Fréttablaðið - 04.07.2020, Blaðsíða 18

Fréttablaðið - 04.07.2020, Blaðsíða 18
Ragnhildur Ágústsdóttir vakti mikla athygli með pistli sem birtur var í Kjarnanum fyrir þremur árum en hún ákvað í kjölfar Metoo- byltingarinnar að stíga fram og lýsa kynbundnu of beldi sem hún sagðist hafa orðið fyrir í starfi árið 2009. Ragnhildur, sem þá var for- stjóri fjarskiptafyrirtækisins Tals, lýsti því í pistli sínum hvernig þrír menn tengdir félaginu, sem þá vildu bola henni úr starfi forstjóra, lokuðu hana inni í fundarherbergi, meinuðu henni útgöngu og neyddu til að skrifa undir uppsögnina án þess að fá svigrúm til að ráðfæra sig við lögfræðing eins og hún sóttist eftir að gera. „Ég var beðin um að taka við starfinu um jólin 2008 og lendi svo í þessu vorið 2009. Ég gekk þá með mitt annað barn og þegar ég missti vinnuna einbeitti ég mér frekar að meðgöngunni og í framhaldi fæðingarorlof inu.“ Ragnhildur viðurkennir að eftir á að hyggja hafi hvíldin reynst góð en að þetta hafi vissulega verið henni erfið lífs- reynsla. „Ég ákvað að kúpla mig algjörlega út úr þessum geira og hafði engan áhuga á að fara þangað aftur. Ég ýtti reynslu minni aftast í hugskotið og það var ekki fyrr en Metoo-bylting- in komst í hámæli að ég fór að ræða þetta atvik. Ég hafði ekki talað um það við neinn nema mína nánustu fjölskyldu. Þetta var auðvitað erfið og leiðin- leg lífsreynsla en ég held að hún hafi einnig styrkt mig. Þannig lít ég á erf- iðleika; við lendum öll í einhverju í lífinu og þetta er aðallega spurning um hvernig við tökumst á við það.“ Aðspurð segist Ragnhildur vera betri í að setja mörk eftir atvikið. „Ég held jafnframt að það hafi gert mig að öflugri manneskju, stjórn- anda og starfskrafti.“ Flutti utan í kjölfar uppsagnarinnar Fjölskyldan f lutti til Danmerkur í kjölfar uppsagnarinnar þar sem Ragnhildur fór í meistaranám í stjórnun og stefnumótun. Synirnir voru þá orðnir tveir og sá yngri aðeins eins árs gamall þegar Ragn- hildur hóf nám við Copenhagen Business School. „Þegar við komum heim tók ég við starfi stjórnendaráðgjafa hjá Expectus og naut starfsins en sakn- aði þess þó að vera sjálf í verkefn- unum og framkvæmd. Ég er mjög framkvæmdaglöð og oft á tíðum óþolandi mikill „doer“,“ segir Ragn- hildur og viðurkennir um leið að hún eigi ekki sérlega auðvelt með að slaka á. „Ég þrífst á lífi, fjöri og fólki og því að sjá árangur erfiðis míns.“ Ragnhildur færði sig yf ir til Advania. „Þar stökk ég á bólakaf í djúpu laugina og fór að vinna við upplýsingatækni þar sem ég leiddi rekstrar- og hýsingarumhverfið í cloud-vegferðinni. Mér finnst tækniumhverfið spennandi og það skiptir ekki máli í hvaða bransa þú ert í dag, þú þarft að vera læs á tækni og ég leit því á þetta sem tækifæri fyrir mig til að komast betur inn í þennan heim,“ segir Ragnhildur sem er upphaflega menntuð í við- skipta- og hagfræði. „Þegar sóst var eftir mér í starfið spurði ég hvers vegna og fékk það svar að það vantaði einmitt mann- eskju sem væri ekki endilega sér- fræðingur í þessu umhverfi heldur spyrði réttu spurninganna. Stund- um hefur enginn spurt hvers vegna hlutirnir eru gerðir einmitt svona.“ Frumkvöðlar í fjarbúð Eftir nokkurra ár starf hjá Advania færði Ragnhildur sig yfir til Micro- soft þar sem hún er enn. „Í dag vinn ég hjá Microsoft og svo er ég í frumkvöðlabrölti á kvöldin og um helgar,“ en Ragnhildur opn- aði fyrir tveimur árum, ásamt eigin- manni sínum Júlíusi Inga Jónssyni, Það geta allir fengið góða hugmynd Þegar Ragnhildur Ágústsdóttir vann að hönnun eldgossýningar bjóst fólk ekkert endilega við því að hún yrði að veruleika. En Ragnhildur virðist eflast við hverja raun. Björk Eiðsdóttir bjork@frettabladid.is Ragnhildur segir stóru spurninguna vera hvernig við tökumst á við erfiðleika því öll lendum við í einhverju. FRÉTTABLAÐIÐ/ ERNIR Icelandic Lava Show í Vík í Mýrdal. „Maðurinn minn er í hundrað prósent starf i þar sem fram- kvæmdastjóri. Við erum fjöl skyldu- sprotafyrirtæki og með þrjú börn á okkar framfæri og því þarf einhver að skaffa salt í grautinn. Við fórum þá leið að gera þetta að mestu leyti sjálf og því var mikilvægt að ég héldi mínu starfi.“ Þau hjónin keyptu sér hús í Vík þar sem Júlíus dvelur stóran hluta vikunnar en lögðu þó ekki í að flytja alfarið þangað. „Við höfum því verið í fjarbúð meira eða minna í tvö ár og enn sem komið er gengur þetta. Stundum gerir fjarlægðin fjöllin blá,“ segir hún í léttum tón. „Þetta er að mínu mati meiri fórn fyrir hann, ég er þó alla vega heima með börnunum og nýt þess þó að það geti alveg verið krefjandi en hann er oft langdvölum einn í Vík.“ Tveir af þremur sonum einhverfir Þau hjónin eiga þrjá syni, tveir eldri synirnir eru báðir einhverfir og sá yngsti er aðeins tveggja ára gamall svo að heimilisálagið er töluvert. „Við hugleiddum að f lytja í Vík á sínum tíma en mátum það svo að það væri of stórt skref fyrir eldri drengina sem njóta góðrar þjónustu í bænum.“ Ragnhildur útilokar þó ekkert í framtíðinni. „Okkur langar að opna sýninguna á f leiri stöðum bæði hér og erlendis. Við erum rétt að byrja.“ Hugmyndina að sýningunni fengu hjónin árið 2010 þegar þau skoðuðu gosið á Fimmvörðuhálsi. „Þetta var ótrúleg upplifun og fólk hagaði sér brjálæðislega við gos- stöðvarnar. Reglurnar voru engar enda hafði svona aðgengilegt gos ekki átt sér stað í nútímasögu. Það er í raun ótrúlegt að enginn hafi slasast.“ Ragnhildur og Júlíus urðu fyrir miklum hughrifum sem þau lang- aði að miðla áfram. „Við vorum frá okkur numin enda upplifunin mögnuð.“ Þau fengu strax hugmynd að því að setja upp einhvers konar eldgossýningu og voru staðráðin í að láta af því verða þegar örlögin gripu í taumana. „Árið eftir fengu synir okkar ein- hverfugreiningu. Eldri drengurinn fór fyrst í gegnum greiningarferli og við bjuggumst alls ekki við þessari niðurstöðu enda vissum við lítið um einhverfu og vorum haldin mjög miklum ranghugmyndum. Hann var fyrirburi og við skrifuð- um mikið á það og héldum kannski að hann væri með ADHD. Hann var seinn að læra að tala en ótrúlega þægilegt og ljúft barn. Greiningin kom okkur því algjörlega í opna skjöldu og það fyrsta sem við hugs- uðum var að þetta hlytu að vera mistök.“ Fjölskyldan bjó á þessum tíma í Danmörku og naut túlkaþjónustu í greiningarferlinu og segir Ragn- hildur þau undir eins hafa skrifað niðurstöðuna á túlkunarmistök og hugsuðu með sér að þetta fólk þekkti greinilega ekki son þeirra. „En þegar heim var komið förum við bæði að lesa okkur til um ein- hverfu, aðallega til að afsanna greininguna,“ segir hún ákveðin. Auðvitað var þetta tvöfalt áfall „En eftir því sem við lásum meira fóru að renna á okkur tvær grímur. Vissulega var þarna margt sem passaði við eldri strákinn en það var miklu meira sem passaði við þann yngri.“ Þau kröfðust þess þá að sá yngri færi í greiningarferli og 4 . J Ú L Í 2 0 2 0 L A U G A R D A G U R18 H E L G I N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.