með hjónaband fyrir augum.  Tilboð sendist afgr. blaðsins merkt „Hringur“ Morgunblað- ið, febrúar 1942. M or gu nb la ði ð, m ar s 1 94 2. Morgunblaðið, nóvember 1943. Morgunblaðið, janúar 1940. Morgunblað- ið, nóvember 1945. Auglýsingar fimmta, sjötta og sjöunda ára- tugarins voru margar hverjar staðlaðar og stuttar. Algengt var að óskað væri eftir manni eða konu „með hjóna- band í huga.“ Þá var ekki óalgengt að konur ósk- uðu eftir ráðskonustöðu. Húsnæðiseklan var mikil í Reykjavík á eftirstríðs- árunum og um miðja síðustu öld og margar auglýsingar frá þeim tíma bera þess merki. M or gu nb la ði ð, a pr íl 19 55 . Morgunblaðið, september 1952. Morgunblaðið, nóvember 1953. Dagblaðið Vísir, október 1960. Á áttunda áratugnum, verðbólguáratugnum svokallaða, fór að færast í aukana að auglýsendur, einkum og sér í lagi konur, auglýstu sérstaklega eftir „fjárhagsaðstoð.“ Þá fór að bera meira á því að pör auglýstu eftir kynnum við einstaklinga eða önnur pör, og að menn og konur aug- lýstu eftir að komast í kynni við einstakling af sama kyni. Á árunum 1957– 1993 var spari- merkjakerfið svo- kallaða notað á Íslandi; ungmenn- um var skylt að spara hluta launa sinna og gátu síðan leyst sparnaðinn út við 25 ára aldur. Á níunda áratugnum var orðið áberandi að auglýst væri eftir maka með „spari- merkjagiftingu í huga.“ Fólk gekk þá í sýndarhjóna- band með það eitt í huga að leysa út skyldusparnaðinn. Internetið var ekki búið að festa sig í sessi hér á landi á fyrri hluta tíunda áratugarins og það var ekki fyrr en árið 2001 að fyrsta íslenska stefnumótasíðan, Einkamál.is leit, dagsins ljós. Einkamálaauglýsingar voru því áfram helsti valkosturinn fyrir þá sem voru einhleypir og höfðu takmarkaðan áhuga á að næla sér í maka á skemmtana- lífinu. Með tilkomu snjallsíma og vefmiðla hefur smáauglýs- ingum á prenti snarfækkað, og þar með einkamálaaug- lýsingum. Endrum og eins má finna auglýsingu í blöð- um í dag þar sem vongóðir einstaklingar auglýsa eftir lífsförunaut. LJÓSMYNDIR: SKJÁSKOT AF TÍMARIT.IS Auður Ösp Guðmundsdóttir audur@dv.is Mánudagsblaðið, febrúar 1974 Dagblaðið Vísir, nóvember 1978. Dagblaðið Vísir, janúar 1977. Dagblaðið Vísir, janúar 1977. Dagblaðið Vísir, september 1973. Dagblaðið Vísir, janúar 1979. Dagblaðið Vísir, nóvember 1976. Morgunblaðið, janúar 1974. Dagblaðið, nóvember 1977. Dagblaðið Vísir, september 1988. Dagblaðið Vísir, nóvember 1984. Dagblaðið Vísir, nóvember 1987 D ag bl að ið V ís ir, s ep te m - be r 1 98 6 Dagblaðið Vísir, maí 1980. Tíminn, ágúst 1991. Tíminn, október 1991. Tíminn, október 1991. Tíminn, nóvember 1991. Fréttablaðið, febrúar 2010. Fréttablaðið, október 2019. Fréttablaðið, júlí 2018.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.