Íþróttablaðið - 01.12.1992, Síða 79
M I N N I N G
ÞORVARÐUR
ÁRNASON
Fæddur 17. nóvember 1920 Dáinn 1. júlí 1992
Iþróttasamband íslands hefur á
undanförnum misserum þurft að sjá
á bak mætum mönnum úr forystu-
sveit sambandsins yfir móðuna
miklu. Par skai einkum nefna Svein
Björnsson, sem sat í stjórn ÍSÍ í 30 ár,
þar af 11 ár sem forseti, Hermann
Guðmundsson, sem var fram-
kvæmdastjóri ISI í 34 ár, og Þorvarð
Arnason, sem hér verður minnst, en
hann átti sæti í stjórn ISI í 10 ár og í
Olympíunefnd um árabil.
Þorvarður var fæddur að Hánefs-
stöðum við Seyðisfjörð 17. nóvem-
ber 1920 og lést á Landspítalanum 1.
júlí 1992. Foreldrar hans voru Arni
Vilhjálmsson útgerðarmaður og
kona hans, Guðrún Þorvarðardóttir.
Systkini Þorvarðar eru Vilhjálmur lög-
maður, Tómas, seðiabankastjóri og
fyrrv. ráðherra, og Margrét, leiðbein-
andi á Hjúkrunarheimiiinu Sunnuhiíð
í Kópavogi.
Eg, sem þessar Iínur rita, kynntist
Þorvarði allvel og fyigdist raunar með
lífshlaupi hans í stórum dráttum. Hér
verður þó einungis vikið að því sem
sneri að íþróttamanninum og félag-
anum Þorvarði Arnasyni.
Segja má að Þorvarður hafi verið
fæddur íþróttamaður. Sem ungur
maður, um og innan við tvítugt, var
hann í hópi fremstu frjálsíþrótta-
manna landsins. Hann keppti fyrir
Iþróttafélagið Hugin á Seyðisfirði og
færði félagi sínu marga góða sigra.
Eg man vei þátttöku Þorvarðar í GIA-
mótum sem haldin voru á Egilsstöð-
um á árunum 1938-1945. Hann
skaraði fram úr bæði í kúluvarpi og
kringlukasti en var mjög hæfur í fleiri
greinum. Hann var afburða fimleika-
maður. Reyndar áttu Austfirðingar á
þessum árum marga góða afreks-
menn sem síðar áttu eftir að verða í
fremstu röð á landsvísu. Margir í hópi
þessara ungu og hæfileikaríku
manna komu frá Seyðisfirði.
Þegar GÍA sigraði á landsmóti GM-
FÍ, sem haldið var á Hvanneyri 1943,
var Þorvarður í þeirri sigursveit og bar
sigur úr bítum bæði í kringlukasti og
kúluvarpi. Hann var jafnframt fjórði
stigahæsti einstaklingurinn á mótinu.
Síðar átti Þorvarður eftir að tileinka
sér golfíþróttina í ríkum mæli og náði
þar góðum árangri.
En Þorvarður var ekki einungis
góður liðsmaður og félagi innan vall-
ar. Hann lét mjög til sín taka hina
félagslegu hlið, forystustörfin. Heima
á Seyðisfirði var hann m.a. formaður
Hugins. Eftir að suður kom sat hann
bæði í stjórn Breiðabliks og í stjórn
Golfklúbbs Reykjavíkur.
Ennfremur starfaði hann í Ólymp-
íunefnd íslands og í stjórn íþrótta-
sambands Islands eins og í upphafi
greinir. Auk þátttöku í almennum
stjórnarstörfum hjá ÍSÍ lét hann sér
mjög annt um tilkomu almennings-
íþrótta. Þannig var hann meðal full-
trúa ÍSÍ á fyrstu alþjóðlegu ráðstefn-
unni sem efnt var til um samræmt og
skipulegtátaktil eflingar almennings-
íþróttum. Þessi ráðstefna var haldin í
Ósló 1969 og þar varð Trimm-nafnið
til. Árið eftir var málið mjög til umfjöll-
unar hjá íþróttanefnd Evrópuráðsins í
Strasbourg og víðar þar sem Þor-
varður var meðal fulltrúa íslands.
Þegar trimmnefnd ISI var stofnuð
síðla árs 1970 varð Þorvarður for-
maður hennar fyrstu tvö árin.
Samhliða því að vera afreksmaður,
bæði innan og utan vallar, var Þor-
varður mikill heimsmaður. Því kynnt-
ist ég vel vegna starfa minna að al-
menningsíþróttum í alþjóðlegu sam-
starfi með Þorvarði. Sökum
ljúfmennsku sinnar, glæsileika og
hæfni í samskiptum við aðra var hann
hvers manns hugljúfi.
Mér virtist hann einnig mjög næm-
ur fyrir öllu listrænu sem varð á vegi
hans, hvort sem það var á sviði tón-
listar, myndlistar eða húsagerðarlist-
ar. Hann hreifst innilega af hinu fagra.
Með fráfalli Þorvarðar Árnasonar
þurfum við að sjá á bak frábærum
félaga, góðum dreng sem hafði ríkan
skilning á gildi íþrótta og hollra lífs-
hátta. Hafi hann kæra þökk fyrir allt
sem hann lagði af mörkum til eflingar
íþrótta- og æskuiýðsstarfi lands-
manna.
Eiginkonu Þorvarðar, Gyðu Karls-
dóttur, börnum þeirra, tengdabörn-
um og barnabörnum eru sendar inni-
legustu samúðarkveðjur. Þeirra er
missirinn mestur.
Sigurður Magnússon, fram-
kvæmdastjóri ISI.
CJtför Þorvarðar Árnasonar fór fram
frá Kópavogskirkju 10. júlí 1992 að
viðstöddu miklu fjölmenni.
79