Íþróttablaðið - 01.12.1992, Síða 30
maður þótt ég sé ekki sá alslakasti í
deildinni."
— í hvaða liö myndirðu fara ef þú
yrðir að skipta um félag?
„Það færi líklega eftir því hverju
maður væri að sækjast eftir. Valur
yrði líklegafyrir valinu því liðið hefur
góðan þjálfara og er, að ég held,
mjög félagslega sterkur klúbbur. Eg
legg mikla áherslu á það. Að auki er
Valur ávallt í toppbaráttu en þetta er
það sem maður leggur hvað mesta
áherslu á."
— Þú færir ekki í Hauka?
„Máltækið segir; aldrei að segja
aldrei — þannigaðmaðurveitaldrei.
Það er reyndar fordæmi fyrir því í
fjölskyldunni. Móðurbróðir minn var
í FH en fór í Hauka og það sama gerði
Magnús bróðir minn, sem er mark-
vörður, fyrir þremur árum. Leikmenn
FH og Hauka þekkjast vel og það er
gott á milli þeirra en rígurinn á milli
félaganna er meira í orði en á borði.
Af gömlum vana höldum við rígnum
gangandi með því að jagast sífellt
hver út í aðra. Utan þess lifir rígurinn
líklega bara á elliheimilum í dag og
svo einhvers staðar úti í bæ."
— Býður þú Magnúsi bróður þín-
um enn í heimsókn?
„Það kemur fyrir. Hann hefur stað-
ið sig vel í vetur en í fyrra var hann
slakur. Ég skil hann að vissu leyti að
hafa skipt um félag því auk Berg-
sveins var Guðmundur Hrafnkelsson
líka í FH og átti hann því við ramman
reip að draga."
— Hvernig finnst þér lið Hauka?
„Haukarnir eru góðir. Jóhann Ingi
er að gera góða hluti með þá. Ég hef
trú á því að þeir komist í úrslita-
keppnina."
— Hvernig finnst þér íslandsmót-
ið hafa þróast?
„Ef eitthvað hefur komið á óvart þá
er það það að mótið er enn jafnara en
menn reiknuðu með. Það er jákvætt
fyrir handboltann að fleiri lið skuli
blanda sér ítoppbaráttuna. Liðin sem
slík eru jafnari og breiddin meðal
leikmannaerað verða meiri. Þróunin
er jákvæð."
— Yfir í aðra sálma — eftir hverju
sérðu mest frá æskuárunum?
„Stundum hef ég sagt við Hafdísi,
konuna mína, að ef ég mætti gera
eitthvað upp á nýtt myndi ég taka
fótboltann fram yfir handboltann.
Fótboltinn var mín íþrótt fram eftir
öllum aldri. Ég komst fyrr í meistara-
„Ég held ég hefði ekki orðið síðri fótboltamaður en handboltamaður, nema
síður sé."
„ÞAÐ HEFÐI VERIÐ GAMAN AÐ
HALDA ÁFRAM í FÓTBOLTANUM"
flokk í fótbolta en einhverra hluta
vegna valdi égsamthandboltann. FH
var í Evrópukeppni, liðið var gott og í
því léku stjörnur á við Kristján Ara-
son, Svein Bragason, Þorgils Óttar,
Hans Guðmunds og fleiri. Fótbolta-
liðið var í 2. deild og kannski gerði
það útslagið."
— Heldurðu að þú hefðir getað
náð lengra í fótboltanum?
„Ég veit það ekki. Ég var senter og
þótt ég segi sjálfur frá held ég að ég
hefði ekki orðið síðri fótboltamaður
en handboltamaður, nema síður sé.
Hversu langt það hefði skilað mér
veit ég ekki. í fótboltanum náði ég að
leika með eftirminnilegum leik-
mönnum eins og Viðari Haildórs-
syni, sem er einstakur karakter, Ólafi
Danivalssyni, Helga Ragnarssyni og
fleirum en allt eru þetta hinir mestu
húmoristar. Það hefði verið gaman
að halda áfram í fótboltanum en vit-
anlega sé ég ekki eftir tímanum í
handboltanum."
— Hvenær byrjaðir þú að senda
Hafdísi ástarbréf?
„Ég var víst alveg laus við að gera
það. Samband okkar þróaðist smám
saman en við vorum búin að þekkjast
í nokkur ár áður en Amor fór að örva
hjartsláttinn í okkur."
— í gegnum hvaða ósköp þurftir
þú að ganga í steggjarpartíi áður en
þið piftuð ykkur nú í haust?
„Eg fæ enn í magann þegar ég
hugsa um hvað hefði getað gerst. í
stuttu máli fékkégskilaboðfrá bæjar-
30