Fréttablaðið - 17.07.2020, Blaðsíða 19
Fyrirtækið hefur mjög ákveðna sýn á tæknina í kringum bíla-hleðslustöðvar. Við höfðum
í nokkurn tíma velt fyrir okkur
möguleikanum á að koma inn
á markaðinn. Þetta töldum við
þó ekki tímabært að gera fyrr en
að nokkrum grunnskilyrðum
uppfylltum,“ segir Magnús Jaró
Magnússon, framkvæmdastjóri
fyrirtækisins.
Magnús segir eina ástæðu þess
að fyrirtækið ákvað að fara inn
á bílahleðslumarkaðinn vera þá
að þeir höfðu verið að setja upp
hleðslustöðvar fyrir aðra og fannst
vera horft skammt á veg í þeim
efnum. „Menn voru að leggja of
grannar lagnir og afkastalitlar
hleðslustöðvar, en nú þegar raf-
hlöður raf bílanna eru orðnar öfl-
ugri þá tekur marga sólarhringa að
hlaða bílana með slíkum hleðslu-
stöðvum. Þegar bílarnir ganga ein-
ungis fyrir rafhlöðum þá þarf að
skipta út þessum gömlu stöðvum
og leggja nýja kapla til að afköstin
séu fullnægjandi. Þegar við sáum
hvað EVBox var búið að leysa
margar af þeim áskorunum sem
blasa við, á borð við álagsdreifingu
hleðslu, umsýslu hleðslukostnaðar
og notkunar töldum við rétt að
hefja innreið okkar á markaðinn
og gerast endursöluaðilar EVBox
hleðslutækja.“
EVBox er leiðandi alþjóðlegur
framleiðandi hleðslustöðva, raf-
hlaða og hleðslustjórnunarhug-
búnaðar með meira en 125.000
hleðslustöðvar í meira en 70
löndum um heim allan. EVBox
Auðveldum
fólki að hlaða
rafbíla heima
og í vinnunni
Bílahleðslan ehf. er systurfyrirtæki
Rafvirkni ehf. sem starfað hefur í 35
ár á íslenskum markaði. Fyrirtækið
býður upp á bílahleðslulausnir fyrir
fjölbýlishús, fyrirtæki og einkaaðila.
Bílahleðslan leggur áherslu á að fólk hlaði rafbílana sína á öruggan máta. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Bílahleðslan
festi nýlega
kaup á fimm
hreinum raf-
bílum frá BL.
EVBox hleðslu-
tækin bjóða
upp á allt að
350kw hleðslu.
fjölbýlishús og fyrirtæki. Hvort
sem fólk er með bílakjallara, sér-
merkt stæði á bílaplani eða bara
bílaplan viljum við að auðvelt sé
fyrir alla að hlaða heima,“ segir
Magnús. „EVBox er með full-
komna álagsstýringu til þess að
rafmagnið í húsinu fari ekki yfir
það sem er í boði.“
Bílahleðslan býður upp á tvenns
konar hleðslustöðvar fyrir fjöl-
býlishús. Elvi og BusinessLine.
Elvi hentar fyrir alla bílakjallara
og merkt bílastæði á bílaplani þar
sem hver og einn hefur aðgang að
sinni hleðslustöð. BusinessLine
hleðslustöðin er fullkomin fyrir
bílaplön sem eru ekki með merkt
stæði. Allir íbúar geta hlaðið
bílana sína og auk þess geta íbúar
opnað stöðina fyrir gestum.
BusinessLine hentar einnig vel
fyrir fyrirtæki en að auki býður
Bílahleðslan upp á PublicLine og
DC-hraðhleðslustöð fyrir fyrir-
tæki. PublicLine stöðvarnar geta
hlaðið tvo bíla samtímis og eru
útbúnar með kortalesara. DC-
hraðhleðslustöðvarnar geta hlaðið
þrjá bíla samtímis. Þær geta hlaðið
allt að 125 km á 30 mínútum
miðað við 50kw stöð og upp í 400
km á 15 mínútum með 350kw
stöð.
Carl Jónas Árnason, verkefna-
stjóri hjá Bílahleðslunni, segir
mikilvægt að fólk hlaði bílana
sína rétt. „Mannvirkjastofnun gaf
nýlega út bækling þar sem hún til-
greinir fjórar hleðsluaðferðir. Þar
er talað um hleðsluaðferð 2, þar
sem bílnum er stungið í samband
við venjulegan tengil í heimahúsi.
Það er varað við að gera það þar
sem slíkir tenglar henta ekki til
hleðslu raf bíla nema í takmark-
aðan tíma. Það hefur kviknað í
tenglum og húsum út af rangri
hleðsluaðferð.“
Carl tekur fram að eina rétta
aðferðin við að hlaða raf bíla sé
það sem Mannvirkjastofnum
kallar hleðsluaðferð 3. Þá er notuð
hleðslustöð við að hlaða bílana
sem er fasttengd raflögn.
Hver með sína stöð
Magnús segir að við uppsetningu
hleðslulausna fyrir húsfélög þurfi
að fást samþykki fyrir aðgerð-
unum. Húsfélög þurfa að geta
boðið upp á þann möguleika að
fólk geti hlaðið bílana sína heima
en á sama tíma eru ekki allir sem
þurfa að nota hleðslustöðvarnar.
„Við erum með góða lausn á þessu.
Við komum á staðinn og útbúum
allar lagnir í bílakjallaranum eða
á bílaplaninu og setjum upp töflu
og tengjum hana. Þá er húsfélagið
búið að uppfylla sínar skyldur og
gera þeim íbúum sem þess þurfa
mögulegt að hlaða raf bílana sína.
Þeir íbúar sem nota raf bíl borga
svo sjálfir fyrir lögn að sínu stæði
og kaupa hleðslustöð. Þannig er
enginn neyddur til að borga fyrir
stöð sem ekki er notuð.“
Auk þess að bjóða upp á hleðslu-
lausnir fyrir fjölbýlishús og fyrir-
tæki rekur Bílahleðslan nokkrar
sjálfstæðar hleðslustöðvar og
stefnan er að fjölga þeim. „Við
erum nýbúin að gera samstarfs-
samning við Orku heimilanna um
að nota rafmagn frá þeim. Bæði
eru þeir ódýrastir á markaðnum
og notast við 100% græna orku,
sem okkur finnst mjög mikilvægt.
Eins erum við búin að kaupa fimm
glænýja hreina rafmagnsbíla
fyrir fyrirtækið frá BL sem keyra
á hreinni orku,“ segir Magnús að
lokum.
hleðslustöðvarnar eru búnar til
úr polycarbonate og eru 100%
endurvinnanlegar. Hleðslustöðvar
þeirra hlóðu samanlagt um 900
milljón kílómetra árið sem þýðir
að komið er í veg fyrir losun um
18.450 tonna af útblæstri koltví-
sýrings árlega. EVBox rekur alla
starfsemi sína á grænni orku.
Fyrirtækið flokkar allan úrgang,
prentar eins lítið og hægt er og
innan skamms mun það nýta
sólarorku í störfum sínum.
Fyrir fjölbýlishús og fyrirtæki
„Við hjá Bílahleðslunni erum stolt
af að geta boðið Íslendingum upp á
EVBox hleðslutækin en þau bjóða
upp á allt að 350kw hleðslu. Við
bjóðum upp á lausnir fyrir bæði
KYNNINGARBLAÐ 7 F Ö S T U DAG U R 1 7 . J Ú L Í 2 0 2 0 HLEÐSLUSTÖÐVAR