Íþróttablaðið - 01.12.1992, Side 33
KARATEFÉLAGIÐ ÞÓRSHAMAR EIGNAST HÚSNÆÐI
Nú nýlega festi Karatefélagið Þórs-
hamar kaup á húsnæði að Brautar-
holti 22 í Reykjavík en þar hafði fé-
lagið leigt í u.þ.b. ár. Það er mikið
átak fyrir lítið félag að eignast og inn-
rétta sitt eigið húsnæði en það virkar
vonandi sem vítamínsprauta fyrir
starfsemina og áhuga almennings.
Þórshamar er á 14. aldursári og
virðist ekki þjást af neinni unglinga-
veiki. Félagið var stofnað 27. maí
1979 og síðan þá hefur það komið á
fót sjálfstæðum félögum á Akranesi
og Hvammstanga. Þórshamar er
stærsta karatefélag á landinu og eru
reglulegir iðkendur á vegum félags-
ins rúmlega 150 auk þess sem nokkur
fjöldi æfir óreglulega.
í samtali við ÍÞRÓTTABLAÐIÐ
sagði Jón Ásgeir Blöndal, fram-
kvæmdastjóri félagsins, það muna
miklu fyrir félagið að vera í sínu eigin
húsnæði. Aðstaðan er öll meiri og
betri en hún var áður og nú hefur
félagið yfir að ráða 175 m2 æfingasal í
stað 70 nr salar áður. Það vill svo vel
til að formaður félagsins er verkfræð-
ingur og á hann ásamt Jóni Ásgeiri
heiðurinn af skipulagi húsnæðisins.
Jón Ásgeir sagði íþrótta- og tómst-
undaráð Reykjavíkur og þá sérstak-
lega Júlíus Hafstein eiga sérstakar
þakkir skildar fyrir góðan stuðning
við félagið og mikinn skilning á þörf-
urn lítilla félaga.
Hvernig getur svona lítið félag
staðið í því að eignast húsnæði? Hér
er mikið unnið í sjálfboðavinnu og
má segja að í kringum 100 manns
hafi komið að einhverju leyti þar við
sögu. Reykjavíkurborg styrkir okkur
og greiðir 80% af kaupverðinu. Við
vorum nokkrir sem tókum mikla
áhættu áður en kaupin komu til og
gengumst í ábyrgðir fyrir félagið,"
sagði Jón Ásgeir.
Einkenni Karatefélagsins Þórs-
hamars sagði Jón Ásgeir helst vera
þau að mikill agi ríkti innan þess og
þar væri ekki gefinn „séns" þegar um
agabrot væri að ræða. Stór þáttur í
iðkun karate er agi. í lögum félagsins
kemur m.a. fram að það skuli vinna
að eflingu og útbreiðslu shotokan
karate á íslandi. Shotokan er ákveð-
inn stíll í karate og eru allar aðrar
gerðir karate þróaðar útfrá honum en
shotokan karate byggist á meiri krafti
en aðrar greinar. Keppnisgreinar í
karate eru Kata og Kumite. Kumite er
frjáls bardagi en Kata byggist á
grunnhreyfingum með stöðluðu
formi þar sem gerðar eru vissar hreyf-
ingar eftir forskrift og er alltaf byrjað í
vörn. Karate er varnaríþrótt, ef svo
má segja, og ein af fyrstu reglunum
hljóðar á þann veg að það er ekki til
nein fyrsta árás í karate. Fyrsta stig
karate er Kihon, sem eru grunnhreyf-
ingar.
Þórshamar er öflugasta karatefé-
lagið á landinu. Þar er góð aðstaða,
margir hæfir þjálfarar og regluleg
byrjendanámskeið fyrir börn allt nið-
ur í 5 ára aldur. ÍÞRÓTTABLAÐIÐ
óskar Þórshamri til hamingju með
húsnæðið og velfarnaðar í starfinu á
komandi árum.
33