Morgunblaðið - 03.01.2020, Blaðsíða 10
10 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 3. JANÚAR 2020
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Fasteignaþróunarfélagið Þingvangur
hefur sett Klapparstíg 31 og Lauga-
veg 23 á sölu. Fyrrnefnda húsið er
eitt fyrsta húsið sem Guðjón Sam-
úelsson teiknaði í miðborg Reykja-
víkur. Það er á horni Laugavegar og
Klapparstígs og
hefur síðustu ár
verið skreytt með
vegglistaverki.
Pálmar Harð-
arson, fram-
kvæmdastjóri
Þingvangs, segir
þetta eitt feg-
ursta götuhorn
miðborgarinnar.
Því feli húsin í
sér mikil tækifæri fyrir fjárfesta.
Húsin tvö liggja að Brynjureit en
Þingvangur byggði þar 70 íbúðir og
eru 39 þeirra seldar.
Spurður hvers vegna Þingvangur
sé að selja verkefnið segir Pálmar
að félagið hafi markað sér þá stefnu
að verða fyrst og fremst verktaki.
Þá hafi félagið mörg járn í eldinum.
Ef húsin seljist hins vegar ekki
muni Þingvangur fara með endur-
bætur og uppbyggingu á reitnum.
Skv. fasteignaskrá er húsið Klappar-
stígur 31 byggt 1916 og því orðið
eldra en 100 ára. Húsið er því
friðað.
Pálmar segir Laugaveg 23 sömu-
leiðis vera friðað hús. Hins vegar sé
heimilt að rífa síðari tíma viðbygg-
ingu og færa húsið í upprunalegt
horf. Þá sé heimilt að reisa nýja við-
byggingu á baklóð sem tengi saman
Laugaveg 23 og Klapparstíg 31.
Húsið Laugavegur 23 er skráð
416,5 fermetrar en Klapparstígur 31
um 260 fermetrar. Samkvæmt heim-
ildum blaðsins má ætla að markaðs-
verð húsanna sé um 200 milljónir.
Hafa ber í huga að húsin þarfnast
endurnýjunar og að endurbygging
gamalla húsa getur kostað sitt.
Vinnur að bók um Guðjón
Pétur H. Ármannsson, arkitekt og
sviðsstjóri hjá Minjastofnun Íslands,
er að vinna að bók um Guðjón Sam-
úelsson sem kemur út síðar á árinu.
Pétur segir Guðjón hafa teiknað
Klapparstíg 31 árið 1916.
„Fyrsta húsið sem er byggt eftir
teikningu Guðjóns er Hverfisgata 14
árið 1912. Næst á eftir koma hús
sem voru teiknuð árið 1916: Austur-
stræti 7, Hafnarstræti 8 og svo
Klapparstígur 31, sem á teikningu
var kallað nr. 21 við Laugaveg.
Klapparstígur 31 er ekki elsta
húsið sem byggt er eftir teikningum
Guðjóns en það er með þeim elstu.
Íbúðarhúsin við Túngötu 20 og
Skólavörðustíg 25 eru frá sama ári,
sem og Austurstræti 16 (Reykja-
víkurapótek) og Fríkirkjuvegur 7
(nú Listasafn Íslands),“ segir Pétur
um þetta tímabil.
Að sögn Péturs lauk Guðjón
öðrum af þremur megináföngum í
arkitektanámi sínu vorið 1915 og
kom heim til Íslands í apríl.
Það tíðkaðist þá að arkitektar
tækju hlé frá námi á þessum tíma-
punkti en lykju síðar lokaverkefni í
náminu. Guðjón hefði verið á Íslandi
þar til síðla árs 1917 en þá haldið
utan til að ljúka náminu.
Smárúðugluggar færu vel
Guðjón var á þessu tímabili undir
áhrifum af nýbarokkstefnunni sem
birtist m.a. í sveigðum göflum og
bogadregnum útskotum.
„Það myndi fegra húsið Klappar-
stíg 31 mikið ef það yrðu settir í það
smárúðugluggar með upphaflegu
sniði. Svo þarf að gera við múrinn.
Annars er húsið nokkuð heillegt.
Það yrði mikil prýði fyrir miðbæinn
ef þetta hús yrði lagað. Það stendur
á teikningu hússins að um sé að
ræða hús Jóns Jónssonar. Sá sem
byggði húsið var Jón Jónsson kaup-
maður sem dó í spænsku veikinni
árið 1918. Hann stofnaði verslunina
Vaðnes sem var lengi í timburhúsinu
sem var seinna kennt við Sirkus.
Klapparstígur 31 var byggður fyrir
verslunina Vaðnes og svo var íbúð á
efri hæð,“ segir Pétur.
Eitt fyrsta hús Guðjóns til sölu
Þingvangur setur Klapparstíg 31 í miðborg Reykjavíkur á sölu Guðjón Samúelsson teiknaði húsið
Pétur Ármannsson arkitekt segir þetta eitt af fyrstu húsunum sem Guðjón teiknaði í miðborginni
Ljósmynd/Þingvangur
Byggt 1916 Húseignin Klapparstígur 31 er til sölu.
Teikning/Guðjón Samúelsson
Hús Jóns Svona teiknaði Guðjón Klapparstíg 31.
Guðjón
Samúelsson
Hér má sjá drög að mögulegu útliti húsanna eftir endurbætur. Á
myndinni lengst til vinstri má sjá hugmynd að útliti nýbyggingar
sem snýr inn í portið að baklóð Brynjureits. Gert er ráð fyrir fjórum
íbúðum á 2. og 3. hæð en atvinnuhúsnæði á jarðhæð. Á efri myndinni
til hægri má sjá hvernig þessi nýbygging verður norðan við Lauga-
veg 23, eða svonefnt Macland-hús, og einni hæð hærra. Á neðri
myndinni er horft á Klapparstíg 31 frá Klapparstíg. Búið er að
teikna svalir sem snúa til vesturs. Pálmar Harðarson segir hug-
myndir um að stækka stigahúsið til að uppfylla nútímakröfur um
flóttaleiðir. Það sé þó óákveðið. Alls verði 6 íbúðir í húsunum.
Nýbygging rísi norðan-
megin sem snýr að porti
Frá og með ný-
liðnum áramót-
um taka sýslu-
mannsembætti
landsins við
greiðslum með
kreditkorti, en
fram að þessu
hefur við-
skiptavinum
sýslumanna ein-
ungis verið gef-
inn kostur á að greiða með reiðufé
eða debetkorti.
Þá er nú einnig hægt að millifæra
fjárhæðina sem verið er að greiða
inn á reikning viðkomandi embætt-
is en þá þarf að koma skýrt fram
fyrir hvað sé verið að greiða.
Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir
dómsmálaráðherra fagnaði breyt-
ingunni í gær og sagði hana bæði
tímabæra og „vonandi til einföld-
unar fyrir alla“.
Sýslumenn taka
við kreditkortum
Sýslumenn gefa
m.a. út vegabréf.
Teikningar/Arkþing
Smiðjuvegur 68, Kópavogi | S. 587 1350 | bifreidaverkstaedi.is
Höfum sérhæft okkur í Toyota viðgerðum síðan 1995
Fljót, örugg og persónuleg þjónusta
Allar almennar bílaviðgerðir
Bíldshöfða 16, 110 Reykjavík 414 84 00 www.martex.is
Góð þjónusta
byrjar með
flottum fatnaði.
Fatnaður fyrir fagfólk