Íþróttablaðið - 01.12.1992, Blaðsíða 76
13 í kjöri og fóru kosningar þannig:
Katrín Gunnarsdóttir 185 atkv.
Lovísa Einarsdóttir 152 -
Hermann Sigtryggsson 149 -
Hannes Þ. Sigurðsson 137 -
Árni Þór Árnason 128 -
Hafsteinn Pálsson 118 -
Jón Ármann Héðinsson og Sig-
urður Jóakimsson létu af störfum í
framkvæmdastjórn og eru þeim
þökkuð mikil og góð störf í stjórninni.
Heiðursfélagi ÍSÍ
Á 61. Iþróttaþingi ÍSÍ var Kjartan
Bergmann Guðjónsson kosinn heið-
ursfélagi ISI. Kjartan er fyrrverandi
framkvæmdastjóri ÍSÍ og hefur starf-
að mikið að málefnum glímunnar.
Ellert B. Schram sæmir Kjartan
Bergmann heiðursmerki ÍSÍ, 1.
gráðu.
Nýtt húsnæði tekið í notkun
Þann 25. október var nýbygging ISI
í Laugardalnum (Hús nr. 4) formlega
tekin í notkun. Friðjón B. Friðjóns-
son, form. byggingarnefndar, rakti
sögu byggingarinnar og afhenti því
næst Ellert B. Schram, forseta ISI, lyk-
ilinn að henni. Ellert þakkaði bygg-
ingarnefndinni fyrir vel unnin störf og
afhenti síðan forystumönnum við-
komandi sambanda og samtaka
lykla að nýja húsnæðinu þeirra.
Þeir aðilar sem verða í Húsi nr. 4
eru:
Körfuknattleikssamband íslands
Fimleikasamband Islands
Frjálsíþróttasamband íslands
Handknattleikssamband íslands
Friðjón B. Friðjónsson, form. bygg-
ingarnefndar, afhendir Ellert B.
Schram, forseta ÍSÍ, lyklana að hinni
nýju byggingu.
Skíðasamband íslands
Blaksamband íslands
Borðtennissamband Islands
Badmintonsamband Islands
Karatesamband íslands
Keilusamband íslands
Lyftingasamband fslands
Skotsamband íslands
Tennissamband íslands
Hestaíþróttasamband Islands
Sundsamband íslands
Gngmennasamband Kjalarnes-
þings
Samtök íþróttafréttamanna
Auk þessara aðila er íslensk Get-
spá flutt með skrifstofu sína á 2. hæð
hússins.
Brjóstmynd
Áður en þingstörf Iþróttaþings hóf-
ust að nýju sunnudaginn 25. okt. sl.
var afhjúpuð brjóstmynd af Sveini
Björnssyni, fyrrverandi forseta ISI,
sem staðsett er í anddyri nýbygging-
arinnar (Húsi nr. 4) í Laugardal.
Sveinn var formaður byggingar-
nefndar frá upphafi og var aðal hvata-
maður þess að þessi bygging var
byggð. Það var ekkja hans, Ragnheið-
ur G. Thorsteinsson, sem afhjúpaði
brjóstmyndina að viðstöddu miklu
fjölmenni.
Ljósmyndasýning
f tengslum við íþróttaþing ÍSÍ1992
og 80 ára afmæli sambandsins var
haldin vegleg Ijósmyndasýning. Þessi
sýning var umgjörð íþróttaþingsins
og setti glæsilegan svip á það. Mynd-
irnar á sýningunni voru frá mörgum
greinum íþrótta og frá hinum ýmsu
tímum. Það var Ljósmyndasafn
Reykjavíkur í samvinnu við ISI sem
hafði veg og vanda að uppsetningu
þessarar sýningar. Sýningin stóð yfir í
nokkrar vikur eftir að íþróttaþingi lauk
og hafa eflaust margir komið og
skoðað hana.
Katrín ritari ÍSI
Á fyrsta fundi nýkjörinnar fram-
kvæmdastjórnar ÍSÍ var Katrín Gunn-
arsdóttir kosinn ritari stjórnarinnar.
Þetta er í fyrsta skipti sem kona gegnir
embætti í framkvæmdastjórn ÍSÍ frá
upphafi.
BTÍ 20 ára
Borðtennissamband íslands varð
20 ára 12. nóv. sl. Af því tilefni var efnt
til kaffisamsætis og forystumönnum
sambandsins á þessu tímabiii boðið.
Við það tækifæri sæmdi Ellert B.
Ragnheiður G. Thorsteinsson afhjúpar brjóstmyndina af manni sínum, Sveini
Björnssyni.
76