Dagblaðið Vísir - DV - 31.07.2020, Blaðsíða 29

Dagblaðið Vísir - DV - 31.07.2020, Blaðsíða 29
TÍMAVÉLIN Upp úr 1980 fóru tölvu-spil að verða æ algeng-ari sjón hér á landi og byrjað var að tala um svokall- aða tölvuspilasali. „Undanfarin ár hafa tölvu- spilakassar átt vaxandi vinsældum að fagna. Allar sjoppur sem vilja laða að sér viðskiptavini, stilla upp spilakössum. Einnig spretta upp sérstakir tölvuspilasalir og draga að sér unglingana. Spilasalirnir bjóða upp á æsispennandi leiki þar sem furðuskepnur eru á fleygiferð um skerminn í hinum furðu- legustu leikjum.“ Þetta ritaði Gunnar Örn Jónsson hjá Æskulýðsráði Reykjavíkur í grein sem birt- ist í Morgunblaðinu í nóvem- ber 1982. Nokkrum mánuðum áður birtist grein í Morgunblað- inu undir fyrirsögninni: „Tölvuspil – afþreying fram- tíðarinnar?“ Fram kom að tölvuspil hefðu náð miklum vinsældum að undanförnu í Bandaríkjunum, þaðan sem þessi tæki væru upprunnin. Þá kom fram að þótt tölvu- spilin hefðu náð mestum vin- sældum í Bandaríkjunum, þá væru þau líka farin að skjóta rótum í Evrópu. „Ég tel þessa staði til lítils gagns fyrir unglinga, og af tvennu miður skemmti- legu þá held ég að Hall- ærisplanið sé æskilegri samkomustaður,“ sagði Hjalti Jónasson skóla- stjóri Austurbæjarskóla í samtali við Morgunblaðið í apríl 1979. Á þeim tíma voru fimm leiktækjasalir starfræktir í Reykjavík. Margir vildu meina að leiktækin ýttu undir spila- fíkn unglinga og að þörfin fyrir að spila myndi leiða þá inn á brautir þjófnaðar. Meðal annars ritaði Adda Bára Sigfúsdóttir, borgar- fulltrúi, í Morgunblaðið í mars 1979 að í leiktækja- sölum væri leikin „sefjandi tónlist og að þar væri and- rúmsloft spilavíta.“ Tölvuspilasalir urðu að félagsmiðstöðvum unglinga Undir lok áttunda áratugarins spruttu leiktækja- og tölvuleikjasalir upp víða um land. Mörgum var órótt og töldu „tölvuspilin“ ýta undir afbrot og unglingadrykkju. Tölvuspilin voru meðal annars sögð vera „klakstöðvar góðs og ills.“ MYNDIR/TÍMARIT.IS Talað var um „nútíma glymskratta, „æsileiki“ og „sjoppu- spilin.“ Auður Ösp Guðmundsdóttir audur@dv.is Lýsti blaðamaður tölvu- spilunum sem tölvustýrðum tækjum sem væru skilgetin afkvæmi örtölvuþróunar- innar. „Sá sem leikur tölvu- spil hefur fyrir framan sig litríkan skerm, þar sem alls kyns kynjaverur gera árás, hörfa undan eða hreinlega éta andstæðinginn,“ ritaði blaðamaðurinn og tók sem dæmi Pac-Man tölvuleikinn sem þá naut mikilla vin- sælda. 14 staðir í Reykjavík Í fyrrnefndri grein Gunnars Arnar Jónssonar í Morgun- blaðinu árið 1982, stakk hann upp á að sérstöku „tölvuspila- eftirliti” yrði komið á fót, svipað og kvikmyndaeftir- litið. Eftirlitið myndi fylgjast með þeim leikjum sem boðið væri upp á og benda á skað- semi tölvuleikja og jafnframt benda á jákvæða og þrosk- andi tölvuleiki. „Heimilistölva mun eiga vaxandi vinsældum að fagna og sumir tala um að 20 pró- sent íslenskra heimila eigi slík tæki nú þegar. Heimil- istölva sameinar notagildi og afþreyingarþátt tölvanna, eru heimilin, félagasamtök og veitingastaðir tilbúnir til að nýta sér kosti tölvunnar í framtíðinni eða verður hún eingöngu afþreyingar- miðill, eins og myndsegul- bandið er í flestum tilfellum í dag?“spurði Gunnar Arnar. Sagði „sjoppuspilin“ mala eigendum gull Í maí 1983 var blásið til málþings um tölvuspil og leik- tæki á vegum Barnavernd- arráðs Íslands. Um það leyti voru starfræktir 14 tölvu- spilastaðir í Reykjavík, en að- eins tveir þeirra voru reknir með leyfi lögreglustjóra. Um 170 leiktæki voru stað- sett víðs vegar um borgina, allt frá einum kassa í sjoppu upp í fleiri tæki í sérstökum sölum. 140 Rauða kross kassar voru í Reykjavík, en Rauða kross kassarnir voru einu tækin þar sem spilað er um peninga og voru þeir reknir með sérstakri heimild dómsmálaráðuneytisins. „Nú er talað um að „tölvu- byltingin“ í heiminum sé síst minni en iðnbyltingin forðum,“ sagði Björn Líndal í setningarræðu sinni á mál- þinginu. Hann bætti síðan við: „Sagt hefur verið, að byltingin éti börnin sín, en Barnaverndarráð telur það skyldu sína, að koma af stað umræðum um hvernig tölvur geta stutt að bættu og betra mannlífi, svo tölvubyltingin geti orðið til góðs, bæði í leik og starfi”. Annar frummælandi, Mika- el Karlsson, sagði „sjoppu- spilin“ mala eigendum gull og opna leiðir til skattsvika. Spilin væru oft æsandi en ómerkileg og skildu ekkert eftir, ólíkt lestri, skák og íþróttum. Í niðurstöðum málþingsins kom meðal annars fram að leiktækjasalirnir væru eins- konar klakstöðvar góðs og ills. „Þeir eru af hinu góða, þeg- ar þeir eyða tölvuótta, veita útrás fyrir árásarhvöt og tengja jafnvel kynslóðirnar. Hins vegar er og augljóst að tækin eru dýr í notkun, færa eigendum sínum skjótfeng- inn gróða og hafa stuðlað að auðgunarbrotum unglinga. Félagsleg áhrif þeirra virðast oft vera mjög neikvæð.“ n FÓKUS 29DV 31. JÚLÍ 2020

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.