Íþróttablaðið - 01.12.1992, Page 68
íslands- deildar-
bikarmeistarar FH í handbolta veturinn 1991-'92
m 3T ItClt m
ÉfiP’ ■ i *" ^ • *;■ m HPb ,t ■L - Wt T' A L jtf 1
HANDBOLTI: KEPPNIN í 1. DEILD KARLA HÁLFNUÐ
FH MEISTARI?
Hvað hefur komið á óvart?
Hvernig hefur handboltinn verið það sem af er?
Hvað gerist í seinni hlutanum?
Hvaða möguleika eiga Valur
og FH í Evrópukeppninni?
Texti: Haraldur Ingólfsson
Þegar þetta er ritað er 10 umferð-
um lokið í deildarkeppninni og útlit
fyrir jafnt og spennandi mót. Nú,
þegar þessi grein kemur fyrir augu
lesenda hafa verið leiknar tvær um-
ferðir í viðbót og kann eitthvað að
hafa breyst á þeim tíma. Athyglisvert
er að jafnmargir leikir hafa unnist á
útivelli og heimavelli. Línur hafa
skýrst nokkuð en mótið er langt frá
því að vera búið. Ef spádómar þjálf-
ara og leikmanna, sem birtir voru í 5.
tbl. ÍÞRÓTTABLAÐSINS, eru bornir
saman við stöðuna í deildinni eftir
10. umferð er ekki margt sem kemur
á óvart. Þjálfararnir röðuðu sömu
fimm liðunum í efstu sætin og þar
eru nú. Það lið, sem mest hefur kom-
ið á óvart miðað við spá þjálfaranna,
er HK sem er mun neðar en þeir
reiknuðu með. Þór og ÍR eru ofar en
þjálfarar og leikmenn gerðu ráð fyrir
en það er eðlilegt þegar um lið, sem
komu upp úr 2. deild, er að ræða því
þjálfarar og leikmenn þekkja þau
ekki eins vel og önnur lið. Leikmenn
spáðu Fram 5. sæti en eins og staðan
er í dag er það fjarlægur draumur hjá
Frömmurum.
68