Íþróttablaðið - 01.12.1992, Page 59
AHEIMAMI
ÞÁ VEISTU ÞAÐ!
1. Áður en knattspyrnumaður tekur horn-
spyrnu fjarlægir hann hornstöngina til þess
að eiga auðveldara með að taka spyrnuna.
Er þetta leyfilegt?
NEI! Það er ekki leyfilegt að fjarlægja
hornstöngina þótt það sé stundum auð-
veldara að taka hornspyrnu án hennar.
2. Annar línuvörðurinn fær boltann í höf-
uðið og þarf að yfirgefa leikvanginn til þess
að fá aðhlynningu. Getur dómarinn haldið
leiknum áfram, aðeins með öðrum línuverð-
inum?
JÁ! En dómarinn verður að vera stað-
settur þannig að hann sé í góðri aðstöðu
til þess að sjá hvort leikmenn séu rang-
stæðir eða réttstæðir.
3. Leikmaður rennur til og snertir boltann
með höndunum í fallinu. Á að dæma auka-
spyrnu á leikmanninn?
NEI! Dómari dæmir aðeins auka-
spyrnu þegar leikmaður handleikur
boltann VIUANDI.
GÓÐURVIÐ
FJÖLSKYLDUNA
STEVE BULL, landsliðsframherjinn hjá
Wolves, gleymir ekki fjölskyldunni sinni þótt
hann sé atvinnumaður í knattspyrnu. Hann
Steve Bull.
tók fram budduna og borgaði fyrir afnot af
einni af glæsilegu áhorfendasvítunum á
Molineux, heimavelli Wolves, fyrir keppnist-
ímabilið. Þar getur fjölskyldan horft á strák-
inn, slakað á og látið stjana við sig.
amans er meirihluti vöðva hans og þeir
þurfa vitanlega sínar æfingar. Vöðvarnir
rýrna, beinin verða veikari fyrir og þeim er
hættara við að brotna en beinum vel þjálf-
aðs íþróttamanns.
Tíu ára rannsóknir á skokkurunum sýndu
fram á enga vöðvarýrnun í fótum en 2 kg.
vöðvarýrnun í efri hiuta líkamans.
Líkamsrækt er svarið sem þú leitar að.
Með því að lyfta lóðum byggirðu upp styrk
og vöðvamassa, þú verður alhliða sterkur
og lítur vel út í þokkabót. Það styrkir hjartað
sömuleiðis einstaklega mikið. Sérfræð-
ingarnir segja að æskilegast sé að stunda
eróbikk með „líkamsræktarívafi" — þannig
að menn lyfti líka lóðum í eróbikktímum.
Slíkar æfingar geta lækkað kólesteról í blóð-
inu og minnkað blóðþrýsting.
(Þýtt og endursagt úr Muscle & Fit-
ness)
EPLIERU NAUÐSYNLEG
„An apple a day, keeps the doctor away.“
Þessi fyllyrðing, að epli á dag haldi læknin-
um í burtu, á sannarlega við rök að styðjast
ef marka má almennt viðurkenndar niður-
stöður úr rannsóknum sérfræðinga í nær-
ingarfræði. Það er staðreynd að þeir, sem
borða mikið af ávöxtum og grænmeti, lifa
lengur en þeir sem borða fitumikla fæðu.
Rannsóknir hafa sýnt fram á að C- og E-
vítamín og þráavarnarefni í ávöxtum og
grænmeti verja frumur líkamans skemmd-
um vegna ýmissa eiturefna sem eru víða.
Niðurstöður margvíslegra rannsókna sýna
að þeir, sem borða ávexti og grænmeti, fá
síður krabbamein en þeir sem láta þetta
góðmeti eiga sig. (M&F)
BYGGIÐ UPP VÖÐVANA
og hjartað fylgir með
„Heilsusérfræðingar“ hafa lofað eróbikk
æfingar síðustu tvo áratugi; lagt áherslu á
mikilvægi þess að skokka, hjóla, synda og
svo framvegis til þess einfaldlega að hafa
heilbrigt hjarta. Að undanförnu, vegna ný-
legra rannsókna, hafa sömu sérfræðingar í
heilsurækt dregið úr þessum fullyrðingum.
Svo virðist sem æfingar, sem reyna næstum
eingöngu á lungun og hjartað, styrki við-
komandi ekki mikið að öðru leyti. Þegar þú
verður eldri verður þú iíka veikari — nema
þú hugir sérstaklega að fyrirbyggjandi að-
gerðum.
Æfingar, sem fela í sér viðnám, eru bestu
fyrirbyggjandi aðgerðirnar. Eróbikk æfingar
eru vissulega góðar fyrir hjartað og lungun
og sömuleiðis, skokk, sund og hjólreiðar en
þrátt fyrir þessa íþróttaiðkun er efri hluti
líkamans enn veikbyggður. í efri hluta lík-
MEÐ ALLT Á HREINU
Á dögunum brugðu þrír íslenskir kylf-
ingar sér til Skotíands til þess að spila
golf. Forgjöf þeirra var 10,17 og 18 sem
er í raun ekki í frásögur færandi. Gamali
kylfingur varð á vegi þeirra og þegar
hann var búinn að sjá hvernig þeir báru
sig að sagðist hann langa til þess að geta
sér til um forgjöf þeirra. Það var sjálfsagt
mál og þótt hann hefði aðeins séð ís-
lendingana slá nokkur högg skeikaði
aðeins 1 eða 2 til eða frá þegar hann gat
sér til um forgjöfina. Hann bauðst tii
þess að leiðbeina þeim og fór svo vel á
með gamlingjanum, sem var fyrrum at-
vinnumaður, og fslendingunum að þeir
vörðu næstum heilum degi saman. is-
lendingarnir töldu sig margs fróðari um
íþróttina og má reikna með að forgjöf
þeirra iækki verulega næsta sumar!
59