Íþróttablaðið


Íþróttablaðið - 01.07.1978, Síða 34

Íþróttablaðið - 01.07.1978, Síða 34
Húsavíkurstúlkur báru sigur úr býtum í handknattleikskeppninni, eftir mikla baráttu. Þarna er ein þeirra komin í gott skotfæri og skoraði síðan örugglega. unglingavinnuna eins mikið og við gát- um. Á öðrum stöðum í bænum hefur hvarvetna verið unnið að alls konar fegrunar- og snyrtistörfum; það hefur t.d. verið gróðursetning ýmis konar og eins hafa fánastangir verið settar upp víðs vegar um bæinn. Það sem í rauninni hefur verið til mikillar hagræðingar fyrir okkur í sambandi við undirbúningsstarfið er að undirbúningurinn . fyrir Landsmótið nýtist að miklu leyti fyrir Landbúnað- arsýninguna sem verður hér á næst- unni. Ég álít að mjög vel hafi til tekizt og er ég mjög ánægður með það hvernig mótið hefur gengið til. Það er ánægju- legt að sjá hversu dreifingin á hina ýmsu keppnisstaði, (sem þó eru stað- settir á tiltölulega þröngu svæði) er góð. Þessi góða dreifing mótsgesta hefur orðið til þess að hvergi hefur myndast mikil þröng né örtröð. Einn stærsti þátturinn í því hversu vel allt hefur gengið er hin algera samstaða 16.LANDSMÓT UMFÍ SELFOSSI 21-23. 3ÚLÍ 1978 Fimleikasýningar vöktu mikla athygli, enda margt af fremsta fimleikafólki landsins sem sýndi.Myndin hérað neðan er úr einni sýningunni og myndin að neðan t.v. er úr undankeppni í 400 metra hlaupi, en þar sem og í öðrum greinum var hart barist um öll sætin. og skilningur sveitarstjórnarmanna. Þeir hafa allir sem einn verið sammáia um að gera þetta mót sem bezt úr garði. Það má eiginlega segja að síðastiiðið ár hafi framkvæmdir við íþróttamann- virki notið algers forgangs af bæjarins hálfu. Slíkt hygg ég að sé afar fátítt í íslenzkum bæjarfélögum af þessari stærðargráðu. 34

x

Íþróttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Íþróttablaðið
https://timarit.is/publication/1455

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.