Íþróttablaðið - 01.12.1992, Blaðsíða 71
Deildin er mun jafnari núna en áður og mörg lið eiga möguleika á að blanda sér í toppbaráttuna. Ekki bara FH og
Selfoss sem eru á myndinni.
þessu en það er líka orðið svolítið
aldrað þannig að meiðsli gætu sett
strik í reikninginn. Það er spilað mjög
þétt í þýsku Bundesligunni, álagið er
mikið og rosaleg ferðalög sem fylgja
þessu. Þetta verður spurning um
hversu heppnir þeir verða með
meiðsli. Þoli Valsmenn stemmning-
una á útivelli og verði dómarar ekki
óhagstæðir eiga þeir góða mögu-
leika. FH-ingar eru orðnir sjóaðri en
Valsmenn en munurinn á andstæð-
ingum þeirra og Valsmanna er sá að
Wallau Massenheim er nýlega kom-
ið í fremstu röð og leikmennirnir eru
ennþá hungraðir í árangur. Ég á von á
því að bæði íslensku liðin tapi úti-
leikjunum en vinni heima þannig að
þetta er spurning um markamun. Ef
liðin tapa úti með 5 marka mun eða
minni eru möguleikarnir raunhæfir
en allt umfram það gæti orðið erfitt."
HÖFUM TAPAÐ Á EIGIN
MISTÖKUM
Atli Hilmarsson er þjálfari hjá
Fram en Frammarar hafa vermt botn-
sætið alveg frá 1. umferð.
— Atli, í fyrra var Fram-liðið ungt
og efnilegt, nýkomið upp úr 2. deild
og náði í úrslitakeppnina. Nú hafa
bæst við menn auk þess sem ungu
mennirnir eru reynslunni ríkari en
samt virðist fátt ganga upp hjá ykkur.
Hvað veldur?
„Deildin er einfaldlega mjög sterk
og við höfum ekki náð að sýna okkar
rétta andlit. Við lentum reyndar í því í
haust að spila fyrstu tvo leikina við
Þór og ÍR, liðin sem komu upp úr 2.
deild. Það er alltaf erfitt. Þetta hefur
ekki gengið sem skyldi hjá okkur.
Þetta eru fyrst og fremst okkar mistök
en ekki það að hin liðin séu svona
miklu betri. Einnig má nefna það að
Gunnar Andrésson hefur verið
meiddur í allt haust. Hann er mikil-
vægur fyrir liðið án þess þó að það
skipti öllu máli fyrirgengi liðsins. Það
erofsnemmtað spáfyrirum lokaröð-
ina núna en þetta verður erfitt hjá
okkur. Einsogstaðanerídag verðum
við að reyna að vinna hvern leik, sem
við spilum, og sjá svo bara til hvert
það skilar okkur þegar upp verður
staðið í vor. Frumatriði núna er að
forðast fall og svo sjáum við til með
annað."
MEIRI BREIDD EN ÁÐUR
KA er eitt af þeim liðum sem ætti
að geta verið ofar en raunin er ef
miðað er við þann mannskap sem
félagið hefur. Alfreð Gíslason er nú á
sínu öðru ári sem þjálfari KA.
— Alfreð, þið hafið mannskap til
að gera betur, ekki rétt?
„Jú, ég held það. Það hafa að vísu
orðið miklar mannabreytingar hjá
okkur tvo vetur í röð og er það
kannski skýringin á því hvað við byrj-
um illa."
— Ykkur hefur gengið illa á úti-
velli, leggjast ferðalögin illa í ykkur?
„Já, það er rétt að okkur hefur
gengið illa á útivöllum. Þetta var
svona ífyrra líka. Við unnum tvo leiki
og gerðum tvö jafntefli á útivöllum í
fyrra. Ég stefni á að bæta þetta og ná
fleiri stigum úr útileikjunum. Staðan í
deildinni á eftir að breytast og ég á
eftir að sjá lið sem eru ofarlega núna
dala þegar á líður. Þetta á eftir að
breytast mikið. Við förum í úrslita-
keppnina, það er ekkert vafamál."
— Hvað finnst þér um handbolt-
ann í haust?
„Deildin er að verða jafnari með
hverju árinu og í heildina er orðinn
jafnari mannskapur án þess þó að
þeir bestu séu að verða lélegri. Það
eru komnir mun fleiri góðir leikmenn
en áður og breiddin hefur aukist
nijög mikið. Það er að koma mikið
upp af góðum strákum."
71