Íþróttablaðið - 01.12.1992, Side 22
„Strákar! Við verðum að reyna að vera 7 inná, annars verður þetta svo ójafnt." Guðjón gefur skipanir en Trufan
virðist áhugalítill og Pétur skokkar í burtu.
eigum enn góða möguleika í Evrópu-
keppninni og á íslandsmótinu. Við
höfum sýnt það í Evrópuleikjunum
að við erum á uppleið miðað við
frammistöðu okkar í haustleikjunum.
Það kom að vísu bakslag í leiknum
gegn Selfossi en ekkert lið fer í gegn-
um heilt mót án þess að tapa."
— Er FH-liðið eins sterk og á síð-
asta keppnistímabili?
„Eins og staðan er í dag er liðið
ekki eins gott og það var best í fyrra
en það á eftir að breytast. Á því eru
ýmsar skýringar. Kristján Arason er
enn hálfur maður, Þorgils Óttar er
ekkert byrjaður að leika eftir að hann
sleit krossbönd í hnénu og svo hafa
orðið breytingar á liðinu. Það tekur
sinn tíma að slípa liðið til."
— Munar svona mikið um Hans
Guðmundsson?
„Sóknarlega séð gerir það það því í
fyrra var hann að spila eitt sitt besta
keppnistímabil í háa herrans tíð. Alex
Trufan er enn að aðlagast liðinu og á
eftir að nýtast enn betur. Hann er
gríðarlega sterkur varnarmaður."
— Voru þið ósáttir við brottför
Hans frá FH í HK?
„Við leikmenn FH reyndum að
standa algjörlega fyrir utan þær deil-
ur sem spunnust upp við félagaskipti
hans yfir í HK. Við höfum ekkert úti-
lokað Hans úr okkar kunningjahópi
þótt hann sér farinn úr FH og ég held
að hann hafi ekki útilokað okkur."
— Hvernig „karakter" er Hans?
„Hans er nokkuð skemmtilegur
karakter. Hann er yfirleitt alltaf léttur
og kátur og það er mikið fjör í kring-
um hann. Hann er hæfilega kærulaus
og ber ekki virðingu fyrir neinum í
ieik og gefur sig á fullu í hvert verk-
efni. Hann tekur hlutina ekkert of al-
varlega en er samt sigurvegari í eðli
sínu."
— Sú saga er í gangi að hann hafi
haft samband við FH fyrir síðasta
keppnistímabil og sagst vilja Ijúka
ferlinum með sínu gamla félagi. Þá
áttu forráðamenn FH að hafa spurt
hversu mörg ár hann væri að tala um
og hann hafi tjáð þeim að það væru
2-3 ár. Forráðamenn FH spurðu
hvað slíkt myndi kosta og hann á að
hafa nefnt 1,1 milljón. Vegna þessa
urðu FH-ingar vitanlega æfir þegar
hann skiptir síðan yfir í HK eftir 1 ár.
Er þetta rétt?
„Ég hef heyrt þessa sögu en get
ekki sagt um það hvort þetta er rétt
eða ekki. Við leikmenn vildum ekki
blanda okkur í þetta."
— Sagan segir líka að hann hafi
fengið 1,8 milljónir fyrir að leika
með HK.
„Já, ég hef heyrt það líka en hvort
eitthvað er til í þessu skal ég ekki
segja."
— Er einhver leikmaður á Islandi
1,8 milljóna króna virði þegar verið
er að tala um eitt keppnistímabil?
„Nei, það t'innst mér ekki. Kannski
væri þetta réttlætanlegt ef hér væri
opinberatvinnumennska eða hálf-at-
vinnumennska en svo er ekki. Á
meðan félögin eru rekin sem áhuga-
mannafélög finnst mér ekkert vit í því
að einum manni sé greidd slík upp-
hæð. Þetta er engin smá upphæð
þegar tekið er tillit til þess að mörg
félög eru ekki meða veltu nema upp
upp á 10 milljónir. Af þeirri upphæð
er einn leikmaður kannski að fá 15-
20%. Sérhver maður sér hversu það
gerir félaginu erfittfyrir því það á eftir
að greiða þjálfarakostnað allra flokka
og svo framvegis."
— Hvaða augum líta handbolta-
menn á t.d. Hans og aðrar „flökku-
kindur" í handboltanum, ef við töl-
um bara hreint út, — menn sem virð-
„ÞAÐ ER ENGINN LEIKMAÐUR
1,8 MILLJÓN KRÓNA VIRÐI"
22