Íþróttablaðið - 01.07.1978, Síða 56
sigurvegarann. Mark Spitz var orðinn
langbeztur. Samt sem áður fékk hann
fremur skömm í hattinn hjá föður sín-
um, en hitt:
— Strákur, sagði pabbinn, — þetta
hefur ekkert að segja. Ef þú vilt geðjast
mér svo um munar, þá áttu að setja
heimsmet þegar þú ert orðinn stór.
Ekkert annað segir sögu. Þú átt að
verða beztur, — það er það eina sem ég
hef áhuga á.
í peningamálum sínum veðjaði Mark
Spitz hins vegar á réttan hest. Elann var
varla fyrr kominn heim frá Múnchen er
maður að nafni William Morris hringdi
til hans og kvaðst skyldi gera hann rík-
an. — Það var ég sem breytti Johnny
Weismuller í Tarzan, sagði hann, — og
ég skal gera eitthvað álíka fyrir þig, ef
þú kærir þig um.
Mark Spitz hafði áhuga. Áður en
langt um leið hafði Morris gert hvern
samninginn á fætur öðrum fyrir hann,
jafnvel suma til 99 ára. Myndir af Mark
Spitz prýddu nú hvert auglýsinga-
spjaldið af öðru og hann fékk mögu-
leika á þvi að reyna fyrir sér á sama hátt
og Johnny Weismuller, sem eitt sinn
hafði verið bezti sundmaður Banda-
ríkjanna. Spitz fékk hlutverk í kvik-
mynd og fyrir að koma fram í henni átti
hann að fá upphæð sem svarar til 300
milljóna íslenzkra króna.
Mark Spitz var ekki búinn að vera í
kvikmyndaverinu í marga daga er
framleiðandi myndarinnar komst að
raun um að hann væri ónothæfur sem
leikari, en Spitz hafði engar áhyggjur af
því. — Það er nóg að ég sýni mig í
myndinni, það mun tryggja metaðsókn
að henni, sagði hann.
Og áfram hélt Mark Spitz að eyði-
leggja fyrir sjálfum sér með hrokafull-
um og heimskulegum yfirlýsingum,
sem fengu alla upp á móti honum. Og
brátt kom að því að auglýsendur kom-
ust að raun um að hann hafði aflað sér
svo mikilla óvinsælda að það var allt
annað en líklegt að hann yrði vöru
þeirra til framdráttar. Margir freistuðu
þess að fá rift samningum sem gerðir
höfðu verið, en um ekkert slíkt var að
ræða. William Morris hafði búið svo
um hnútana, að hvergi var veilu að
finna í samningnum og því fær Mark
Spitz álitlegar greiðslur frá hinum og
þessum vöruframleiðendum, svo lengi
sem hann lifir.
Mark Spitz hefur nú gert sér grein
Mark Spitz með Bob Hope í hinum umdeilda sjónvarpsþætti. Hroki og yfirlæti sundgarpsins,
sem fram kom í þættinum fór mjög í taugarnar á mörgum landa hans, og skapaði honum
ómælda andúð, sem ógjörlegt hefur verið að bæta fyrir. Mark Spitz brosir breitt er þessi
mynd var tekin, en það bros er nú stirðnað.
fyrir því hvað heimskuleg framkoma
hans hefur kostað hann. Hann á enga
vini lengur, enginn lætur sig hann
varða. — Ég veit svei mér ekki hvað ég á
að taka mér fyrir hendur, sagði hann
nýlega í blaðaviðtali. — Mig langar til
þess að sýna fólki að það var ekki að-
eins í örfáa daga 1972 sem ég gat staðið
mig. Mig langar til þess að sýna að ég
get unnið mörg störf, rétt eins og flestir
aðrir. En það er erfitt að rífa sig upp úr
þeirri veröld sem maður hefur sjálfur
skapað sér, og það er erfitt að breyta
þeirri mynd og því áliti sem fólk hefur á
mér. Ætli ég verði því ekki að láta mér
það nægja að sigla um á skútunni minni
og leika tennis í garðinum. Eina von
mín um uppreisn er að verða aftur
framúrskarandi sundmaður, en til þess
er ég nú orðinn alltof gamall, og að auki
get ég ekki annað sagt um sundíþrótt-
ina, en að ég hata hana.
Hvar eru þeir nú?
£
i
Mark
Spitz
56