Fréttablaðið - 04.07.2020, Page 76

Fréttablaðið - 04.07.2020, Page 76
Lífið í vikunni 28.06.20- 04.07.20 ÞANNIG AÐ VIÐ ÁKVÁÐUM AÐ SKAPA YFIRMANNALAUSAN STARFS- VETTVANG EÐA VINNUSTAÐ OG ÁKVÁÐUM AÐ REKSTURINN ÆTTI AÐ SNÚAST UM VEGAN KAFFIHÚS. Anna Marjankowska BAKARÍIÐ FRÁ KLUKKAN 09:00 - 12:00 Eva Laufey og Svavar Örn opna Bakaríið alla laugardagsmorgna. Þetta geng ur vel og verkefnið hefur vakið nokkra athygli enda er þetta svolítið öðruvísi módel en fólk á að venj-ast, segir Raphaël Alex- andre um Karolina Fund-söfnun fyrir vegan kaffihúsi sem hann og félagar hans í fjölþjóðlega hópnum Fraktal, stefna á að opna við Hring- braut. „Landfræðilega komum við úr öllum áttum og erum með ólíkan bakgrunn,“ segir Raphaël um fólkið í hópnum, sem hafnar kapítalískum rekstrarmódelum, með áherslu á flatan strúktúr og lýðræði þar sem allir eru jafnir, í yfirmannslausu starfsumhverfi. Öll sem eitt „Við komum til dæmis frá Íslandi, Þýskalandi, Frakklandi, Afganistan, Póllandi og Spáni,“ segir Raphaël. „En við búum öll hérna og erum hluti af íslensku samfélagi,“ bætir Anna Marjankowska við og leggur áherslu á lýðræðislega hugmynda- fræði hópsins. „Við erum að skapa samstarfsvett- vang þar sem allir eru jafnir og vilj- um breyta leikreglunum í stjórnun og rekstri fyrirtækja,“ segir Raphaël, um hugmyndina um vinnustað sem starfsfólkið stjórnar sjálft. „Skipu- lagið er þannig að það á þetta ekki neinn, þannig að við erum að færa okkur frá kapítalíska módelinu og hér gildir einn maður, eitt atkvæði.“ Engir yfirmenn „Vegna þess að við sjáum hvað er að gerast á vinnumarkaði og höfum öll á einhverjum tímapunkti verið að vinna hjá fyrirtækjum og við hötuð- um það,“ segir Anna og bætir við að í raun og veru hafi það fyrst og fremst verið yfirstjórnin og yfirmenn, sem voru þyrnar í augum þeirra. „Þannig að við ákváðum að skapa yfirmannalausan starfsvettvang eða vinnustað og ákváðum að rekstur- inn ætti að snúast um vegan kaffi- hús. Vegna þess að það kemst næst markmiðum okkar og hugmynda- fræðilegri sannfæringu okkar.“ Kaffihúsið sem hópurinn stefnir að því að opna við Hringbraut 119, yrði því fyrsta lýðræðislega sam- vinnukaffihúsið á Íslandi, sem verður í eigu og rekið af starfsfólki félagsins. Sjálfbær vettvangur Anna og Raphaël segja að ákvörð- unin um að opna vegan kaffihús hafi verið borðleggjandi og í algeru samræmi við hugmyndir þeirra og draum um betri heim, þar sem umhverfisvernd, mikilvægi náttúr- unnar og dýranna sem í henni lifa, vega hvað þyngst. „Þess vegna viljum við svara brýnni þörf fyrir vegan valkosti í borginni sem er líka sjálf bær vett- vangur fyrir alls konar viðburði. Það er ekkert of mikið af vegan- stöðum í augnablikinu í Reykjavík,“ segir Anna. „Og við viljum líka gera eitthvað fyrir nærumhverfið í leiðinni, og eftir að hafa kannað hvað helst vantar og hvernig mat fólk vill fá, varð þetta niðurstaðan. Þetta á líka að vera samkomustaður þar sem fólk getur hitt vini sína og rætt hugðarefni sín,“ segir Anna og bendir á að þau finni fyrir að slíkum stöðum fari fækkandi á Reykja- víkurkortinu og nefnir hremmingar Bíó Paradísar sem dæmi. Margt ógert Þegar sex dagar eru eftir af söfnun Fraktal-hópsins á Karolina Fund. com eru þau komin með 90% af þeim 7000 evrum sem þeim reikn- ast til að þau þurfi, svo draumurinn um vegan kaffihúsið geti ræst. Raphaël segir að þótt allt gangi upp sé ómögulegt að segja til um hvenær þau nái að opna, þar sem óvissuþættirnir séu margir. „Við þurfum að breyta staðnum sem er verslunarhúsnæði í kaffihús og þar er mikið verk óunnið. Síðan getur tekið langan tíma að fá öll tilskilin leyfi.“ toti@frettabladid.is Fyrsta vegan samvinnukaffihúsið Raphaël og Anna eru komin vel á veg með söfnun fyrir fyrsta lýðræðislega samvinnukaffihúsinu á Íslandi ásamt félögum sínum í fjölþjóðlegum hópi sem stefnir að jafnara og betra samfélagi með því að hafna kapítalismanum. Lýðræðissinnarnir í Fraktal-hópnum láta verkin tala, í baráttunni fyrir jafnari og betri heimi, en Anna og Raphaël segja umhverfissjónarmið þeirra og hugmyndir um sjálfbærni smellpassa við vegan kaffihús. MYND/DANI GUINDO 3 STJÖRNU DING DONG! Heitar umræður um Eurovision- myndina hans Wills Ferrell gengu með hvössum glimmerskúrum yfir vikuna. Fréttablaðið gaf þrjár stjörnur, þar sem hún fangar anda viðfangsefnisins svo fullkomlega að um einhvers konar meistaraverk hlýtur að vera að ræða. SYKRAÐ MÚTUFÉ Leit stóð yfir að krökkum sem vilja leika í dans- og söngvamyndinni Abbababb, sem Nanna Kristín Magnúsdóttir ætlar að leikstýra, áður en hún snýr sér að framhaldi Pabbahelga. Jafnvel þótt reynt hafi verið að múta henni með kanel- snúðum til þess að drífa í því. ÚLFALDI Á MÝVATNI Seinni tónleikarnir á hátíðinni Úlf- alda úr mýflugu verða í Mývatns- sveit í kvöld, en frændsystkinin Soffía Kristín Jónsdóttir og Stefán Jakobsson ákváðu að endurvekja hátíðina eftir tíu ára hlé. Stefán lætur svo að sjálfsögðu í sér heyra á sviði í kvöld sem söngvari Dimmu. BRÚÐKAUP OG JARÐARFÖR Sjónvarpsþættirnir Jarðarförin mín slógu svo hressilega í gegn að handritshöfundarnir virðast hafa fundið líf eftir dauðann, þar sem framhald er að taka á sig mynd með vinnutitilinn Brúðkaupið mitt. 4 . J Ú L Í 2 0 2 0 L A U G A R D A G U R40 L Í F I Ð ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.