Íþróttablaðið


Íþróttablaðið - 01.07.1978, Síða 11

Íþróttablaðið - 01.07.1978, Síða 11
hryssur í efstu sætunum. Af hryssum sex vetra og eldri varð hlutskörpust Snælda frá Árgerði, eign Magna Kjart- anssonar, Árgerði. í tveimur næstu sætum komu hryssur frá Kirkjubæ Sunna, eign Guðmundar Gíslasonar. Torfastöðum og Rakel, eign Sigurðar Haraldssonar. Af fimm vetra hryssun- um stóð efst Elding frá Höskuldsstöð- um, eign Sigurðar Snæbjörnssonar, Höskuldsstöðum. Ein hryssa keppti á mótinu til heið- ursverðlauna. Var það Fjöður frá Tungufelli, eign Esterar Guðmunds- dóttur, Laugarvatni og fékk hún heið- ursverðlaunin með þeirri umsögn að afkvæmi hennar hefðu fjölbreytta reið- hesthæfileika hvað varðar gang en fundið var að byggingu þeirra. Mjög hefur verið um það rætt meðal hestamanna allra síðustu árin að gæð- ingakeppnir væru sem óðast að fara í það horf að þar mættu aðeins til leiks með hesta, menn, sem lítið fengjust við annað en þjálfa og temja hross. Þó þessi þróun hafi nokkuð sett svip á úrslita- hópana í hvorum flokki gæðinganna, var það hins vegar ánægjuleg andstæða þessa, að í fyrsta sæti í A-flokknum, alhliða gæðinga var bóndi austan úr Hornafirði. Þeir Sigfinnur Pálsson, bóndi Stórulág og gæðingurinn hans Skúmur, sýndu það að ekki þarf at- vinnuþjálfunarmenn til að leiða hest til sigurs, þegar saman fara góður gæð- ingur og áhugi og elja eigandans. Að þessu sinni settu nýjar keppnis- greinar nokkurn svip á landsmótið en þetta voru sérstök keppni fyrir ungl- inga, töltkeppni og keppni í gæðinga- skeiði. Alls voru það 40 unglingar, sem þátt tóku í unglingakeppninni og sá fjöldi segir þó ekki alla söguna um það starf meðal unglinga, sem þessi ný- breytni hefur kallað fram, því að í allan vetur var mun stærri hóþur unglinga, sem lagði stund á æfingar fyrir mótið og var þessi 40 manna hópur valinn þar úr. Unglingakeppnin var tvískipt, 10 til 12 ára kepptu sér og þar sigraði Ester Harðardóttir, 12 ára úr Reykjavík á Blesa frá Breiðabólstað en í eldri flokknum 13 til 15 ára sigraði Þórður Þorgeirsson úr Reykjavík á Kolka frá Kolkuósi. Hér að framan var getið um sigur Hlyns frá Akureyri, sem Eyjólfur ís- ólfsson sat, í töltkeppninni. í gæðinga- skeiði sigraði Reynir Aðalsteinsson á Penna frá Skollagróf en í gæðingaskeiði er ekki einasta keppt um það hver fer vegalengdina á skemmstum tíma held- ur er einnig dæmt fyrir skeiðlag og ásetu knapa. Félag tamningamanna veitti á mót- inu tvær viðurkenningar. Var önnur fyrir bestu ásetuna og hlaut þau verð- laun Freyja Hilmarsdóttir, 19 ára úr Reykjavík, sem á mótinu sat hryssuna Rakel frá Kirkjubæ, er var þriðja í flokki hryssa 6 vetra og eldri. Þarna er á ferðinni stúlka, sem fyrst kynntist hest- um í sveit 13 ára og fékk þá hestadell- una og hefur nú síðasta árið unnið við tamningar og þjálfun hrossa í Kirkjubæ auk þess, sem hún var um tíma í Þýskalandi við sömu störf. Félag tamningamanna útnefndi einnig á þessu móti Gunnar Bjarnason, ráðu- naut sem heiðursfélaga félagsins og var honum veitt sú viðurkenning á mótinu. Eina íslandsmetið var sett í brokki Kappreiðar mótsins mótuðust nokk- uð af því hversu hlaupabrautirnar í Skógarhólum voru lélegar á köflum. Aðeins eitt nýtt íslandsmet var sett á mótinu og var það í 1500 metra brokki en þar kom Funi, Marteins Valdimars- sonar Búðardal að marki á nýju meti 3.02.5 mín. Funi átti sjálfur eldra metið 3.08.5 mín., er sett var á Faxaborg 1972. Tímar í hlaupunum urðu þó alveg sæmilegir í flestum greinum. í 250 metra skeiði sigraði Fannar Harðar G. Albertssonar, knapi Aðalsteinn Aðal- steinsson á 23,0 sek. Kóngur Jóhannes- ar Jóhannessonar, Ásum, knapi Einar Karelsson sigraði í 250 metra stökki á 18,1 sek. Fyrir mótið höfðu menn átt von á einna mest spennandi keppni í 350 metra stökki og þar var það spurningin um hver af hryssunum sem þar mættust yrði hlutskörpust. Sú varð líka raunin að þarna kom upp einvígi milli þeirra, sem þó varð ekki eins spennandi og það hefði orðið í úrslitahlaupinu hefðu fimm bestu hlaupahryssur landsins REIÐFÖT FRÁ Mikið úrval reiðfata að hæfi hvers og eins. Einnig félagsbúninga. Talið við okkur um verð og gæói. HAFNARSTR. 91-95 - AKUREYRI - SÍMI (96) 21400

x

Íþróttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Íþróttablaðið
https://timarit.is/publication/1455

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.