Íþróttablaðið


Íþróttablaðið - 01.07.1978, Page 7

Íþróttablaðið - 01.07.1978, Page 7
r ÍÞRÓTTABLA ÐIÐi íþróttir og útilíf Málgagn [þróttasambands fslands Ritstjórar: Sigurður Magnússon og Steinar J. Lúðvíksson Skrifstofa ritstjórnar: [þróttamiðstöðinni Laugardal Ritstjjórnarspjall Útgefandi: Frjálst framtak hf. Framkvæmdastjóri: Jóhann Briem Aðstoðarframkvæmdastjóri: Pétur J. Eiríksson Auglýsingastjóri: Sigriður Einarsdóttir Skrifstofa og afgreiðsla: Ármúla 18 Símar 82300, 82302 Áskriftargjald kr. 665 á mánuði, innheimt tvisar á ári kr. 3.990 Setning, umbrot, filmuvinna og prentun: Prentstofa G. Benediktssonar Prentun á kápu: Prenttækni hf. Bókband: Félagsbókbandið hf. Litgreining kápu: Korpus hf. Héraðssambönd innan (Sf: Héraðssamband Snáefellsness- og Hnappadalssýslu Héraðssamband Strandamanna Héraðssamband Suður-Þingeyinga Héraðssamband Vestur-lsfirðinga Héraðssambandið Skarphéðinn (þróttabandalag Akraness [þróttabandalag Akureyrar [þróttabandalag Hafnarfjarðar [þróttabandalag fsafjarðar (þróttabandalag Keflavíkur [þróttabandalag Ólafsfjarðar [þróttabandalag Reykjavíkur [þróttabandalag Siglufjarðar íþróttabandalag Suðurnesja íþróttabandalag Vestmannaeyja Ungmenna- og íþróttasamband Austurlands Ungmennasamband A.-Húnvetninga Ungmennasamband Borgarfjarðar Ungmennasamband Dalamanna Ungmennasamband Eyjafjarðar Ungmennasamband Kjalarnessþings Ungmennasamband N.-Þingeyinga Ungmennasamband Skagafjarðar Ungmennasamband V.-Húnvetninga Ungmennasamband V.-Skaftfellinga Ungmennasambandið Úlfljótur Sérsambönd innan fSÍ: Badmintonsamband (slands Blaksamband (slands Borðtennissamband (slands Fimleikasamband (slands Frjálsíþróttasamband fslands Glímusamband (slands Golfsamband (slands Handknattleikssamband (slands Júdósamband (slands Knattspyrnusamband Islands Körfuknattleikssamband Islands Lyftingasamband fslands Siglingasamband fslands Skíðasamband Islands Sundsamband fslands Aðstöðuleysi til íþrótta- menntunar. Það kemur sífellt betur í Ijós, að mikil vöntun er á vel menntuðum íþrótta- kennurum til starfa víðsvegar um landið. Megin ástæðan fyrir þessu er sú staðreynd, að íþróttakennaraskóli íslands starfar við alltof þröng skilyrði og er nánast í fjárhagslegu svelti. Slík þróun kann ekki góðri lukku að stýra á sama tíma og það er viðurkennt, að aldrei höfum við þurft að leggja jafn mikla áherzlu á hverskonar líkamsrækt og einmitt nú og í framtíðinni, eftir því sem þeim fjölgar er vinna áreynslulítil störf og velmegun eykst meðal almennings. í ítarlegri ræðu, sem forseti Í.S.Í. flutti um þessi mál fyrir nokkru síðan, tók hann það sterkt til orða, að neyðarástand ríkti og hefði ríkt í þessum málum undanfarin ár. Þetta lýsti sér m.a. í því, að íþróttafélögin réðu til sín rándýra erlenda þjálfara af því að aðrir væru ekki fáanlegir. íþróttakennaraskóli íslands útskrifar um 30 íþróttakennara á 2ja ára fresti eða sem svarar um 15 árlega. Það mun einsdæmi, að skóli taki ekki við nemendum á hverju ári. Þessir kennarar eiga að sinna allri íþróttakennslu í skólakerfinu, en auk þess verður að hafa hugfast, að innan vébanda I.S.Í. eru um 60 þúsund iðkendur íþrótta á öllum aldri í um.þ.þ. 20 íþróttagreinum. Og þótt megin hluti leiðbeinenda hjá íþróttahreyfingunni séu sjálfboðaliðar, verða vel menntaðir íþróttakennarar mjög víða að koma til skjalanna, ef íþróttastarfsemin á að geta vaxið og dafnað með eðlilegum hætti. Húsnæðisaðstaða íþróttakennaraskólans er í algerum ólestri. Kennslu- stofa er aðeins ein og hefur svo verið óbreytt s.l. 35—40 ár. íþróttasalur er álíka gamall og fylgir hvergi nærri þróuninni sem á sér stað og ekki tekur betra við þegar um sundlaugina er að ræða. Það gagnar því lítið að hafa áhugasaman skólastjóra og duglegt kennara- lið, ef kennslumöguleikar eru jafn ömurlegir og raun ber vitni, enda er það nú orðið svo, að kennaraskipti við skólann eru orðin óeðlilega tíð og erfitt að fá kennara til starfa. Áhugi og vilji ungs fólks til að leggja stund á íþróttanám lætur þó ekki á sér standa, því að 4—5 sinnum fleiri sækja um skólavist en hægt er að veita viðtöku. Málefni íþróttakennaraskólans verður að taka til algerrar endurskoðunar og gera verður stórt átak til að bæta aðstöðu til kennslu og hverskonar fræðslustarfsemi. Stjórnvöld, skólayfirvöld og íþróttasamtökin verða að leggjast á eitt um að bætt verði úr því ófremdarástandi sem nú ríkir. Annað sæmir ekki þjóð sem vill skiþa sér á bekk meðal menningarþjóða. 7

x

Íþróttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Íþróttablaðið
https://timarit.is/publication/1455

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.