Íþróttablaðið - 01.12.1992, Side 56
VISSIR ÞU...
* ... að næst þegar Valur Ingi-
mundarson leikur landsleik í körfu-
bolta undir stjórn Torfa Magnús-
sonar landsliösþjálfara jafnar hann
landsleikjamet Torfa sem er 131
leikur. Þó getur orðið nokkur bið á
því þar sem líklegt er að ekki verði
íeikinn landsleikur fyrr en næsta
vor. Ætli Torfi setji ekki Val bara út í
kuldann hið snarasta til þess að
halda metinu?
* ... að stærsti sigur íslenska
karlalandsliðsins í körfubolta er frá
1968 þegar Norðmenn voru lagðir
að velli með 64 stiga mun, 123-59.
Stærsta tapið er hinsvegar úr leik
gegn Króötum í undankeppni Ól-
ympíuleikanna í sumar en þá töp-
uðum við með 73 stiga mun, 51-
124. Samanlögð stigatala úr öllum
landsleikjum karla er okkur í óhag,
19.983 stiggegn 20.900. Ætli Valur
Ingimundarson skori 20.000. stigið
fyrir ísland í leik þar sem hann jafn-
ar landsleikjametið?
* ... að stærsti sigur kvenna-
landsliðsins í körfubolta er 33 stiga
sigur gegn Möltu á Smáþjóðaleik-
unum 1991,68-35. Stærsta tapið er
frá 1986 þegar Svíar sigruðu okkur
með 119 stiga mun á Norðurlanda-
mótinu, 134-15. Samanlögð stiga-
tala úr landsleikjum kvenna í körfu-
bolta er 1312 stig íslendinga gegn
2162 erlendra liða.
* ... að Þorsteinn Bjarnason og
Viðar Þorkelsson hafa þáðir leikið
landsleiki í körfuknattleik. Þor-
steinn hefur leikið 6 landsleiki og
Viðar 3 en þeir eru líklega þekktari
fyrir knattspyrnuiðkun sína.
* ... að engin önnur lið en Valur,
FH og Víkingur hafa orðið íslands-
meistarar karla frá árinu 1972 en þá
voru það Frammarar sem sigruðu.
* ... að minnsta markaskor í
landsleik í handbolta var í fyrsta
landsleik íslands og Finnlands sem
fram fór í Reykjavík 23. maí 1950.
Leiknum lauk með jafntefli, 3 - 3.
ALLIR
VIUA
SABATINI
SÆTU
Á hverju ári færa stórfyrirtæki milljónir
dollara frá einum íþróttamanni tii annars í
formi styrktarfjár. Þau slást um að „spon-
sora“, eins og sagt er á ensku, þá íþrótta-
menn sem eru iíklegir tii afreka eða eru
einhverra hluta vegna mikið í fjölmiðlunum.
Margir velta því fyrir sér hvort stórfyrirtæk-
in styrki frekar þá, sem eru myndarlegir, en
þá sem er bestir. I mörgum tilfellum virðist
það skipta meira máli að vera með há kinn-
bein og fallegt bros en að ná góðum árangri.
GABRIELA SABATINI er gott dæmi um
glæsilegan íþróttamann sem stórfyrirtæki
keppast um að tengja merki sín við, „spon-
sora“, þótt hún sé ekki besta tenniskona
heims. Þótt hún hafi ekki unnið stórmót í
langan tíma hefur hún ekki undan að hafna
mörg hundruð milljóna króna samningum
sem fyrirtæki viija gera við hana. Af hverju?
spyrja sumir.
Jú, hún er falleg, kemur vel fyrir og þykir
góð ímynd tennisíþróttarinnar — þótt hún
sé ekki best. Hún er glæsileg, lifir heilbrigðu
lífi og er viðmótsþýð, sem sagt draumur
hvers stórfyrirtækis. Enginn annar íþrótta-
maður í heiminum neitar eins mörgum til-
boðum og hún þótt ótrúlegt megi virðast.
Umboðsaðili hennar hefur vart undan að
neita tilboðum og hann hafnar mun fleiri
A HEIMAVELLI
Gabriela Sabatini.
tilboðum en hann tekur. Tilboð, sem hljóða
upp á minna en 1 milljón dollara á ári (55
milljónir íslenskra króna), eru ekki einu
sinni tekin alvarlega!! Argentínska tennis-
stjarnan er svo ánægð með peningaflæðið
að hún nær ekki brosinu af andlitinu áður en
hún innleysir ávísanirnar í banka.
Tennisleikarar eiga mesta gróðamögu-
leika allra íþróttamanna að golfleikurum og
akstursíþróttamönnum undanskiidum. Sé
tennisleikarinn fallegur að auki, eins og Sa-
batini er, getur hann fengið alla þá peninga
sem hann langar í. Auðvitað skiptir það
miklu máli að vinna stórmótin í tennis, út á
það gengur íþróttin, en verðlaunaféð, sem
er í boði, er skiptimynt í augum Gabrielu
Sabatini.
SAMMNGAR SABATINI
* PEPSI COLA. Samningur til ársins 1994. Fjárhæð: Um 1 milljarður ísl. kr.
* FUJI FIMLS & CAMERAS. Þriggja ára samningur. Fjárhæð: 1 milljarður.
* SERGIO TACCHINI Klæðnaður. Fimm ára samningur. Fjárhæð: 1.235 milljónir.
* YAMAHA tennisspaðar. Fimm ára samningur: Fjárhæð: 275 milljónir.
* GABRIELA SABATINI ilmvatn. Fjárhæð: 137 milljónir fyrir hvert ár sem sala fer fram.
* JAPANSKIR STRENGIR í tennisspaðana. Fjárhæð: 275 milljónir á ári.
* LONGINES armbandsúr. Þriggja ára samningur. Fjárhæð: 275 milljónir.
* RAY-BAN sólgleraugu. Sex ára samningur. Fjárhæð: 825 milljónir.
* SEAT bílar til notkunar í Evrópu. Fjárhæð: 55 milljónir á ári.
* AEROLINES ARGENTINAS: Saga-Class farseðlar um allan heim. Fjárhæð: 51 milljón á ári.
* ÁRLEGIR BÓNUSAR FYRIR SIGRA Á GRAND SLAM: Fjárhæð: 55 milljónir frá hverju
fyrirtæki fyrir hvern sigur á Grand Slam.
Tekjur á ferlinum að árinu 1991 meðtöldu, eingöngu vegna tennisleiks: 265 milljónir
íslenskra króna.
* AUGLÝSINGATEKJUR SAMTALS: 5.128.000.000. Eða: Fimm milljarðar, eitt hundrað
tuttugu og átta milljónir. Skyldi stúlkan vera á lausu??
56