Íþróttablaðið - 01.12.1992, Page 80
AHEIMAVELLI
Allir, sem eitthvað fylgjast með NBA körf-
unni, hafa heyrt um Shaquille O’Neal sem
hefur skotist upp á stjörnuhimininn með
ógnarhraða síðan hann var valinn af Or-
lando Magic, fyrstur allra í háskólavalinu
síðastliðið vor. Það kom fáum á óvart að
Shaq, eins og hann er kallaður, var valinn
fyrstur því forráðamenn NBA deildarinnar
hafa beðið með óþreyju eftir að fá hann í
deildina síðan hann var 18 ára. Hæfileikar
hans þykja með algjörum eindæmum enda
er um frábæran íþróttamann að ræða. Hann
er fljótur á sprettinum, með mikla snerpu og
óhemju stökkkraft en þar að auki er hann
215 cm á hæð og 137 kg að þyngd og varla er
gramm af spiki að finna á líkamanum.
Það gekk ótrúlega vel hjá Orlando að
semja við Shaquille enda vildi liðið leggja
allt í sölurnar fyrir hann, O’Neal er nefnilega
einn af þeim örfáu sem hafa næga hæfileika
til að gerbreyta leik liðs síns. Samningurinn,
sem gerður var við Shaq, var ekkert smá-
ræði. Hann samdi til 7 ára og fær fyrir þau 40
NÝ STJARNA
ÍNBA
milljónir dala. Væntingarnar fyrir fyrsta
tímabilið hafa því verið mjög miklar en Shaq
hefur ekki brugðist. Hann var frábær í sýn-
ingaleikjum fyrir tímabilið og hefur haldið
uppteknum hætti það sem af er tímabilinu.
Auk þess að vera frábær körfuknattleiks-
maður þykir Shaq einnig vera hin besta
fyrirmynd. Það er afar mikilvægt fyrir
íþróttastjörnur í Bandaríkjunum. Shaquille
býr yfir miklum aga og má rekja það til þess
að faðir hans var yfirmaður í Bandaríkjaher.
Shaq átti heima um alllangt skeið í Þýska-
landi, þar sem faðir hans var við störf, og
þar var hann uppgötvaður af bandarískum
körfuboltaþjálfara sem hélt að hann væri
háskólanemi en þá var Shaq 13 ára og vel
yfir tvo metra á hæð.
Shaquille eyddi mestum hluta síðasta
sumars í að undirbúa sig fyrir NBA tímabilið
og gerði það meðal annars með því að spila
við Magic Johnson í Los Angeles og átti Mag-
ic vart orð yfir hæfileika hans. Larry Bird
sagði um hann: „Shaquille verður besti leik-
maður deildarinnar um leið og hann kemur í
hana,“ en bætti svo við: „Fyrir utan Michael
Jordan, að sjálfsögðu."
Nýliðarnir í NBA deildinni í ár þykja með
allra efnilegasta móti og þrátt fyrir að enginn
komist með tærnar þar sem Shaq hefur hæl-
ana þá er líklegt að við eigum eftir að sjá
Alonzo Mourning, Christian Leattner, Jim-
my Jackson, LaPhonso Ellis, Harold Miner,
Tom Gugliotta og Walt Williams í stjörnu-
leikjum í framtíðinni.
Shaquille O’Neal.
Réttur
þinn
I til hnta
ELLI
LlFEYRIR
til bóta
Tryggingastofnunar rikisins,
hver er hann? Svarið er að finna i
bæklingum okkar. Biöjið um þá.
BÆTUR
TIL EKKNA EKKLA OG
EINSTÆÐRA F0REL0RA
TANNr
IÆKNINGAR
TRYGGINGASTOFN
RÍKISINS
SLYSA-
BÆTUR
BÆTURI
FÆÐINGAR
ORLOFI
Ororku-
SJÚKRA BÆTI
JR
m
UNGASTOFNUN
RÍKISINS
Tryggingastofnun ríkisins
80