Íþróttablaðið - 01.12.1992, Blaðsíða 63
„Við eigum ekki að
þurfa að tapa leik í
vetur," segir Hanna
Kjartansdóttir leik-
maður ÍBK.
flokki nema hvað ég hafði komið
inná í einum leik árið áður."
— Finnurðu fyrir einhverjum sér-
stökum siguranda yfir Keflavík í
kört'uboltanum?
„Metnaðurinn er gríðarlega mikill
hjá félaginu og sigurviljinn einstakur.
Þegar lið er einu sinni komið á sigur-
braut er erfitt að stöðva það."
— Heldurðu að þið farið taplausar
í gegnum mótið?
„Já, ég reikna með því. Við erum
búnir að sigra með um 20 stiga mun í
öllum leikjunum og við eigum ekki
að þurfa að tapa leik í vetur."
— Nú leikur þú líka með 2. flokki
eins og reyndar sex aðrar stelpur úr
FÆRI í HAUKA,
EF . . .
meistaraflokki IBK — hvernig hefur
ykkur vegnað?
„Við töpuðum fyrir Tindastóli í
bikarkeppninni um daginn og erum
þvf úr leik. Annars hefur okkur geng-
ið vel í „túrneringunum" en Tinda-
stóll virðist vera með sterkasta liðið í
2. flokki. Stelpurnar á Sauðárkróki
hafa haldið vel hópinn undanfarin ár
og eru virkilega góðar. Haldi þær
áfram á sömu braut verða þær með
topplið í 1. deild eftir tvö ár."
— Þú varst valin sú besta í fyrra —
hvað veldur? Æfir þú öðruvfsi en aðr-
ar stelpur?
„Það held ég ekki. Þegar ég var
yngri lék ég mér oft með eldri strák-
um íkörfubolta og þáskólaðistégvel
til. Fyrir síðasta keppnistímabil varég
næstum því á hverjum degi í körfu-
bolta í skólanum og þess vegna hef
ég bætt við mig. Að auki var ég með
frábæra þjálfara í fyrra, Ingvar Jóns-
son. Hann er besti þjálfari sem ég hef
haft."
— Af hverju valdirðu körfubolta?
„Ég er búin að æfa flestar íþrótta-
greinar sem til eru en körfuboltinn
varð ofan á þegar upp var staðið. Ég
tók mér reyndar tvívegis frf frá körf-
unni en núna sé ég ekki eftir því að
hafa valið þessa íþrótt."
— Hvað áttu marga landsleiki?
„Ég er búin að spila 5 A-landsleiki
en ég veit ekki hversu marga ungl-
ingalandsleiki ég á að baki."
— Hvert er stigametið þitt í leik?
„Með meistaraflokki Hauka skor-
aði ég 32 stig gegn ÍS en með 2. flokki
hef ég náð að skora fleiri en 50 stig."
— Hvernig stóð á því að þið urðuð
bikarmeistarar í fyrra en ekki ÍBK?
„Við vorum með mjög sterkt lið
eins og Keflavík en við tvfefldumst
fyrir leikinn því allir voru búnir að
spá ÍBK sigri. Ég hef aldrei orðið ís-
landsmeistari en vonandi verður
fljótt breyting þar á."
— Finnst þér einhver einn and-
stæðingur öðrum erfiðari?
„Ætli það sé ekki Guðbjörg Norð-
fjörð sem var með mér í Haukum en
leikur nú með KR. Þegar maður spilar
á móti henni finnur maður hvað hún
er virkilega góð."
— Er einhver von til þess að
Haukaliðið lifni við að nýju?
„Já, það er ekki útilokað. Ég væri
alveg til í að við Haukastelpurnar
myndum sameinast að nýju en það
kemurekki til nema einhverjar breyt-
ingar verði á stjórninni hjá Haukum.
Þótt ég segi þetta líkar mér frábær-
lega í Keflavík en samt myndi maður
varla skorast undan merkjum ef
Haukastelpurnar vildu byrja upp á
nýtt."
— Hver er þín sterkasta hlið sem
leikmaður?
„Ég er ágætlega hittin en hins veg-
ar slök sem varnarmaður. Sú hlið er
reyndar að lagast en ég nennti eigin-
lega ekki að spila í vörn. Tæknin hjá
mér er ágæt en samt nýtist hún ekki
eins í meistaraflokki og hún gerði í
yngri flokkunum."
— Hver er þróunin í körfunni, að
þínu mati?
„Hún er mjög jákvæð því mun
fleiri félög hafa sterkum liðum á að
skipa en áður. Hins vegar finnst mér
að það mættu vera reglubundnar
landsliðsæfingar á keppnistímabil-
inu."
— Hvað finnst þér um athyglina
sem þið stelpurnar fáið miðað við
strákana?
„Maður þarf yfirleitt að leita með
smásjá að umfjöllun um kvennaleik-
ina eða að úrslitum í blöðunum á
sama tíma og flennistórar myndir
birtast af strákunum ásamt ýtarlegri
frásögn. Auðvitað er þetta leiðinlegt
en það þýðir ekkert að kvarta."
— Hefðir þú viljað vera strákur?
„Ég vildi það þegar ég var yngri en
núna er ég mjög ánægð með það að
vera stelpa."
— Hvað ætlarðu að verða þegar
þú ert orðin stór — stærri en 180 sm?
„Þegar ég er orðinn stúdent frá
Flensborg stefni ég að því að komast í
íþróttaskólann á Laugarvatni."
63