Íþróttablaðið


Íþróttablaðið - 01.07.1978, Qupperneq 5

Íþróttablaðið - 01.07.1978, Qupperneq 5
I blaórinu Hestamennska Hestamennska er íþróttagrein sem nýtur vaxancii vinsælda hérlendis. Kom það glögglega fram á landsmóti hestamanna sem fram fór að Skógarhólum í Þingvallasveit fyrir skömmu. (þróttablaðið fylgdist með mótinu og er sagt frá því í máli og myndum. Ingi Björn skrifar Ingi Björn Albertsson skrifar um það sem hæst bér í íslenzku knattspyrnunni um þessar mundir. Kemur hann víða við í grein sinni. Segir m.a. álit sitt á stöð- unni í 1. deildinni og í bikarkeppninni og fjallar einnig um ásókn erlendra liða í íslenzka knattspyrnumenn og þær aðferðir sem viðhafðar eru í því sambandi. Er Ingi Björn ómyrkur í máli í grein sinni, og setur skoð- anir sínar skorinort fram. Vestmannaeyjar íþróttablaðið kynnir nú íþróttamannvirki og íþrótta- aðstöðu í Vestmannaeyjum, en þar hefur mjög myndarlega verið staðið að málum og búið að reisa eitt glæsilegasta íþróttahús á íslandi, þar sem að- staða er frammúrskarandi góð til allra inniíþróttaiðk- ana. Einnig hafa Eyjamenn gert mikið til þess að bæta aðstöðu útiíþróttamanna, en sem kunnugt er fóru íþróttamannvirki í Eyjum illa út úr gosinu, svo sem flest annað þar í bæ. íþróttafjölskyldan íþróttablaðið heimsækir nú íþróttafjölskylduna Guð- jón Jónsson, Sigríði Sigurðardóttur og Guðríði Guð- jónsdóttur, en þau Guðjón og Sigríður voru á sínum tíma framúrskarandi handknattleiksfólk og nú hefur dóttirin fetað í fótspor þeirra. Lára og Sigrún Varla hefur verið haldið frjálsíþróttamót hérlendis undanfarin ár án þess að nöfn systranna Láru og Sigrúnar, Sveinsdætra kæmu þar við sögu. íþrótta- blaðið heimsótti systurnar og ræddi við þær um keppnisferil þeirra, aðstöðu frjálsíþróttafólks og fl. Landsmót UMFÍ Það er allra manna mál að landsmót UMFI sem haldið var fyrir skömmu á Selfossi hafi verið ein glæsilegasta íþróttahátíð sem haldin hefur verið hérlendis. Þátt- takendafjöldi í mótinu var með ólíkindum og segja má að í hverri einustu keppnisgrein væri um hörkubar- áttu að ræða. íþróttablaðið fór í heimsókn á Selfoss og segir frá því er fyrir augu og eyru bar, og ræðir við nokkra keppendur og starfsmenn á mótinu. George Best Einhver mesti furðufugl knattspyrnuíþróttarinnar er tvímælalaust Norður-írinn George Best. Hæfni hans var framúrskarandi og honum stóðu alla dyr opnar. En það þarf sterk bein til þess að þola góða daga, og Best hætti til þess að misstíga sig þegar út fyrir knattspyrnuvöllinn var komið. Ragnar skrifar um golf Hinn góðkunni golfmaður Ragnar Ólafsson skrifar nú öðru sinni golfþátt fyrir íþróttablaðið og fjallar þar um það helzta sem skeð hefur ígolfíþróttinni hérlendis að undanförnu, auk þess sem hann tekur fyrir ýmislegt skemmtilegt sem skeður á golfvöllunum og segir m.a. frá baráttu manna við að slá holu í höggi. Annað I útilífsþætti (þróttablaðsins er að þessu sinni fjallað um laxveiðar og sagt frá er íþróttablaðsmenn skruppu íveiðiferð í Sogið fyrir skömmu, þá var blaðið viðstatt æfingu hjá 5. flokki Vals, fréttir eru frá starfi ÍSÍ og fjallað er um sundgarpinn Mark Spitz, er varð heimsfrægur á Olympíuleikunum í Munchen 1972, en er nú flestum gleymdur.

x

Íþróttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Íþróttablaðið
https://timarit.is/publication/1455

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.