Íþróttablaðið - 01.12.1992, Side 40
í POKAHORNINU
JÓN KR. GÍSLASON
HVERNIG
ANDSTÆÐINGUR
ER HANN?
Valur Ingimundarson, þjálfari
Tindastóls:
„Helstu kostir hans í sókn eru hraðinn og stjórnunar-
hæfileikarnir og í vörninni nýtist hraðinn honum mjög
vel. Hann ererfiðurandstæðingur, hefuralltaf lagt hartað
sér og alltaf ætlað sér að verða góður. Hann hefur aldrei
viljað vera næstbesti bakvörðurinn. Þótt hann skipti sjald-
an skapi þá kemst hann langt á skapinu og ætlar sér alltaf
sigur. Áður fyrr átti hann til að æsa sig en hann hefur náð
tökum á því.
Eg man eftir því fyrir 10—11 árum síðan, þegar ég
spilaði gegn honum, að ég gaf honum olnbogaskot
snemma í leiknum til að slá hann út af laginu en hann lét
mig ekki komast upp með það og gaf mér annað til baka í
næstu sókn. Hann er alls ekki óheiðarlegur en hann er
harður og mikill keppnismaður.
Utan vallar er hann rólegur og yfirvegaður maður og
glaðlyndur."
Pálmar Sigurðsson, UMFG:
„Hann er jafnvígur á báðar hendur og erfitt að eiga við
hann. Sem leikstjórnandi og aðal driffjöður Keflavíkur-
liðsins og landsliðsins í gegnum árin er hann með erfiðari
mótherjum sem maður fær. Hann hefur þann hæfileika
að geta keyrt upp að körfunni þannig að það er erfitt að
gæta hans. Hann þarf svolítinn tíma í skotin og maður má
alls ekki gefa honum þann tíma. Það er kannski það eina,
sem hann þyrfti að laga, þ.e. hann þyrfti að geta skotið
með styttri tíma. Hann þyrfti að ná upp skotstí! eins og
Guðjón Skúlason sem getur næstum því skotið áður en
hann fær boltann! I vörninni er það mikil reynsla sem
gerir það að verkum að hann les leikinn mjög vel og veit
hvað hann má falla langt frá mönnum. Hann er yfirleitt
geðgóður en á auðvitað til skap ef hann er misrétti beittur,
eins og hver annar, annars er hann nú í prúðari kantinum.
Við höfum nú aldrei lent í neinum alvarlegum rimmum,
þetta byggist á gagnkvæmri virðingu, mjúku línurnar
gilda okkar á milli, held ég.
Hann ertoppfélagi, létturog kátur eins og þessir Suður-
nesjastrákar og með þennan létta og skemmtilega Suður-
nesjahúmor."
ísak Tómasson, UMFN:
„Hannererfiðurandstæðingur, aðallega vegna þessað
hann er jafn vígur á báðar hendur, er snöggur og stór.
Hann hefur mikinn hraða og nær mikill yfirferð um völl-
inn. Það er erfitt að eiga við hann þegar hann keyrir upp
að körfunni. Hann er þokkalega skapstór, svona mátulega
eins og til þarf í boltanum. Það, sem hann gæti kannski
helst bætt, eru skotin. Hann skorar reyndar stundum mik-
ið en það gengur ekki alltaf upp hjá honum.
40