Íþróttablaðið - 01.12.1992, Page 84
AHEIMAVELLI
Aaron Winter.
Fáir knattspyrnumenn lenda í því
að fá áhangendur nýs félags á móti
sér áður en þeir byrja að spila með
liðinu. Það fékk Ffollendingurinn
Aaron Winter að reyna en hann lætur
ekki ólæti kynþáttahatara spilla
draumasamningi sínum við knatt-
spyrnuliðið Lazio í Róm. Komu þessa
sterka miðvallarleikmanns til Lazio
FRÍAR HENNSENDINQAR ALLAN
SÓLARHRINGMN 7 DAGA VIKUNNAR
PÖNTUNARSÍMI:
679333
PIZZAHÚSIÐ
Grensátvegl10
- þjónar þér allan sólarhringinn
KYNÞÁTTAFORDÓMAR í RÓM, AARON
WINTER HJÁ LAZIO FÆR SINN SKAMMT
var svaraö meö veggjakroti upptullu
af kynþáttahatri um alla Rómarborg.
Einhver hefði snúið við svo búið aftur
til hins umburðarlynda FHollands —
en ekki Winter.
Hann er harðákveðinn í að standa
undir þeim væntingum sem 2,5 mill-
jón punda sala frá Ajax vekur og læt-
ur ekkert standa í vegi fyrir sér, ekki
einu sinni hatrið. Laun upp á
800.000 pund eru vissulega gott
meðal gegn því sem gerist utan vall-
arins en Winter vill ólmur breyta
hugarfari afvegaleiddra Rómverja á
besta mögulegan máta. „Ég frétti af
þessum atvikum en athugasemdir
varðandi litarhátt minn ergja mig
ekki. Eina leiðin til að þagga niður
þessar raddir er að spila vel og þá
mun rödd hins sanngjarna meirihluta
heyrast," segir Winter.
Félagar Winters f hollenska lands-
liðinu, Ruud Gullit, sem lýsti yfir
andúð sinni á árásunum á Winter, og
Frank Rijkaard, hafa sýnt ítölum fram
á gagnsleysi kynþáttafordóma. A
liðnum árum hjá AC Milan hafa þeir
sýnt að knattspyrnulega séð er svart
gott.
Winter er tilbúinn að sýna fram á
að hann er verðugur arftaki þessara
landa sinna. „Það hefur alltaf verið
draumur minn að spila á Ítalíu. Þarer
sterkasta deildin í Evrópu. Fólkið er
brjálað í fótbolta. Áhuginn er slíkur
og gæðin svo mikil að alla hlýtur að
dreyma um að spila hérna. Ég veit að
ítalir búast við miklu af nýjum leik-
mönnum um leið og þeir koma. Það
mun taka mig tvö ár að komast í
„Gullit-Rijkaard" gæðaflokkinn og
þaðtekureinhvern tíma að aðlaga sig
lífi í nýju landi. Það er ekki bara
tungumálið heldur einnig daglegt líf
sem eröðruvísi. En ég er góður knatt-
spyrnumaður og ég mun gera mitt
besta til að setja mark mitt á leik liðs
míns."
Aaron Winter hlaut besta mögu-
lega knattspyrnuuppeldi sem völ er á
í Evrópu — í Ajax akademíunni.
Hann var uppgötvaður þegar hann
var 13 ára og lék með unglingaliði í
úthverfi Amsterdam og hefur síðan
þá fetað í fótspor Cruyffs, Neeskens,
Van Bastens, Rijkaards og Gullits.
Hann spilaði fyrst með Ajax þegar
hann var 17 ára og eftir að hann kom
inn í liðið hélt hann stöðu sinni.
Hann varð fastamaður í hollenska
landsliðinu á HM á Ítalíu 1990 og var
einn af máttarstólpum Ajax-liðsins
sem vann Evrópukeppni félagsliða
síðastliðið vor. En hann vissi að tími
var kominn til að líta hærra.
Aaron Wintersegirviðþá, sem eft-
ir urðu hjá Ajax þegar hann fór til
Ítalíu, að Ajax muni áfram verða stór-
lið og muni áfram framleiða góða,
unga leikmenn. „Ajax hefur alltaf
verið frábært félag fyrir unga, upp-
rennandi leikmenn. Á hverju ári fer
einhverfrá liðinu ogalltaf kemurein-
hver í staðinn. Ég er þess fullviss að
Ajax verður áfram eitt af toppliðum
Evrópu."
Lauslega þýtt og lítillega breytt úr
World Soccer.
84