Íþróttablaðið - 01.12.1992, Page 41
LISTAMAÐURINN
Sigurður Sveinsson
Margir íþróttamenn eru þekktir
fyrir fleira en að iðka íþrótt sína enda
er flestum ýmislegt til lista lagt þótt
sumir hæfileikar fái aldrei notið sín.
ÍÞRÓTTABLAÐIÐ hefur nú leit að
listamönnum meðal íþróttamanna
og hver er ákjósanlegri til að hefja
þann leik en vinstrihandarskyttan í
liði Selfyssinga, Sigurður Valur
Sveinssoní1 Sigurður hefur verið mjög
áberandi í íþróttalífinu undanfarin ár
og meira að segja í rúman áratug —
og verður stöðugt betri. Siggi er eins
og rauðvínið, segja sumir — verður
betri þeim mun eldri sem hann verð-
ur. Það verður gaman að fylgjast með
Sigga Sveins í 1. deildinni árið 2043
og geta menn velt því fyrir sér hvort
hann mun leika með staf eður ei!
Að öllu gamni slepptu lögðum við
það verkefni fyrir Sígurð að yrkja Ijóð
og teikna mynd. Sigurður brást vitan-
lega vel við enda sjáum við afrakstur-
inn hér á síðunni. Hann ákvað að
teikna Högna hrekkvísa og yrkja at-
ómljóð um jólasveinana 63 (alþing-
ismennina). Auk þess að láta lista-
mannaljós sitt skína var Sigurði gef-
inn kostur á að skora á einhvern til
þess að leysa þetta verkefni í næsta
blaði. Sigurður var ekki lengi að
benda á listamann úr röðum íþrótta-
manna og sagði að Alfreð Gíslason,
handboltamaður og þjálfari KA á Ak-
ureyri, væri mikilsvirtur málari með-
al handboltamanna. Það kemur því í
hlut Alfreðs að teikna einhverja
mynd í næsta íþróttablað og yrkja
Ijóð svo fremi sem hann samþykkir
það.
Jólin nálgast smátt og smátt
Leppalúði kemur
þá verður nú mikið kátt
hjá sonunum sextíu og þremur
Sendum íþróttasambandi íslands, íþrótta- og ungmenna-
félögum, íþróttafólki, landsmönnum og viðskiptavinum
bestu jóla- og nýárskveðjur.
Þökkum viðskiptin á árinu
sem er að líða.
iiipor hp
AUÐBREKKU4
- 200 KÓPAVOGUR SÍMI 4 32 44
41