Íþróttablaðið - 01.07.1978, Page 31
Svipmyndir frá hinu glæsilega landsmóti UMFl' á Selfossi. Á myndinni hér að ofan
sýna danskir dansarar listir sínar, stóra myndin til hliðar er úr sundkeppninni og
myndin hér að neðan er úr blakkeppni mótsins.
— Ég ætla auðvitað að reyna það, en
ég er ekki viss um að það takist.
— Hefurðu æft stíft fyrir mótið?
— Nei, ég hef í rauninni aldrei æft
mjög stíft og mér finnst í rauninni að
þessi velgengni mín í borðtennis-
keppnum hafi verið með hálfgerðum
heppnisbrag.
— Er eitthvað öðruvísi að keppa á
Landsmóti en íslandsmóti?
— Það er ekki svo mjög ósvipað í
keppninni sjálfri. Það sem mér finnst
mest frábrugðið er að fjöldinn sem
sækir Landsmót er meiri og stemningin
sem þar ríkir er skemmtilegri.
Knattspyrna
Leikur H.S.K. og U.M.S.K. stóð yfir
þegar íþróttablaðið bar að. U.M.S.K.
hafði skorað eitt mark, en H.S.K. ekk-
ert. Þeir H.S.K.-menn sem á bekknum
sátu voru heldur óhressir yfir frammi-
stöðu sinna manna og vildu litlu spá um
hverjir yrðu Landsmótsmeistarar í
knattspyrnu. Þeir sögðu aðeins: „Tím-
inn verður að skera úr um það.“ Aðrir
, sögðu þó: „Ætli það verði ekki
U.M.S.K.“
r Frjálsar íþróttir
Á grasvellinum á Selfossi var margt
um manninn og mikið um að vera. Ein
þeirra sem keppti í kringlukasti kvenna
er Þorbjörg Aðalsteinsdóttir H.S.Þ.
— Keppir þú í fleiri greinum, Þor-
björg?
— Já, ég keppi einnig í boðhlaupi.
Þetta er fimmta Landsmótið sem ég
keppi í. Mér finnst afar skemmtilegt að
keppa á Landsmóti. Þar ríkir svo ó-
hemju mikil og skemmtileg stemning.
Maður hittir svo mikið af fólki frá öll-
um landshornum og sér svo margt nýtt.
Ég á þess vegna alveg eins von á því að
verða með á fleiri Landsmótum.
Sigurvegari í 400 metra hlaupi, 1.
riðli, var Aðalsteinn Bernharðsson,
U.M.S.E. Hann hljóp á 51 sek. og er
það nýtt Landsmótsmet.
— Hefur þú æft stíft upp á síðkastið,
Aðalsteinn?
— Já, ekki er því að neita. Ég hef æft
ansi vel og á Meistaramóti íslands hljóp
ég 400 metrana á 50,1 sek. En það var
þó aðallega Landsmótið sem ég hafði í
huga þegar ég var að æfa. Landsmót,
sem slíkt, er alveg sérstök hátíð; þar
mætist fólk víðsvegar að og leiðir sam-
an hesta sína í ótrúlega mörgum grein-
um. Þar er stemningin engu lík. Ég
keppti fyrst á Landsmóti á Akranesi
1975, en þá var ég ekki byrjaður að
hlaupa. Ég keppti þar í langstökki og
þrístökki.
Við rákumst á ungan mann í í-
þróttahúsinu, sem heitir Jón Oddsson,
H.V.f. Jón sigraði í langstökkskeppn-
inni á Landsmótinu og stökk hann 6.91
metra.
Jón var vægast sagt á hraðferð og
sagði hann: „Ég þarf að ná flugvél
vestur til ísafjarðar núna klukkan 2,
(klukkan var 1.15) því ég á að keppa
j r lþ r ■fir * ■ m ■/t’v 1 Lm m jTI t i
W4..I i nr 4. ;: * 1
'Kk. TW
31