Fréttablaðið - 04.07.2020, Blaðsíða 33
Umsóknarfrestur er til
og með 15. júlí nk.
Umsóknir með ítarlegri ferilskrá og kynningarbréfi
óskast fylltar út á hagvangur.is.
Nánari upplýsingar veitir Geirlaug Jóhannsdóttir,
geirlaug@hagvangur.is
SÍMSVÖRUN Í ÞJÓNUSTUMIÐSTÖÐ
STJÓRNARRÁÐSINS
Umbra - þjónustumiðstöð Stjórnarráðsins
er miðlæg þjónustueining ráðuneyta
sem sér um tiltekna rekstrarlega þætti
og annars konar þjónustu, þar á meðal
símaþjónustu á skiptiborðum ráðuneyta.
Starfsmenn eru 35 og notendur
þjónustunnar á sjötta hundrað.
Umbra - þjónustumiðstöð Stjórnarráðsins óskar eftir að ráða lipran og jákvæðan
einstakling sem hefur metnað til að veita góða þjónustu.
Um er að ræða fullt starf alla virka daga frá 8.00-16.00.
Laun eru samkvæmt gildandi kjarasamningi félags starfsmanna stjórnarráðsins. Æskilegt er að umsækjandi geti
hafið störf um miðjan ágúst næstkomandi.
Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir. Umsóknir geta gilt í sex mánuði frá
því að umsóknarfrestur rennur út, sbr. 2. gr. reglna nr. 464/1996, um auglýsingar á lausum störfum, með síðari
breytingum.
Helstu verkefni:
• Símaþjónusta fyrir ráðuneytin
• Almenn móttökustörf
• Ýmis tilfallandi verkefni í samráði við
yfirmann
Hæfniskröfur:
• Reynsla af símaþjónustu og öðrum
þjónustustörfum er æskileg
• Stúdentspróf eða sambærileg menntun sem
nýtist í starfi
• Framúrskarandi þjónustulund og vönduð
framkoma
• Færni í samskiptum og jákvætt viðmót
• Góð almenn tölvuþekking er nauðsynleg
• Gott vald á íslensku og ensku
ENGINEER
(BUILDING ENGINEER SUPERVISOR)
Sendiráð Bandaríkjanna auglýsir stöðu Engineer
(Building Engineer Supervisor) lausa til umsóknar.
Umsóknarfrestur er til og með 12. júlí 2020.
Frekari upplýsingar er að finna á heimasíðu sendiráðsins:
https://is.usembassy.gov/embassy/jobs/
Umsóknir skulu sendar í gegnum Electronic Recruitment
Application (ERA)
The U.S. Embassy in Reykjavik is seeking an individual for
the position of Engineer (Building Engineer Supervisor).
The closing date for this postion is July 12, 2020.
Application instructions and further information can be
found on the Embassy’s home page:
https://is.usembassy.gov/embassy/jobs/
Applications must be submitted through Electronic
Recruitment Application (ERA)
Verksýn ehf er tækniþjónusta með sérhæfingu í viðhaldi og endurbótum mannvirkja, innandyra og utan. Við erum fjölskylduvænn
vinnustaður og bjóðum eftirsóknarvert starfsumhverfi fyrir starfsfólk, sem er okkar helsta auðlind. Við viljum ráða hæft starfsfólk í
eftirfarandi stöður:
BYGGINGAFRÆÐINGUR /
BYGGINGARTÆKNIFRÆÐINGUR
Óskum eftir að ráða til okkar byggingafræðing eða byggingar-
tæknifræðing í starf verkefnastjóra viðhaldsframkvæmda.
Aðilar með sambærilega menntun koma einnig til greina.
Viðkomandi þarf að geta hafið störf 1. september nk. eða eftir
nánara samkomulagi.
PÍPULAGNINGAMEISTARI /
LAGNAHÖNNUÐUR
Óskum eftir að ráða til okkar pípulagningameistara eða lagna-
hönnuð, byggingartæknifræðing/byggingarverkfræðing í starf
verkefnastjóra lagnaframkvæmda. Aðilar með sambærilega
menntun koma einnig til greina. Viðkomandi þarf að geta hafið
störf 1. september nk. eða eftir nánara samkomulagi.
Bæði ofangreind störf felast m.a. í eftirfarandi:
• Ástandsgreiningum
• Framkvæmdaeftirliti
• Framkvæmdaráðgjöf
Viðkomandi umsækjandi þarf að:
• Vera skipulagður, vandvirkur og vinnusamur
• Hafa gott vald á rituðu máli
• Hafa góða kunnáttu á helstu tölvuforritum
• Búa yfir lipurð í samskiptum og þjónustulund
Starfsreynsla er kostur en ekki skilyrði. Einnig er kostur ef viðkomandi umsækjandi getur hafið störf fljótlega.
Áhugasamir eru beðnir að senda umsókn ásamt ferilskrá á netfangið andri@verksyn.is, fyrir 15. júlí nk. Fyllsta trúnaðar er gætt við
meðferð umsókna. Hægt er að nálgast hagnýtar upplýsingar um fyrirtækið á heimasíðu þess, www.verksyn.is.
ATVINNUAUGLÝSINGAR 3 L AU G A R DAG U R 4 . J Ú L Í 2 0 2 0