Íþróttablaðið


Íþróttablaðið - 01.07.1978, Qupperneq 57

Íþróttablaðið - 01.07.1978, Qupperneq 57
Lesið sjávarfréttir Áskriftarsími 82300 — 82302 Landsmót framhald af bls. 35 um þessum nýju og góðu íþróttamann- virkjum. Vandamál þau sem upp hafa komið bæði fyrir mótið og á því hafa verið lítil og auðleysanleg, þannig að ég sé enga ástæðu til þess að kvarta. Það eina sem við höfðum virkilega áhyggjur af var veðrið og við erum yfir okkur ánægðir með það hve veðurguðirnir hafa reynzt okkur hliðhollir. Skemmtanir Keppnum í hinum ýmsu greinum var lokið á tímabilinu 18-19 í eftirmiðdag- inn. Á kvöldin var svo tekið til við skemmtanir ýmsar. Skemmtanirnar voru með því sniði að allir gátu fundið þar eitthvað við sitt hæfi. Kl. 20 (á laugardags- og sunnudags- kvöld) voru tveggja tíma kvöldvökur með blönduðu efni. Þar kenndi margra grasa, svo sem leiks Lúðrasveitar Sel- foss, söngs Karlakórs Selfoss, gríns Jörundar, sýningar Fimleikafélagsins Gerpla, danssýningar danska fimleika- flokksins og sýningar danska unglinga- meistarans í stökkum á fjaðurdýnu. Kvöldvökur þessar fóru fram í nýja íþróttahúsinu og var það vægast sagt þétt setið á meðan á þeim stóð. Jón Björgvin Stefánsson, félagsmálastjóri, skaut á töluna 3000 manns. Kvöldvök- urnar fóru hið bezta fram og vöktu mörg sýningar- og skemmtiatriði verð- skuldaða hrifni áhorfenda. Dagskránni lauk svo öll kvöldin með dansleikjum sem einnig voru haldnir í íþróttahúsinu. Þeir voru mjög vel sóttir og fóru að sögn hið ágætasta fram. A.B. George Best framhald af bls. 40 frá síðasta HM í þeim leik 2-2. George Best var einnig í norður-írska landslið- inu sem mætti íslendingum ytra í sömu keppni, en þá gerði hann ekki miklar rósir. Landsliðsfyrirliðinn okkar, Jó- hannes Eðvaldsson, hafði töglin og hagldimar, og Best sýndi sáralítið af sér í leiknum. Keppnin of fljótt framhaid af bls. 43 hjá þessum pollum að með ólíkindum var. Enginn þeirra var of þreyttur til að skokka niður á völl eftir þrekæfinguna, til að hefja skotæfingar! Við færðum okkur um set og fórum yfir á grasvöllinn, þar sem Mile sagði 5. flokk C til. Hjá honum voru strákarnir að fara í gegn um nokkurs konar stöðvaprógramm. Þeim var skipt niður í 6 manna hópa og á hverri stöð gerðu þeir eina ákveðna æfingu, s.s. að halda bolta á lofti, að rekja bolta eða að skjóta á mark. Allt voru þetta æfingar sem miða að því að bæta boltameðferð og samspil. Strákarnir höfðu margir hverjir náð mjög góðum tökum á þess- um æfingum og sérstaka athygli okkar vakti rauðhærður, hraustlegur gutti sem Gísli Jens Víborg Ómarsson heitir. Við tókum hann stuttlega tali og spurðum hann fyrst að aldri. — Ég er 9 ára gamall og byrjaði í fótbolta í Val þegar ég var 8 ára gamall. Ég leik með 5. flokk C og leik þar oftast tengilið. Mér finnst ofsalega gaman í fótbolta og ég ætla að halda áfram þangað til ég er komirm upp í meist- araflokk. — Hvaða lið heldur þú að verði heimsmeistari í knattspyrnu Gísli? — Ég bæði held og vona að ítalir vinni, því mér finnst þeir beztir. — Þar með kvaddi Gísli og tók til við skallaæfingar á nýjan leik. Slíkt hið sama gerðum við (þ.e. kvöddum) og héldum heim á leið sannfærð um að við hefðum náð tali af nokkrum upprenn- andi knattspyrnustjörnum okkar ís- lendinga. Glaðleitir strákar í 5. flokki Vals stilltu sér upp fyrir ljósmyndara íþróttablaðsins að æfingu lokinni. 57

x

Íþróttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Íþróttablaðið
https://timarit.is/publication/1455

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.