Íþróttablaðið - 01.12.1992, Blaðsíða 11
„LAUN
HVERS OG
EINS EIGA
AÐ VERA
EINKAMÁL
VIÐKOM-
ANDI"
Ferill Kristjáns Arasonar í atvinnu-
mennsku spannar sex ár. Hann var
eitt keppnistímabil hjá þýska liðinu
Hameln, tvö ár hjá Gummersbach og
þrjú ár hjá spænska liðinu Teka. En
hafði Kristján Arason mikið upp úr
þessu fjárhagslega séð og á hann
miklar eignir eftir að hafa verið í at-
vinnumennsku?
„Launin, sem égfékk meðan ég var
í atvinnumennsku, eru mitt einkamál
og ég vil halda því þannig."
— Nú getur hver sem er fundið út
hvað þú ert með miklar tekjur hér á
landi með því að skoða skattaskýrsl-
ur. Hvernig stendur á því að laun
atvinnumanna eru svona mikið
feimnismál — er ekki einmitt æski-
legt að það sé ekki farið í grafgötur
með það mál þannig að ungir strákar
sjái út í hvað þeir eru að fara?
„Ég held að laun atvinnumanna í
íþróttum séu ekkert meira feimnis-
mál en laun almennt. Að mínu mati
eiga laun hvers og eins að vera hans
einkamál. Það er reyndar rétt að
mögulegt er að fá að vita laun fólks
með því að líta á skatta og það er líka
hægt í sambandi við atvinnumennsk-
una. Maður var bara á launaskrá
fyrirtækisins, borgaði sína skatta og
svo framvegis.
Ég held að það sé ekki mitt hlut-
verkað opinbera laun atvinnumanna
fyrir þeim sem hugsanlega eru á leið í
atvinnumennsku. Það er hlutverk
umboðsmanna að kynna þeim
launamálin."
Kristján er hér í góðum félagsskap lærissveina sinna í FH.
KRISTJAN
ARASON
— Hafa menn það ekki gott í at-
vinnumennskunni?
„Vissulega hafði ég gott upp úr
þessu og ég var auðvitað ríkari þegar
ég kom heim en þegar ég fór út — en
annars er það svo afstætt hvað það er
að vera ríkur."
— Hefðirðu viljað vera lengur úti?
„Nei, ég held ekki. Þegar ég kom
heim var ég eiginlega búinn að fá
meira en nóg, auk þess sem meiðsli
settu strik í reikninginn hjá mér."
— Hver er helsti munurinn á
spænska og þýska boltanum, þ.e.a.s.
hvað peningamálin varðar?
„Munurinn á Spáni og Þýskalandi í
sambandi við peningamál atvinnu-
manna er kannski helstur sá að hjá
stærstu félögunum á Spáni eru meiri
peningar íboði en hinsvegarer þetta
jafnara í Þýskalandi. Þar eru margir í
skóla eða að vinna eitthvað með
boltanum en á Spáni eru menn ein-
göngu í því að spila handbolta. Mér
var strax gerð grein fyrir því þegar ég
komtil Spánarað ég ætti ekki að gera
neitt annað. Hjá Teka voru það 10
leikmenn sem gerðu ekkert annað en
að spila handbolta. Á Spáni eru engir
yngri flokkar hjá stóru félögunum og
eina leiðin til að fá leikmenn er að
kaupa þá. Þetta er viss ókostur upp á
félagsskapinn að gera."
— Nú ertu viðskiptafræðingur.
Aflaðir þú þér einhverrar framhalds-
menntunar þegar þú varst úti og jafn-
vel einhverra viðskiptasambanda?
„Þegar ég var í Þýskalandi sótti ég
háskóla í Köln og aflaði mér viðbót-
armenntunar í viðskiptafræðinni en
ég gerði ekkert í því að afla mér við-
skiptasambanda — það stóð ekkert
til að égfæri aðopna heildsölu þegar
ég kæmi heim!"
11