Íþróttablaðið - 01.07.1978, Page 49
Þroskaheftir verða líka með
Það er
víða
trimmað
Fólkið á myndunum er nokkuð við
aldur eins og sjá má, en það trimmaði
eigi að síður reglulega tvisvar í viku á
s.l. vetri og hafði bæði gagn og gaman
af.
Myndirnar eru teknar nýlega á
Hrafnistu — dvalarheimili aldraðra
sjómanna.
Það er hin kunna og duglega í-
þróttakona, Sigríður Lúthersdóttir, sem
s.l. vetur hafði umsjón með trimminu á
Hrafnistu.
fþróttablaðið kom í heimsókn til
þeirra fyrir nokkru og það leyndi sér
ekki, að gamla fólkið naut trimmsins í
Sigríður Lúthersdóttir segir gamla fóik-
inu að rétta vel úr fótunum og beygja
ristarnar upp og fram.
ríkum mæli. Enda kann Sigríður vel til
verka sem stjórnandi og ekki spillti það
heldur, að forstöðukona Hrafnistu, Jó-
hanna Sigmarsdóttir, hefur mikinn á-
huga á því að vistfólkið fái sem besta
möguleika til að hreyfa sig.
Þannig gerði gamla fólkið að gamni
sínu samhliða æfingunum og vissulega
er það höfuð tilgangurinn með trimm-
inu, að fólk öðlist ánægju og hæfilega
áreynslu í senn.
Þetta kom greinilega fram þegar við
spjölluðum við gamla fólkið, að því
fannst félagslega leiðin svo mikils virði:
Að hafa einhver skemmtilegheit að tala
um og hlakka til þeirra.
Viðfangsefnin á svona stofnunum og
heimilum, þótt góð séu, eru ekki alltof
fjölbreytt eða mikil. Þess vegna er það
kjörið viðfangsefni að trimma reglu-
lega, bæði úti og inni.
Að frumkvæði ÍSÍ og í nánu samstarfi
við Landssamtökin Þroskahjálp er nú
hafinn undirbúningur að því að koma á
fót íþróttastarfsemi fyrir þroskahefta.
Ýmiskonar undirbúningsstarf hefur
þegar átt sér stað og í röðum þroska-
heftra er mikil eftirvænting ríkjandi.
Það eru styrktarfélög, foreldrafélög og
vinafélög þroskaheftra og vangefinna
sem yfirleitt hafa frumkvæðið að fé-
lagastofnunum í þessu skyni og leggja
til stjórnendur og aðra félagslega leið-
toga. Þegar hafa verið stofnuð tvö félög
í þessu sambandi, íþróttafélagið Eik á
Akureyri og íþróttafélagið Björk í
Reykjavík. Áformuð er stofnun fleiri
félaga. Gert er ráð fyrir að þessi nýju
félög verði aðilar að íþróttasamtökun-
um.
Ámyndinni að ofan er fyrsta stjórn og
varastjórn íþróttafél. Eik á Akureyri
ásamt fulltrúa ÍSÍ.
Sitjandi: Pétur Pétursson og Aðalheiður
Pálmadóttir sem bæði eru úr röðum
þroskaheftra.
Standandi f.v. Jósteinn Helgason, Guð-
rún Bergvinsdóttir, Stefanía Guðmann,
Margrét Rögnvaldsdóttir formaður og
Sig. Magnússon skrifstofustj. ÍSÍ.
Á myndina vantar Þorgerði Fossdal.
Á myndinni að neðan er fyrsta stjórn
og varastjórn íþróttafél. Björk í
Reykjavík.
Standandi f.v.: Sólveig Guðmundsdótt-
ir, Sonja Helgason formaður, Þórhildur
Svanbergsdóttir.
Sitjandi f.v.: Ragnar Ragnarsson, Eyj-
ólfur Ástgeirsson og Halldór Ómar
Sigurðsson, en þeir skipa varastjórn og
eru úr röðum vistmanna.