Íþróttablaðið - 01.07.1978, Page 52
Þrír klúbbmeistarar. Björgvin Þorsteinsson, meistari Golfklúbbs Akureyrar, Sigurður
Thorarensen, meistari Golfklúbbsins Keilis og Ragnar Ólafsson, meistari Golfklúbbs
sem meistaraflokkur tók þátt í mótinu,
6-7 vindstig og því erfitt að leika. Geir
Svansson náði beztum árangri, fór á
149 höggum. Spilaði fyrri 18 holurnar á
80 höggum og seinni 18 holurnar á 69
höggum sem er vallarmet og undra-
verður árangur þegar tekið er tillit til
þess hve veðrið var vont og völlurinn
erfiður. í öðru sæti á Akranesi varð
Sigurður Pétursson með 157 högg, sem
ég tel mjög eðlilegan árangur, þegar
aðstæðurnar eru teknar með í reikn-
inginn. Segja má, að SR-mótið hafi
verið úttekt á vellinum fyrir íslandsmót
unglinga. Þarna voru t.d. ekki leyfðar
neinar hreyfingar á boltum og jók það
vitanlega á erfiðleika keppenda.
fslandsmót unglinga. Mót þetta hófst
tveimur dögum eftir SR-keppnina og er
þetta fyrsta íslandsmót sem Golf-
klúbburinn Leynir heldur. Aðstaðan er
nú orðin betri en áður til þess að halda
stórmót á Akranesi. Kominn er nýr
skáli þar og ný áhaldageymsla. Fram-
kvæmd þessa móts var með ágætum hjá
Akurnesingum og vel tekið á móti
keppendum sem komu þangað.
Sigurvegari í mótinu varð Magnús
Birgisson sem lék á 299 höggum sem er
mjög góður árangur — langbezti ár-
angur sem náðst hefur í 72 holu leik á
Leynisvellinum. Þetta mun vera fyrsti
sigur Magnúsar í stórmóti, en óhætt er
að kalla mót þetta stórmót, þar sem svo
margir góðir golfleikarar tóku þátt í því,
bæði unglingalandsliðsmenn og A—
landsliðsmenn. í öðru sæti varð Hannes
Eyvindsson og veitti hann Magnúsi
mikla keppni undir lokin. Lék hann á
alls 302 höggum sem einnig er mjög
góður árangur og þriðji varð svo Sig-
urður Pétursson, sem verið hefur ung-
lingameistari tvö undanfarin ár, en
hann lék á 309 höggum. í drengjaflokki
sigraði Gylfi Kristinsson, ungur og
efnilegur strákur frá Keflavík, lék á 287
höggum, sem er góður árangur. Ber að
geta þess að drengirnir léku af fremri
teig.
Meistaramót klúbbanna. Næst á
dagskrá var svo meistaramót klúbb-
anna sem haldin voru á hinum ýmsu
golfvöllum á sama tíma.
Hjá Golfklúbbi Reykjavíkur hafði sú
breyting orðið á vellinum að í stað par
72 var nú par 71. Á 16. braut hafði verið
lengd holan úr par 4 í par 3, og mikið
hafði verið unnið við völlinn fyrir
meistaramótið til þess að hafa hann
sem beztan. Veðrið var mjög leiðinlegt
Reykjavíkur.
meðan á mótinu stóð, og má segja að
þar hafi fastir liðir verið eins og venju-
lega, en ég minnist þess varla að sæmi-
legt veður hafi verið þegar meistara-
mótin hafa farið fram. Setti þetta auð-
vitað sinn svip á keppnina. í meistara-
flokki var mikil barátta milli mín og
Eiríks Jónssonar, alveg fram á síðustu
holu. Vorum við jafnir eftir 72 holur og
urðum því að gera út um meistaratitil-
inn í bráðabana. Þá „gaf“ Eiríkur mér
titilinn er hann brenndi af 30 senti-
metra pútti á þriðju holu.
Hjá Leyni á Akranesi sigraði Björn
H. Björnsson á 309 höggum og er þetta
ágætur árangur hjá Birni — hefði nægt
í þriðja sæti á íslandsmóti unglinga.
Björn er ungur og efnilegur golfmaður
sem vafalaust á eftir að heyrast mikið
frá í framtíðinni. í öðru sæti varð Ómar
Ragnarsson, klúbbmeistari frá síðasta
ári, en hann lék á 315 höggum, þannig
að Björn hefur ekki fengið mikla
keppni í þessu móti.
Hjá Golfklúbbi Suðurnesja hafa
verið miklar framkvæmdir við völlinn
að undanförnu og er hann nú að koma
mikið til. Völlurinn á að verða 18 holu
völlur í framtíðinni, og hafa fram-
kvæmdir miðað að því marki. Er völl-
urinn af bakteigum orðinn mjög langur
og erfiður. Þarna sigraði Þorbjörn
Kjærbo á 312 höggum og er það stór-
góður árangur á þessum velli. íslands-
mót meistaraflokks verður haldið
þarna í sumar og tel ég að 312 högg
muni verða nálægt því sem íslands-
meistaratitillinn muni vinnast á. Hilm-
ar Björgvinsson, ungur piltur, varð í
öðru sæti á 327 höggum, sem er í sjálfu
sér góður árangur, en undirstrikar eigi
að síður að Þorbjörn Kjaræbo hefur
greinilega einokrað þetta mót — sigrar
með 15 högga mun. Sýnir þetta að
Þorbjörn er greinilega ekki dauður úr
öllum æðum og líklegur til þess að láta
að sér kveða á íslandsmótinu.
Hjá Golfklúbbnum Keili var hörð
barátta um fyrsta sætið milli Sigurðar
Thorarensen og Magnúsar Birgissonar
og varð ekki á milli séð fyrr en á síðustu
holu. Stóð Sigurður uppi sem sigurveg-
52