Íþróttablaðið - 01.12.1992, Page 70
sóknirnar verða kannski ekki eins
margar fyrir vikið. Vissulega getum
við bætt sóknarleikinn en á meðan
það nægir okkur að skora þetta fá
mörk til að vinna leiki þá er ég
ánægður."
— Hvað heldur þú um möguleika
ykkar í Evrópuleikjunum í janúar?
„Et'við þurfum að tapa úti væri gott
að tapa ekki með meiri mun en 3
mörkum en með fimm marka tapi
eigum við möguleika." Aðspurður
um ungu strákana í liðinu og hvort
þeir myndu standast pressuna benti
Þorbjörn á að Ólafur Stefánsson og
Dagur Sigurðsson væru komnir með
mikla reynslu þótt þeir væru ekki
nema 19 ára. Þeir hefðu spilað
Evrópuleikina í fyrra, m.a. í Barce-
lona. Hann kvaðst treysta þeim t'ull-
komlega í þetta verkefni. „Þessir
ungu strákar eru auðvitað að gera
fleiri mistök en eldri og reyndari leik-
menn en það er alveg ótrúlegt hvað
þeir geta þetta ungir ef maður miðar
til dæmis við sjálfan sig á þessum
aldri."
DEILDIN STERKARI EN
ÁÐUR
Jóhann Ingi Gunnarsson, þjálfari
Hauka, kvað væntingar, sem gerðar
hefðu verið til deildarkeppninnar,
hafa staðist og sagði hann deildina
vera sterkari en nokkru sinni áður.
„Þau lið, sem reiknað var með að
myndu skera sig úr, hafa gert það en
það tók þau lengri tíma en ég bjóst
við. Það er eðlilegt að þessi lið séu
efst því þar eru landsliðsmennirnir.
Það eru helst Fram og HK sem ekki
hafa staðið undir væntingum. Annars
er athyglisvert hve mörgum leikjum
hefur lokið með útisigri. Dómgæslan
hefur talsvert verið gagnrýnd en þó
má benda á jákvæðan punkt í því
sambandi að hér eru ekki til svokall-
aðir heimadómarar. Dómararnir
þora að dæma þó svo þeir geri auð-
vitað stundum mistök. Hér geta lið
farið í útileiki og átt raunhæfan
möguleika enda sést það á úrslitun-
um. Flestir leikir hafa verið feikilega
jafnir og spennandi þó einn og einn
vinnist með miklum mun. Þessi fjög-
ur lið, sem eru efst, verða það áfram
en það ræðst ekki fyrr en í síðustu
umferðunum hvaða lið komast áfram
og eins hvaða lið falla."
— Haukaliðið virðist hafa verið
Stuðningsmenn Selfoss hafa sýnt glæsilega taka á leikjum og setja skemmti-
legan svip á íslandsmótið.
fremur óstöðugt það sem af er. Eruð
þið ekki með of reyndan mannskap
til að slíkt eigi að geta gerst?
„Jú, vissulega má kannski segja
það. Við höfum reynda garpa en okk-
ur vantar Haukaleikmenn með al-
þjóðlega reynslu, þ.e. heimamenn í
Haukum. Mérfinnstvanta betri unga
leikmenn í félagið og mér sýnist vera
töluvert langt í þá. Þeir koma ekki
upp á allra næstu árum. Eg hef verið
einna óhressastur með það hvað lið-
ið hefur verið óstöðugt. Eg tók við
liðinu fyrir þetta tímabil og þarf auð-
vitað ákveðinn tíma til að móta liðið.
Annars finnst mér þáttur þjálfara oft
vera gerður of mikill í umfjöllun um
handboltann. Þetta er hópíþrótt og
það er margt sem þarf að hjálpast að
til að hægt sé að ná árangri."
— Nú varst þú þjálfari í Þýska-
landi, — hvernig metur þú mögu-
leika íslensku liðanna gegn þeim
þýsku í Evrópukeppninni?
„Það er tvennt sem mun skipta
meginmáli í útileikjunum. Annars
vegar það hvaðan dómararnir koma
og svo hins vegar hvernig ungu leik-
mennirnir muni þola álagið fyrir
framan 5000 blístrandi áhorfendur.
Þjóðverjar eru duglegir við að gera
mjög vel við dómara og þeir eru
leystir út með góðum gjöfum. Essen-
liðið hefur verið framarlega í Evrópu
síðan 1986 og er orðið rútínerað í
KA, undir stjórn Alfreðs Gíslasonar,
hefur gengið illa á útivöllum og er í
basli í deildinni.
70