Íþróttablaðið - 01.12.1992, Page 69
SPENNA TIL SÍÐASTA
LEIKS
Aðeins eitt lið, Valur, er taplaust
eftir 10 umferðir. Það kemur varla á
óvart að Valsmenn skuli vera á
toppnum. Þareru innanborðs reyndir
landsliðsmenn í bland við tæplega
tvítuga stráka sem nú þegar hafa stig-
ið sín fyrstu spor með landsliðinu.
Fast á hæla Vals koma FH, Selfoss og
Stjarnan. Kristján Arason hefur á sín-
um stutta þjálfaraferli náð hreint
ótrúlegum árangri með lið F.H. FH-
ingar hafa að vísu nú þegar tapað
tveimur leikjum sem er jafnmikið og í
allri deildarkeppninni í fyrra. Stjarn-
an og Selfoss eru á „sínum" stað en
meiðsli gætu komið illa við þessi lið
því keyrt er á tiltölulega fáum leik-
mönnum. Þessu til stuðnings má
benda á að sex leikmenn Selfyssinga
hafagert257 mörkaf261 marki liðs-
ins þegar þetta er ritað og sex leik-
menn Stjörnunnar hafa gert 245 af
255 mörkum liðsins.
Haukar hafa sterka einstaklinga
með Petr Baumruk, Pál Ólafsson og
Halldór Ingólfsson sem atkvæða-
mestu menn. Gengi þeirra hefur
verið nálægt því sem búast mátti við
en liðið hefur verið svolítið brokk-
gengt. Víkingar, sem hafa átt sterk lið
á undanförnum árum ogeru vanir því
að vera í toppbaráttunni, hafa átt
heldur misjöfnu gengi að fagna í
haust. Víkin hefur ekki reynst þeim
eins sterkur heimavöllur og vonir
hafa eflaust staðið til. Víkingar misstu
þónokkuð af mannskap fyrir þetta
tímabil og þá hefur Bjarki Sigurðsson
verið meiddur og það munar um
minna. Nýliðarnir í deildinni, Þór og
ÍR, sem að vísu hafa spilað áður í 1.
deild, eru um miðja deild með helm-
ing mögulegra stiga. ÍR-ingar gát'u
tóninn strax í fyrstu umferð með góð-
um sigri á FH Barátta og leikgleði
hafa verið aðalsmerki þeirra. Þórsur-
um hefur ekki gengið sem skyldi á
heimavelli en hafa bætt það upp á
útivelli.
í neðsta hluta deildarinnareru KA,
ÍBV, HK og Fram. Þetta eru allt lið
sem hafagetu til aðgera betur en ekki
geta allir unnið. KA-menn hafa ekki
riðið feitum hesti frá útileikjum sín-
um, náðu aðeins 2 stigum úr 6 leikj-
um. Vestmannaeyingar eru frægir
fyrir allt annað en að gefast upp og
Einar Þorvarðarson hefur náð glæsilegum árangri með Selfossliðið en það
gæti hæglega orðið Islandsmeistari.
hefur löngum verið haft á orði að
erfitt sé að sækja þá heim en þrátt
fyrir það hafa þeir aðeins náð einu
stigi á heimavelli. Mikill hugur var í
HK-mönnum í haust og fékk félagið
til liðs við sig marga nýja leikmenn.
Það virðist ganga erfiðlega að búa til
liðsheild úr þessu samansafni leik-
manna. Forráðamenn félagsins hafa
kannski gleymt því eins og svo margir
aðrir að það besta kemur innan frá
með þolinmæði og þrautseigju.
Frammarar hafa frá byrjun vermt
botnsætið þrátt fyrir að vera með
ungt og efnilegt lið og eiga erfitt verk-
efni fyrir höndum.
HNÍFJAFNT MÓT -
ALLIR GETA TEKIÐ STIG
AF ÖLLUM
ÍÞRÓTTABLAÐIÐ spjallaði stutt-
lega við nokkra þjálfara um þróunina
í haust og horfurnar framundan. Þor-
björn Jensson, þjálfari Vals sagði að
góður handbolti hafi verið spilaður í
haust og að liðin kæmu mjög vel
undirbúin til keppni. „Mótið hefur
verið og verður hnífjafnt og allir geta
tekið stig af öllum. Það er ekki hægt
að flokka I ið sem góð eða léleg þegar
maður fer í þau."
— Nú hafið þið Valsmenn spilað
Atli Hilmarsson vermir botnsætið í
deildinni með liði sínu Fram.
góðan varnarleik og verið með mark-
vörsluna í lagi en sóknarleikurinn
hefur kannski ekki verið sem bestur.
Þið hafið fengið fá mörk á ykkur en
jafnframt skorað fá mörk. Þurfið þið
ekki að bæta sóknarleikinn? „Við
settum okkur það markmið fyrir vet-
urinn að vera með góða vörn og góða
markvörslu. Við höfum verið að spila
góða vörn og þá þurfa menn að
standa lengi í vörninni þannig að
69