Íþróttablaðið - 01.12.1992, Qupperneq 73
EINN STOLINN:
Frjálsíþróttamaðurinn: Ekki skil ég í ykk-
ur knattspyrnumönnum. Þið eruð 22 á af-
mörkuðum velli, allir að elta sömu tuðruna
og um leið og þið náið henni sparkið þið
henni í burtu!
Knattspyrnumaðurinn: Það er nú ekkert
maður, þú ert nú síhlaupandi ... á eftir
engu!!!
ÁSGEIR MEÐ OLD-BOYS
Fastlega má búast við því að Ásgeir Sigur-
vinsson, nýráðinn þjálfari meistaraflokks
Fram í knattspyrnu, leiki með old-boys liði
Fram næsta sumar. Geri hann það má
reikna með að metaðsókn verði á þá leiki
sem old-boys lið Fram spilar því væntanlega
hafa margir áhuga á því að sjá Ásgeir leika
knattspyrnu. Hann hefur örugglega misst lít-
ið af hæfileikunum þótt úthaldið sé kannski
ekki upp á það besta. Gárungarnir segja að
einhver félög komi til með að selja inn á
old-boys leikina þegar Fram kemur í heim-
sókn til þess að fá væna fúlgu inn í að-
gangseyri.
MEÐ RÚTU TIL EYJA
Hann lék fótbolta með Þrótti, var yfirleitt
dálítið utangátta þótt hann væri góður leik-
maður og lenti oft í ýmsum vandamálum.
Framundan var leikur gegn Vestmannaey-
ingum úti í Eyjum og skildu menn ekkert í
því af hverju vinurinn lét ekki sjá sig úti á
flugvelli. Þróttarar fóru án þessa utangátta
leikmanns til Eyja því hann mætti aldrei —
en hann sat hins vegar niðri á Umferðamið-
stöð og skildi ekkert í því hvað allir voru
seinir í því!
FAÐMLAG GETUR GERT
KRAFTAVERK
Sérfræðingar halda því fram að faðmlag
og snerting við þann, sem manni þykir vænt
um, geri það að verkum að líkamlegt og
andlegt stress minnkar og fleira í lífinu verð-
ur jákvæðara. Rannsóknir, sem voru gerðar
á dýrum, sýndu að þau dýr, sem fengu at-
hygli og var klappað reglulega, voru með
lægri blóðþrýsting og lifðu lengur en þau
dýr sem fengu enga athygli og var aldrei
klappað. Það er ljóst að þetta er eins með
mannskepnuna.
Faðmlag ætti að vera hluti af hverju sam-
bandi. Það þykir sannað að fólk, sem er oft
faðmað eða snert, þarf síður að leita til
læknis vegna ýmissa kvilla. Menn verða af-
slappaðri séu þeir faðmaðir og snertir og
hvers vegna ekki að lengja líf hver annars
með því að faðmast reglulega? (M&F)
Höfuðverkur getur verið ansi hvimleiður eins og allir vita. Næst þegar þú færð höfuðverk
skaltu huga að því í hvaða stellingu þú ert. Til þess að forðast höfuðverk í vinnunni skaltu
hafa eftirfarandi í huga — svo framalega sem þú vinnur á skrifstofu:
* FÆTURNIR. Hvílirðu fæturna vel á gólfinu þegar þú situr?
* MJOBAKIÐ. Siturðu ekki örugglega beinn þannig að mjóbakið er þétt upp við stólinn?
* HÖFUÐIÐ. Heldurðu því ekki stöðugu svo að þú sért ekki að skekkja hálsinn?
* AXLIRNAR. Eru þær afslappaðar?
Vitanlega getur röng líkamsstaða líka valdið verkjum í baki, hálsi og öxlum. Réttið úr
ykkur! (M&F)
FIMLEIKAFRÉTTIR
Dómaranámskeið í þolfimi
N^iverið sótti Jónína Benediktsdóttir
dómaranámskeið í Stokkhólmi fyrir hönd
Fimleikasambandsins og var þar meðal
kennara Yvonne Lin, formaður Þolfimisam-
bands Evrópu og tækninefndar alþjóðaþol-
fimisambandsins. Yvonne Lin var hér á
landi um miðjan september sl. og hélt þá
mjög vel sótt þolfiminámskeið á vegum FSI
ásamt Michail Ivlev, landsliðsþjálfara Rússa
í þolfimi.
Jónína Benediktsdóttir, sem er vel kunn
öllum þolfimiunnendum hér á landi fyrir
mikið og gott brautryðjendastarf í þessari
grein, mun á næstunni halda dómaranám-
skeið á vegum Fimleikasambandsins en
mikill áhugi er á því hjá FSÍ að koma hér upp
vel menntuðum dómurum og þjálfurum í
þolfimi.
Trompmót í Osló
Um miðjan nóvember var haldið Norður-
landamót, NM Trump í Osló, í vinsælli
keppnisgrein í fimleikum sem hér kallast
Trompfimleikar. Mótið er hópkeppni, bæði
fyrir konur og karla, og keppa þau á sömu
áhöldum — gólfi, hesti, trambólíni og dýnu.
Að þessu sinni var íslenskur dómari,
Sesselja Járvelá, valinn yfirdómari mótsins í
kvennagreinum, en dæmt er eftir sömu
keppnisreglum bæði fyrir konur og karla.
Sigruðu Svíar á þessu móti, bæði í kvenna-
og karlaflokki. Norðurlandamótið í þessari
grein verður haldið á íslandi árið 1993 en
það er haldið árlega til skiptis á Norðurlönd-
unum.
73