Íþróttablaðið - 01.07.1978, Side 14
Skagamenn fylgja Val sem skuggi og hafa sýnt góða leiki í sumar. Þarna eru tveir markakóngar Akranesliðsins, Pétur
Pétursson og Matthías Hallgrímsson farnir að fagna marki sem er í uppsigiingu.
hins vegar farinn að síga niður töfluna
og verða þeir að gæta sín að lenda ekki í
því taugastríði sem fallbaráttan er, því
slíkt aukaálag á leikmenn og þjálfara
gætu haft afdrifaríkar afleiðingar fyrir
leik liðsins. Ég vænti þess að Þróttarar
spjari sig og haldi sínu sæti í deildinni,
án nokkurra teljandi erfiðleika.
Svipað er með FH. Þeir eru ansi
neðarlega, eða í 7. sæti í deildinni og er
ég ekki frá því að það sé einmitt rétta
sætið miðað við frammistöðu liðsins í
ár. en hér gildir hið sama og með Þrótt.
Ég held, að FH haldi sæti sínu í deild-
inni, en vafalaust verður það erfitt. KA,
UBK og ÍBK eru þau lið sem nú reyna
að verjast falli. Trúlega ná UBK-menn
ekki að halda sæti sínu í deildinni, en
maður á víst aldrei að segja aldrei, og
hver veit nema Blikarnir fari að vinna
leiki á meðan KA og ÍBK tapa ef til vill
leikjum, og þar með nái UBK að forð-
ast fall. Slíkt verður þó að teljast ótrú-
legt, og þar af leiðandi held ég, að UBK
verði að leika í annarri deild næsta ár.
KA og ÍBK berjast sennilega um þann
vafasama heiður að fylgja UBK niður í
aðra deild. Mér finnst ÍBK liðið hafa
meiri fallkandidatastimpil á sér en KA.
Nú hefur verið dregið í undanúrslit
Bikarkeppni KSÍ, og drógust saman 1.
deildar liðin Þróttur — Valur og UBK
— íA. Allt virðist því benda til „súper“
úrslitaleiks milli Vals og ÍA, og yrði það
áreiðanlega leikur sem segði sex, en
hver veit — ef til vill leika Þróttur og
UBK til úrslita, því eins og oft er sagt:
Knattspyrnan er óútreiknanleg. En
meira um bikarkeppnina næst.
Nú hefur einnig nýlega verið dregið í
Evrópukeppninni og má segja að þar sé
eiginlega um að ræða málfræðilegt
dæmi um stigbreytingu þegar litið er á
mótherja íslenzku liðanna — góður,
betri, beztur. Glentoranliðið er gott,
þótt það sýndi það ekki hér á Laugar-
dalsvellinum í fyrra, en lið sem tapar
0:1 fyrir ítalska liðinu Juventus, og það
fyrir óheppni, hlýtur að vera mjög
frambærilegt. ÍBV á þrátt fyrir það að
Eyjamenn hafa átt misjafna leiki í sumar og eru nú í 4. sæti í deildinni. Mikið er
um að vera þegar þessi mynd var tekin íleik þeirra við Þrótt. Karl Sveinsson, Frið-
finnur Finnbogasón og Örn Öskarsson eiga þarna í höggi við einn ieikmanna Þrótt-
arliðsins.
14