Íþróttablaðið - 01.04.1966, Page 5
gildaskálastjóra. Það var tekið fram,
að þetta belti ætti jafnan að vera í
höndum fræknasta glímumanns Is-
lands, en eigi væri það hans eign. —
Glímudómendur voru: Eggert Laxdal,
Akureyri, Jón Jónsson, Múla, Priðrik
Kristjánsson, Akureyri, Snorri Jóns-
son, Akureyri, og séra Helgi P.
Hjálmarson, Helgastöðum, Reykja-
dal.
Þessir tóku þátt í glímunni:
Ólafur V. Davíðsson, verzlunar-
maður, Jóhannes Jósefsson, verzlun-
arstjóri, Þorsteimi Þorsteinsson, tré-
smíðanemi, Kristján Þorgilsson, tré-
smíðanemi, Þórhallur Bjarnason,
prentari, Páll Priðriksson, múrar,
Páll Skúlason, verzlunarmaður,
Jakob Kristjánsson, prentari, (þeir
áttu allir heima á Akureyri). Sigurð-
ur Sigfússon Bjarklind, deildarstj.
Húsavík, Jón Sigfússon, Halldórs-
stöðum I Reykjadal, Emil Tómasson,
Einarsstöðum Reykjadal, Jón
Björnsson, Húsavík.
Þar sem mér var mikil forvitni á
að frétta um glímubúnað manna á
fyrstu Islandsglímunni lagði ég eft-
irfarandi spurningu fyrir Ólaf:
Hvernig var glímubúnaður manna
á fyrstu Islandsglímunni ?
Svar: Buxur voru hvítar úr hálf-
strigakenndu efni .hnepptar fyrir
neðan hné, (með þremur eða fjórum
hnöppum).
Að ofan voru menn klæddir peysu
eða skyrtu. Spennt var belti um mitt-
ið úr sama efni og var í buxunum.
Skórnir voru úr mjúku leðri með
þunnum sólum, hælalausir. Sumir
voru með sauðskinskó á fótum.
Glímubelti þekktust þá ekki.
Álit Ólafs er að glímubeltin hafi
ekki bætt glímuna, heldur hið gagn-
stæða. Glíman væri þvingaðri með
belti en buxnatökum, gerði mönnum
örðugra með að hlaupa upp úr brögð-
um, en það segir Ólafur að eigi að
vera aðalvarnir glímunnar en ekki
hin svokallaða gólfvörn.
Er ég spurði Ólaf um þær reglur
sem gilt hefðu varðandi byltuákvæð-
in í glímunni þá kvað hann þau hafa
verið þannig, að bylta hafi verið tal-
in kæmi maður niður á bæði hné og
hendi eða hendur og einnig væri
komið niður fyrir ofan hné eða oln-
boga.“
Ólafur fór til Skotlands 1. janúar
1907 í atvinnuleit. Komst hann til
Aberdeen og gerðist þar verkstjóri
við fiskverkunnarstöð og var erlendis
um margra ára skeið. Hann hvarf
því af glímusviðinu áður en hann var
fullþroskaður. Hann telur að glíman
hafi oft orðið sér að liði þegar í
harðbakkann hafi slegið og færir þar
til mörg dæmi.
Er ég spyr Ólaf að því, hvað hann
segi um glímuna sem íþrótt, svarar
hann því þannig :Glíman á að vera
drengskaparíþrótt — ekki níð — það
á að glíma af lipurð og skerpu.
Standa ekki af sér brögð, en hlaupa
upp úr þeim. Rétt æfð glíma er æf-
ing fyrir allan líkamann og æfing
hugsunarinnar. Bezta bragð sitt tel-
ur Ólafur að verið hafi sniðglíma
niðri með vinstra fæti, öfug snið-
glíma.
Mig undrar snarleiki Ólafs og
fimi, því nú þegar við ræðumst við
sprettur hann upp hvað eftir annað,
fjaðurmagnuður og stæltur sem ung-
ur væri, sýnir mér þá bragð eða
vörn, sem hann var eitt sinn leik-
inn í að nota þegar hann átti við
menn eins og Jóhannes Jósefsson,
Emil Tómasson eða aðra slíka.
Ólafur er nú nær 80 ára. Hann
æfir ennþá daglega ýmsar líkams-
æfingar og leggur áherzlu á að önd-
undin þurfi að vera rétt.
Ólafur hefur alla daga rækt lík-
ama sinn og þjálfað. Hann segir, að
líkaminn sé bankabók, sem lífið gefi
út ávísanir á, og þess vegna verði að
leggja inn í bókina (þjálfa líkamann)
svo innstæða sé alltaf fyrir hendi.
■wvwww\wwwvvvvw*w\wvwvwwwwvvwwvwwv%vvwwwwv\vwv
X
1906: Ólafur V. Davíðsson. (Ekki
félagsbundinn).
1907: Jóhannes Jófesson, U.M.F.A.
1908: Jóhannes Jósefsson, U.M.P.A.
1909: Guðmundur A. Stefánsson, Á.
1910: Sigurjón Pétursson, Á.
1911: Sigurjón Pétursson, Á.
1912: Sigurjón Pétursosn, Á.
1913: Sigurjón Pétursson, Á.
1914: Ekki keppt.
1915: Ekki keppt.
1916: Ekki keppt.
1917: Ekki keppt.
1918: Ekki keppt.
1919: Tryggvi Gunnarsson, Á.
1920: Tryggvi Gunnarsson, Á.
1921: Hermann Jónasson, Á.
1922: Sigurður Greipsson, Á.
1923: Sigurður Greipsson, Á.
1924: Sigurður Greipsson, Á.
1925: Sigurður Greipsson, Á.
1926: Sigurður Greipsson, Á.
1927: Þorgeir Jónsson, l.K.
1928: Þorgeir Jónsson, l.K.
1929: Sigurður Thorarensen, Á.
1930: Sigurður Thorarensen, Á.
1931: Sigurður Thorarensen, Á.
1932: Lárus Salómonsson, Á.
1933: Lárus Salómonsson, Á.
1934: Sigurður Thorarensen, Á.
1935: Sigurður Thorarensen, Á.
1936: Sigurður Thorarensen, Á.
1937: Skúli Þorleifsson, Á.
1938: Lárus Salómonsson, Á.
1939: Ingimundur Guðmundsson, Á.
1940: Ingimundur Guðmundsson, Á.
1941: Kjartan Bergm. Guðjónss., Á.
1942: Kristmundur Sigurðsson, Á.
1943: Guðmundur Ágústsson, Á.
1944: Guðmundur Ágústsson, Á.
1945: Guðmundur Ágústsson, Á.
1946: Guðmundur Ágústsson, Á.
1947: Guðmundur Ágústsson, Á.
1948: Guðmundur Guðmundsson, Á.
1949: Guðmundur Guðmundsson, Á.
1950: Rúnar Guðmundsson. Á.
1951: Rúnar Guðmundsson, Á.
1952: Ármann J. Lárusosn, U.M.F.R.
1953: Rúnar Guðmundsson, Á.
1954: Ármann J. Lárusson, U.M.F.R.
1956: Ármann J. Lárusson, U.M.P.R.
1957: Ármann J. Lárusson, U.M.P.R.
1958: Ármann J. Lárusson, U.M.P.R.
1959: Ármann J. Lárusson, U.M.F.R.
1960: Ármann J. Lárusson, U.M.P.R.
1961: Ármann J. Lárusson, U.M.F.R.
1962: Ármann J. Lárusson, U.B.K.
1963: Ármann J. Lárusson, U.B.K.
1964: Ármann J. Lárusson, U.B.K.
1965: Ármann J. Lárusson, U.B.K.
1966:
97