Íþróttablaðið - 01.12.1992, Blaðsíða 36
í POKAHORNINU
DRAUMALIÐIÐ
Það hljómar ef til vill hjákátlega að tala um íslenskt körfuknattleikslið sem
draumalið eftir flugeldasýningu bandaríska körfuknattleikslandsliðsins á Ól-
ympíuleikunum í sumar. Hvað sem því líður fékk ÍÞRÓTTABLAÐIÐ Sigurð
Hjörleifsson þjálfara Breiðabliks í úrvalsdeildinni í körfubolta til að stilla upp
sínu draumaliði, íslensku. Hverjir eru í draumaliði Sigurðar og hvers vegna?
„Pétur Guðmundsson, UBK. Hann er í mjög góðri æfingu og reynsla hans og
hæð nýtast á móti hvaða liði sem er. Guðmundur Bragason, UMFG, er mjög
fljótur leikmaður miðað við hæð og Teitur Örlygsson, UMFN, er ótrúlega
fjölhæfur og getur unnið leiki upp á sitt einsdæmi. Jón Arnar Ingvarsson,
Haukum, er mjög góður skotmaður sem einnig getur spilað sem leikstjórn-
andi. Jón Kr. Gíslason, ÍBK, er kannski ekki sá allrabesti en reynsla hans og
útsjónarsemi eru nauðsynlegar fyrir liðið."
Þegar Sigurði var gefinn kostur á að velja tvo af þeim erlendu leikmönnum,
sem spila hér á landi, í landsliðið valdi hann Joe Hurst, UBK, og Alexander
Ermolinskij, Skallagrími.
DRAUMALIÐ SIGURÐAR HJÖRLEIFSSONAR:
Guðmundur Bragason, Pétur Guðmundsson,
UMFG UBK
Jón Arnar Ingvarsson, Jón Kr. Gíslason, Teitur Örlygsson,
Haukum ÍBK UMFN
Sigurður Hörleifsson körfuknatt-
leiksþjálfari.
^ Sá íþróttamaður, sem Olga
^ Færseth, knattspyrnu- og körfu-
__ boltamaður úr Keflavík, dáir
mest, er bandaríski körfubolta-
^ maðurinn Charles Barkley sem
Q spilar með Phoenix Suns í NBA
^ deildinni.
< „Ég held mest upp á Charles
Barkley, fyrst og fremst vegna
^ þess að hann er góður körfu-
VQ boltamaður og svo er hann frá-
r*s bær persónuleiki. Hann er ekk-
ert að skafa utan af hlutunum og
'uö se8'r s^na skoðun," sagði Olga
P Færseth.
—I
C£
h-
LL.
LU
HVAÐA
ÍÞRÓTTAMAÐUR
VILDIR ÞÚ HELST
VERA?
Ef maður er ánægður með sjálf-
an sig eins og maður er þá er engin
ástæða til að vilja vera einhver
annar en margur á sér draum um
að vera einhver annar en hann er.
Seint verða slíkir draumar upp-
fylltir en það er svo sem ekkert að
því að láta sig dreyma. Ef Örn
Árnason gæti valið hvaða íþrótta-
maður vildi hann þá helst vera?
„Það hefði verið gaman að vera
Mike Tyson en hann situr víst inni.
Það hefði verið gaman að vera
Erwin „Magic" Johnson en hann er
víst veikur. Það hefði verið gaman
að vera O.D. WILSON en hann er
víst dauður. Annars er allt þetta af-
reksfólk, sem maður þekkir eða
þekkti, öllu heldur, hætt keppni og
þvíekkertspennandi lengur," sagði
Örn Árnason allsherjargrínari um
leið og hann glotti í símann.
Örn Árnason — þegar hann var ung
ur og grannur!
36