Íþróttablaðið - 01.12.1992, Blaðsíða 13
SIGURÐUR
BJARNASON
Sigurður Bjarnason leikur nú sitt
annað tímabil með þýska stórliðinu
Grosswallstadt. Sigurður er einungis
22 ára gamall og gæti því átt glæsta
framtíð fyrir sér í atvinnumennsk-
unni. En hefur hann mikið upp úr því
að leika sem atvinnumaður í Þýska-
landi?
„Nei, ég get ekki sagt að um háar
fjárhæðir sé að ræða í því sambandi.
En þetta borgar sig allavega og ég hef
meira upp úr því að vera hérna hjá
Grosswallstadt en að vera heima."
— Af hverju eru launamálin svona
mikið feimnismál?
„Ætli það sé ekki fyrst og fremst
vegna skattamála. Hérna úti er ein-
göngu um hálfatvinnumennsku að
ræða þannig að menn hafa ekki hátt
um þessi mál — þetta eru viss hlunn-
indi."
— Gerirðu eitthvað annað en að
spila handbolta?
„Nei, ekki í augnablikinu. En frí-
tími minn býður upp á marga mögu-
leika. Ég ætlaði mér t.d. að fara að
læra í vetur en það fórst fyrir vegna
lítillar málfræðikunnáttu minnar í
þýsku. Það eru nefnlilega gerðar
mjög strangar kröfur um þýskukunn-
áttu ætli maður í háskóla hérna."
— Hvað heldurðu að bestu leik-
mennirnir í Bundesligunni hafi í árs-
tekjur?
„Ég þori ekki alveg að fara með
það. Maður heyrir náttúrlega margt
og ég hef heyrt að menn séu að fá allt
upp í 140.000 þýsk mörk [u.þ.b. 5,2
milljónir íslenskra króna] fyrir tíma-
bilið. Ofan á þessar upphæðir bætast
síðan bónusar og fleira þannig að
maður veit aldrei nákvæmlega um
hversu háar upphæðir er að ræða."
— Átt þú möguleika á því að fá
svona tekjur?
„Ég veit það ekki. Ef ég geri annan
samning hérna úti þá vonast ég nátt-
úrlega til þess að fá svona upphæð-
ir," sagði Sigurður sem er samnings-
bundinn Grosswallstadt út yfirstand-
andi keppnistímabil.
— Nú hefur þérgengið vel að und-
anförnu. Stefnir ekki allt í að þú fáir
annan samning?
„ÉG HEF HEYRT
AÐ MENN SÉU
MEÐ 5,2
MILLJÓNIR
KRÓNA í LAUN"
„Ég veit það ekki. Það er svo mikil
„mafía" í kringum allt hérna. í fyrra
var t.d. þjálfarinn látinn fjúka eftir
geðþótta einhverra manna og þegar
hann var látinn fara var þegar búið að
ráða nýjan mann. Það þarf því oft
lítið útaf að bera til þess að þessir
menn séu komnir upp á móti manni.
Ég hef þó verið heppinn hvað þetta
varðar og staðið hefur verið við allt
sem við mig hefur verið sagt."
— Ertu eitthvað búinn að setja það
niður fyrir þig hvað þú ætlar að vera
lengi úti?
„Nei, ég hef ekki gert það. Ég gæti
þóvel hugsaðmérað vera hérnaeinn
vetur í viðbót og koma síðan heim.
Mig langar nefniiega til þess að fara í
lögfræðinám heima og ég ætla ekki
að draga það endalaust. Það er t.d.
ekki hægt að bera þá stöðu sem ég er
í saman við þá sem Kristján Arason
var í þegar hann fór út en hann var þá
búinn að Ijúka sínu háskólanámi. Ég
gæti hugsanlega verið í þeirri stöðu
að geta haldið mér uppi á námstím-
anum af þeim peningum sem ég fæ
hérna úti en annars er aldrei hægt að
segja til um það hvernig mér tekst að
haldast á peningunum."
— Fylgja handboltanum einhver
fríðindi?
„Já, ég get ekki sagt annað. Ég hef
íbúð og bíl til umráða og það eina,
sem ég þarf að leggja til, er að borga
mat ofan í mig, bensín á bílinn og
símreikninga. Félagið sér t.d. um öll
tryggingamál mín og greiðir fyrir mig
ferðir heim til íslands."
— Seturðu þá peninga, sem þú
færð, undir koddann eða fjárfestirðu
eitthvað?
„Ég reyni að leggja peningana til
hliðar en eins og menn vita er dýrt að
lifa og peningarnir eru fljótir að fara.
Annars hefur mér gengið ágætlega að
leggja peninga fyrir og það geri ég
alltaf heima."
13