Íþróttablaðið - 01.12.1992, Page 28
sem er framundan fyrir mig, er
heimsmeistarakeppnin í Svíþjóð á
næsta ári en að öllu óbreyttu verður
Gunnar Gunnarsson væntanlega
leikstjórnandi í þeirri keppni því
hann hefur staðið sig vel."
— Finnst þér að eitthvað mætti
betur fara í leik landsliðsins?
„Við erum búnir að ná góðum tök-
um á varnarleiknum og markvarslan
er á heimsmælikvarða en sóknin er
enn ekki nógu góð. Hún sem var áður
okkar sterkasta hlið. Ég veit ekki
hverju um erað kenna. Sóknarleikur-
inn er einhæfur en hver ástæða þess
er veit ég ekki. Takist okkur að laga
hann fyrir HM erum við í mjög góð-
um málum. Árangurinn veltur vitan-
lega á því að okkar bestu menn leiki
af eðlilegri getu. Við viljum vera best-
ir í handbolta og þurfum þess vegna
að fara að hugsá þannig. Við erum
alltaf að velta okkur upp úr því hvað
andstæðingarokkarséu sterkiren við
eigum að hætta því. Við erum bestir
og eigum að láta hina hafa áhyggjur
af okkur. Ef við hættum öllu væli um
þennan og hinn andstæðinginn
hljóta hlutirnir að ganga betur. Ef við
viljum halda okkur á toppnum, þurf-
um við að vinna alla leiki án tillits til
þess móti hverjum við erum að
leika."
— Hvern sérðu sem arftaka Þor-
bergs landsliðsþjálfara?
„Ég sé Þorberg ekki hætta sem
landsliðsþjálfara fyrr en í fyrsta lagi
eftir HM á íslandi 1995 nema eitt-
hvað sérstakt komi upp á. Staða hans
„Ef við hættum öllu væli um þennan
andstæðing og hinn hljóta hlutirnir
að ganga betur," segir Guðjón.
sem þjálfari er ekki völt þótt okkur
gangi illa í Svíþjóð. Hann er þegar
byrjaður uppbyggingu fyrir HM '95
þótt ég sé yfirleitt á móti því að val í
landsliðið fari eftir fæðingarári leik-
manna. Að mínu mati á að velja þá
leikmenn í landsliðið sem eru bestir
hverju sinni hvort sem þeir eru 21 árs
eða 35 ára. Ef sá eldri er betri en sá
yngri á hann að vera í landsliðinu.
Þetta gera allar þjóðir. Á íslandi vilja
menn skipta mönnum út þegar þeir
eru þrítugir — með örfáum undan-
tekningum.
Ég get fyllilega séð Kristján Arason
sem landsliðsþjálfara þegar Þorberg-
ur hættir. Kristján er með óbilandi
metnað sem myndi reynast honum
vel hvað varðar þjálfun landsliðsins
og hann þekkir landsliðsmálin út og
inn. Hann er mjög góður þjálfari,
góður leikstjórnandi og virtur í íþrótt-
inni. Sem sagt kjörinn í hlutverkið."
— Hver er besti handboltamaður
landsins, að þínu mati?
„Það er erfitt að nefna einn ein-
stakling í þessu sambandi því mér
finnst enginn sérstakur algjörlega af-
gerandi bestur. Siggi Sveins er búinn
að sýna það að hann er einn af al-
bestu sóknarmönnum landsins og
hann er meira aðsegjafarinn að leika
einsog unglamb ívörninni. Valdimar
Grímsson er gríðarlega öflugur og
líklega myndi ég velja hann ef ég
þyrfti að nefna einn sérstakan sem er
bestur. Það er hreint ótrúlegt hvað
honum fer mikið fram á hverju ári
miðað við hvað hann er búinn að
vera lengi að. Hann sýnir stöðugar
framfarir. Markverðirnir okkar Berg-
sveinn og Guðmundur eru báðir á
heimsmælikvarða og svo er að koma
upp fjöldi stórefnilegra leikmanna."
— Hefur þig aldrei dreymt um at-
vinnumennsku í handbolta?
„Ég veit það ekki. Ég hef fengið
mín tækifæri án þess þó að gera al-
vöru úr því. í eitt skipti var ég í miðju
námi og áhuginn var ekki alveg nógu
mikill. Það varð því aldrei um nein
formleg tilboð að ræða."
— Ef þú mættir bæta við þig ein-
um eiginleika sem handboltamaður
— hver væri hann þá?
„Ég myndi vilja verða betri varnar-
28