Dagblaðið Vísir - DV - 21.02.2020, Blaðsíða 52
52 FÓKUS 21. febrúar 2020
Einmana heimasæta vill kynnast ungum manni
E
f fólk er ekki svo heppið að parast til lengri
eða skemmri tíma í skóla, á vinnustað eða
skemmtistöðum, eða í gegnum áhugamál á borð
við hestamennsku, dans eða útivist, er ekki um
auðugan garð að gresja. Hér tíðkast ekki, eins og t.d. í
Bandaríkjunum, að vinir og kunningjar reyni að leiða
saman makalausa einstaklinga og verki þá sem eins
konar hjúskaparmiðlun. Hér er líka varla hægt að tala
um hverfiskrár eins og þær þekkjast víðast hvar í hinum
vestræna heimi þar sem er ekkert tiltökumál fyrir fólk
eitt á röltinu að líta inn og spjalla yfir glasi.“
Búturinn hér að ofan er úr grein Helgarpóstsins
í september 1986 en þar kom meðal annars fram að
einkamálaauglýsingum í DV hefði farið fjölgandi miss-
erin þar á undan. Stefnumótasíður á netinu, samfé-
lagsmiðlar og forrit á borð við Tinder hafa leitt til þess
að einkamálaauglýsingar í prentmiðlum heyra nánast
sögunni til. Smáauglýsingar þar sem einhleypt fólk óskar
eftir maka eða skyndikynnum eiga sér þó enn lengri
sögu hér á landi. Ein elsta auglýsingin sem rak á fjörur
blaðamanns birtist í dagblaðinu Vísi í október árið 1933.
Hér gefur á að líta annað dæmi um
auglýsingu, sem birtist í Morgun-
blaðinu í desember 1939.
Brjef til íslenskra stúlkna!
Maður á besta aldri sem hefir nokkur efni og sjálfstæðan
atvinnurekstur, sem bóndi í nánd við Reykjavík, óskar
eftir að kynnast ungri og góðri stúlku í þeim tilgangi að
til hjúskapar kynni að draga. Stúlkan þarf að vera vel
að sjer, og af góðu fólki komin. Helst úr sveit. Þær ís-
lenskar konur, sem vilja svara brjefi þessu, geri svo vel
og sendi nafn sitt og heimilisfang, ásamt aldri og mynd
af sjer (helst brjóstmynd og almynd), í lokuðu umslagi
á skrifstofu Morgunblaðsins í Reykjavík, fyrir 20. febr.
Næstkomandi. Umslagið ber að merkja „Dulinn“. Full-
komnum trúnaði heitið.
Morgunblaðið,
mars 1936.
Einkamálaauglýsingar sem birtust í íslenskum prent-
miðlum á stríðsárunum eru margar hverjar litaðar af
áhrifum hersetu Breta og Bandaríkjamanna, líkt og
þessi, sem birtist í dagblaðinu Vísi í september 1941:
Þrír ungir Íslendingar í fastri stöðu óska eftir
að kynnast stúlkum sem ekki eru, eða hafa verið í
„ástandinu“, með hjónaband fyrir augum. Tilboð
sendist afgr. blaðsins merkt „Hringur“
Morgunblað-
ið, febrúar
1942.
M
or
gu
nb
la
ði
ð,
m
ar
s 1
94
2.
Morgunblaðið, nóvember 1943.
Morgunblaðið, janúar 1940.
Morgunblað-
ið, nóvember
1945.
Auglýsingar fimmta,
sjötta og sjöunda ára-
tugarins voru margar
hverjar staðlaðar og
stuttar. Algengt var að
óskað væri eftir manni
eða konu „með hjóna-
band í huga.“ Þá var ekki
óalgengt að konur ósk-
uðu eftir ráðskonustöðu.
Húsnæðiseklan var mikil
í Reykjavík á eftirstríðs-
árunum og um miðja
síðustu öld og margar
auglýsingar frá þeim
tíma bera þess merki.
M
or
gu
nb
la
ði
ð,
a
pr
íl
19
55
.
Morgunblaðið, september 1952.
Morgunblaðið, nóvember 1953.
Dagblaðið Vísir, október 1960.
Á áttunda áratugnum, verðbólguáratugnum svokallaða,
fór að færast í aukana að auglýsendur, einkum og sér í
lagi konur, auglýstu sérstaklega eftir „fjárhagsaðstoð.“ Þá
fór að bera meira á því að pör auglýstu eftir kynnum við
einstaklinga eða önnur pör, og að menn og konur aug-
lýstu eftir að komast í kynni við einstakling af sama kyni.
Á árunum 1957–
1993 var spari-
merkjakerfið svo-
kallaða notað á
Íslandi; ungmenn-
um var skylt að
spara hluta launa
sinna og gátu síðan
leyst sparnaðinn út
við 25 ára aldur. Á
níunda áratugnum
var orðið áberandi
að auglýst væri eftir
maka með „spari-
merkjagiftingu í
huga.“ Fólk gekk
þá í sýndarhjóna-
band með það eitt
í huga að leysa út
skyldusparnaðinn.
Internetið var ekki búið að festa sig í sessi hér á landi á
fyrri hluta tíunda áratugarins og það var ekki fyrr en árið
2001 að fyrsta íslenska stefnumótasíðan, Einkamál.is
leit, dagsins ljós. Einkamálaauglýsingar voru því áfram
helsti valkosturinn fyrir þá sem voru einhleypir og höfðu
takmarkaðan áhuga á að næla sér í maka á skemmtana-
lífinu.
Með tilkomu snjallsíma og vefmiðla hefur smáauglýs-
ingum á prenti snarfækkað, og þar með einkamálaaug-
lýsingum. Endrum og eins má finna auglýsingu í blöð-
um í dag þar sem vongóðir einstaklingar auglýsa eftir
lífsförunaut.
LJÓSMYNDIR: SKJÁSKOT AF TÍMARIT.IS
Auður Ösp Guðmundsdóttir
audur@dv.is
Mánudagsblaðið, febrúar 1974
Dagblaðið Vísir, nóvember 1978.
Dagblaðið Vísir, janúar 1977.
Dagblaðið Vísir, janúar 1977.
Dagblaðið Vísir, september 1973.
Dagblaðið Vísir, janúar 1979.
Dagblaðið Vísir, nóvember 1976.
Morgunblaðið, janúar 1974.
Dagblaðið, nóvember 1977.
Dagblaðið
Vísir,
september
1988.
Dagblaðið Vísir, nóvember 1984.
Dagblaðið Vísir,
nóvember 1987
D
ag
bl
að
ið
V
ís
ir,
s
ep
te
m
-
be
r 1
98
6
Dagblaðið Vísir, maí 1980.
Tíminn, ágúst 1991.
Tíminn, október 1991.
Tíminn, október 1991.
Tíminn, nóvember 1991.
Fréttablaðið, febrúar 2010.
Fréttablaðið, október 2019.
Fréttablaðið, júlí 2018.