Íþróttablaðið - 01.12.1992, Page 9
bestu með því að bjóða þeim ein-
hverjar óheyrilegar upphæðir.
Stjörnur stórliða í NBA-boltanum
hafa m.a.s. sætt sig við einhverjar
tekjulækkanir hjá liðum sínum þann-
ig að aðrir geti haft það betra og verið
Pétur Pétursson á að baki langan
feril í atvinnumennsku. Hann lék í
þrjú ár með hollenska liðinu Feyen-
oord — liði tvíburanna Arnars og
Bjarka Cunnlaugssona. Að þeim
tíma liðnum, árið 1981, gerði hann
tveggja ára samning við Anderlecht í
Belgíu en þaðan fór hann til Ant-
werpen áður en hann lauk samningi
sínum. Keppnistímabilið 1985-1986
lék hann síðan með Hercules á Spáni
en áður en hann fór þangað var hann
eitt tímabil hjá Feyenoord. En varð
Pétur Pétursson ríkur af atvinnu-
mennskunni?
„Ég veit nú ekki hvað maður á að
segja um það. Ég fór náttúrlega út
sem unglingur, beint úr foreldrahús-
um, þannig að það segir sig sjálft að
ég var efnaðri þegar ég kom heim en
þegar ég fór út. Annars vil ég lítið tjá
mig um mín launamál í atvinnu-
mennskunni."
— Eins og þú sagðir þá fórstu ung-
ur út. Vareinhverfjárhaldsmaður þér
áfram hjá félögunum. í því sambandi
er þess skemmst að minnast þegar
Macig Johnson sætti sig við tekju-
skerðingu þannig að sættir myndu
ríkja innan leikmannahóps Lakers.
Það er því Ijóst að töluvert jafnvægi
til halds og trausts þegar þú byrjaðir
ferilinn; varþért.d. bent á það í hvað
skynsamlegast væri að eyða pening-
unum?
„Á þeim tíma, sem ég byrjaði í at-
vinnumennskunni, var enginn sem
var til ráðgjafar í sambandi við fjár-
festingar — því miður."
Hvernig vartekjumálunum háttað,
þ.e. með bónusa og föst laun?
„Það er mjög einstaklingsbundið
hvernig launin eru greidd. Þetta er
mismunandi á milli liða og eins það
hvernig liðið metur hvern leikmann
fyrir sig. Það semur hver fyrir sig um
bónusa og slíkt. Ég var til dæniis ekki
með neinn bónus fyrir skoruð mörk
en það voru náttúrlega hærri bónusar
fyrir leiki sem skiptu meira máli, t.d.
bikarúrslitaleiki, leiki ÍEvrópukeppn-
um og þess háttar."
— Hvort voru meiri peningar í
boði í Hollandi eða á Spáni?
„Það má segja að almennt hafi
verið meiri peningar íboði á Spáni en
ríkir innan leikmannahóps NBA-
deildarinnar en hvort það jafnvægi
hafi nægt til þess að Pétur
Guðmundsson hafi haft sambærileg
laun ogMichael jordan skal hérósagt
látið!
„ÉG VAR
ÓSKYNSAMUR OG
KÆRULAUS
UNGLINGUR Á
ÞESSUM TÍMA"
í Hollandi. Spánn og Ítalía eru ein-
faldlega miklu stærri lönd en Hol-
land og Belgía. Stærstu félögin á ítal-
íu og Spáni eru miklu stærri fjárhags-
lega séð en þau stærstu í Hollandi. Ef
ítalskt félag hefur áhuga á einhverj-
um ákveðnum leikmanni þá er hann
keyptur hvað sem hann kostar. Þetta
gera félög í Hollandi, Belgíu og
Þýskalandi ekki."
— Þegar þú lítur yfir farinn veg
álítur þú að þú hefðir getað haldið
betur utan um tekjurnar?
„Eftir á að hyggja þá held ég að ég
hefði getað gert það. Ég komst þokka-
lega frá þessu en ég var bara óskyn-
samur og kærulaus unglingur á þess-
um tíma."
— Af hverju eru launamál atvinnu-
manna svona mikið feimnismál?
„Ég veit það eiginlega ekki. Það er
eiginlega hefð fyrir þessu. Þarna úti
erekkerttalað um þetta ogmaðurvar
bara í sinni vinnu og var ekkert að
ræða launamálin, hvorki við félag-
ana eða aðra."
— Fara íþróttamenn eingöngu ut-
an til þess að græða peninga eða er
von um frægð og frama sem íþrótta-
menn yfirsterkari peningaáhugan-
um?
„Ég held að íþróttamenn fari ekki
út í atvinnumennsku eingöngu pen-
inganna vegna. Hvað mig varðar
persónulega þá skiptu peningarnir
mig nákvæmlega engu máli. Égfórút
eingöngu vegna þess að mér þykir
mjög vænt um mína íþrótt og ég fékk
tækifæri til að leggja hana fyrir mig
sem atvinnu. Peningarnir komu þar
hvergi nálægt. Hjá mér hafa peningar
aldrei skipt neinu máli og kannski er
það galli — svona eftir á að hyggja."
Pétur Pétursson, sem var fyrirliði KR í nokkur ár og hampar hér sigurlaunum,
segist hafa komist þokkalega frá atvinnumennskunni — fjárhagslega.
PÉTUR
PÉTURSSON
9