Íþróttablaðið - 01.07.1978, Side 43
Mile: Ekki nægjanlegt næði til þess að þjálfa
undirstöðuatriðin.
margar ágætar. Þó fannst honum að
strákarnir væru betri og því væri það
alveg skiljanlegt að stelpurnar fengju
aldrei að vera með þeim á æfingum.
Ragnar Helgi Róbertsson stöðvaði
næstur eitt augnablik hjá okkur. Við
spurðum hann hversu lengi hann hefði
verið Valsari.
— Ég er búinn að vera í þrjú ár í Val.
Þegar ég var 9 ára þá byrjaði ég með 5.
flokk C, en núna er ég kominn í 5. flokk
A og leik þar stöðu bakvarðar.
— Ragnar var alveg ákveðinn í því
að Valur ætti bezta 1. deildarliðið í
knattspyrnu og innan Valsliðsins sagði
hann að Albert og Ingi Björn væru
beztir. Ragnar fylgdist líka með
Heimsmeistarakeppninni í knattspyrnu
og taldi að ítalir myndu sigra, en hann
vonaði að Brasilíumenn yrðu heims-
meistarar.
Þar með var Ragnar rokinn og tekinn
til við sparkið á nýjan leik.
Þá náðum við að stöðva hraustlegan
og stæltan strák sem Antony Carl Gre-
gory heitir. Hann er búinn að vera þrjú
ár í Val og segir að meistaraflokkslið
Vals sé það albezta í 1. deild. (Sannir
Valsarar strákarnir!) Honum finnst,
eins og Edward, að stelpur geti verið
ágætar í fótbolta, en hann segir að F.H,
liðið í kvennafótboltanum sé bezta liðið
en ekki Valsliðið.
Sveinn Sveinsson er aðeins 10 ára
gamall en samt hefur hann verið í Val í
4 ár. Hann byrjaði í 6. flokk Vals þegar
hann var aðeins 6 ára og er nú kominn
upp í 5. flokk A. Ekki var Sveinn
ákveðinn í hvaða 1. deildarlið honum
þætti bezt, en niðurstaða hans í því efni
var þessi: „Ætli það sé ekki bezt að
segja Valur.“
Allir strákarnir sem einn hlógu þegar
spurningunni um það hvort þá langaði
til að verða atvinnumenn í knattspyrnu
var beint til þeirra. Svörin voru öll á
einn veg: „Auðvitað manneskja“ eða
„Hvernig spyrðu“. Auðheyrt var á þeim
að í þeirra augum eru atvinnumenn-
irnir Ásgeir Sigurvinsson og Jóhannes
Eðvaldsson miklar hetjur.
Þjálfari 5. flokks A og B, síðastliðin 4
ár Ingi Björn Albertsson sagði að áhugi
þessara ungu stráka væri slíkur að engu
líktist. Því sagði hann að nauðsynlegt
væri að félögin nýttu sér þennan mikla
áhuga á réttan hátt og byggðu æfingar
strákanna upp á skynsamlegan hátt.
Eins og Mile, sagði Ingi Björn að það
sem þjálfararnir í yngri flokkunum
þyrftu fyrst og fremst að hugsa um væri
að fá strákana til þess að hafa gaman af
því sem þeir væru að gera. Þó mættu
æfingarnar ekki vera eintómur leikur,
mátulegt álag og mátuleg alvara yrði að
fylgja svo að árangur næðist.
Við fylgdumst með 5. A og B upp í
gryfju, sem er vestan megin í Öskju-
hlíðinni. Þar lét Ingi Björn strákana
taka „létta“ þrekæfingu og var snerpan
slík, krafturinn slíkur og úthaldið slíkt
framhald á bls. 57
Sá ungi dregur ekki af sér þegar hann
spyrnir. Að neðan má svo sjá ýmis tilþrif sem
erfið æfing getur boðið upp á.
43