Íþróttablaðið


Íþróttablaðið - 01.07.1978, Síða 50

Íþróttablaðið - 01.07.1978, Síða 50
Ragnar Ölafsson __skrifar um golf Meistaramótin buðu upp á skemmtilega keppni og góðan árangur íslenzkir golfmenn hafa haft í mörg horn að líta nú að undanförnu, enda stendur nú há-golfvertíðin yfir. Hvert mótið hefur rekið annað, og margt skemmtilegt og spennandi hefur borið við á mótum þessum. Þegar þetta er skrifað eru svo tveir stórviðburðir á golfsviðinu framundan. Annars vegar Evrópumót unglinga og hins vegar landskeppni við Luxemburgara. Mig langar til þess að fjalla nokkuð um þau golfmót sem haldin hafa verið frá því að ég skrifaði síðasta pistil í í- þróttablaðið, en flest þessara nróta hafa verið ágætlega heppnuð og boðið upp á skemmtilega keppni — á þeim hefur komið glögglega fram að golfmenn virðast í ágætri þjálfun um þessar mundir og líklegir til afreka síðar í sumar. Pierre Robert mótið var haldið 14.-18. júní s.l. í því móti sigraði ís- landsmeistarinn Björgvin Þorsteinsson frá Akureyri með glæsibrag. Hann lék 18 holurnar tvívegis á 69 höggum, eða 138 höggum alls. Þessi árangur er sá bezti sem náðst, hefur í 36 holu leik hérlendis — einstakur árangur. Annar í þessari keppni varð Óskar Sæmunds- son sem lék á 142 höggum, sem er eðli- legur árangur. Annars átti ég von á því að einhverjir myndu leika undir pari á svona sterku móti, þar sem völlurinn var ágætur. Pierre Robert mótið er flokkakeppni og var þátttakendafjöldi í því mjög mikill, eða um 200 manns og stóð mótið yfir í fjóra daga. SR-mótið. Mót þetta var haldið helgina eftir Pierre Robert mótið. Miklar breytingar höfðu orðið á vellin- um á Akranesi frá því að síðasta SR— mót var haldið þar, brautir höfðu verið lengdar og gerðar tiltölulega erfiðari en verið hafði. Ekki áttu menn von á góðu skori þegar mót þetta hófst. Veðrið var mjög leiðinlegt, sérstaklega þann dag Þörbjörn Kjærbo læturekki deigan síga og náði hann frábærum árangri erhann varð klúbbmeistari Golfklúbbs Suðurnesja. 50

x

Íþróttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Íþróttablaðið
https://timarit.is/publication/1455

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.