Morgunblaðið - 03.01.2020, Side 11
FRÉTTIR 11Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 3. JANÚAR 2020
Álfheimum 74, 104 Rvk, sími 568 5170
Verið velkomin
ÚTSALA
30-50%afsláttur
Peysur • Bolir • Kjólar • Jakkar • Pils • Túnikur
Sundföt
fyrir sólarfríið
Bláu húsin v/Faxafen
Sími 553 7355 • www.selena.is • Selena
undirfataverslun • Næg bílastæði
Bikiní • Tankíni • Sundbolir
Látin er í Kanada
Harpa Ásgrímsdóttir
Árdal, 94 ára að aldri.
Harpa var fædd 21. júní
1925 á Akureyri en hún
lést 25. desember sl. í
Toronto.
Foreldrar Hörpu
voru María Guðmunds-
dóttir og Ásgrímur Pét-
ursson. Harpa kvaddi í
rósemd og návist fjöl-
skyldunnar á jóladag.
Harpa var leir-
listakona, meistari í
bridge og mikil áhuga-
kona um heilsurækt.
Harpa var eftirlifandi eiginkona dr.
Páls Árdal, prófessors emeritus við
Queen University Kingston (d. 25.
mars 2003). Harpa og Páll eignuðust
fjögur börn, þau Hall-
fríði félagsráðgjafa,
Maríu, leikstjóra og
leikritahöfund, Stein-
þór, forstjóra hjá
Upplýsingastofnun
heilbrigðismála í To-
ronto, og Grím kvik-
myndatökumann,
tengdabörn, níu
barnabörn og 10
barnabarnabörn.
Harpa bjó í Edin-
borg í 25 ár og síðar í
Kingston, Ontario í
Kanada í 45 ár. Harpa
var þekkt fyrir leir-
muni sína og hlaut viðurkenningar í
þeirri listgrein. Hún spilaði tennis
og iðkaði jóga langt fram á níræð-
isaldur.
Andlát
Harpa Ásgrímsdóttir
Árdal, í Kanada
Alexander Kristjánsson
alexander@mbl.is
Alls seldi ÁTVR tæplega 22,7 millj-
ónir lítra af áfengi á árinu 2019. Er
það aukning um 3,1% frá árinu á
undan, þegar sala var rétt um 22
milljónir lítra. Viðskiptavinir ÁTVR
voru um 5,1 milljón á árinu, sem
jafngildir því að hver landsmaður
með aldur til hafi verslað í ríkinu
um 20 sinnum á árinu.
Langvinsælasta tegundin, nú sem
endranær, var lagerbjór. Alls seld-
ust 16,5 milljónir lítra af lagerbjór á
árinu, 2,1% meira en árið áður.
Næst á eftir kom rauðvín, en af því
seldust 1,9 milljónir lítra, 0,3%
meira en árið áður. Þá jókst hvít-
vínssala um 6,4% frá fyrra ári og
seldust um 1,2 milljónir lítra.
Mest aukning í sölu kampavíns
og blandaðra drykkja
Mest jókst salan á milli ára í
flokki blandaðra drykkja, um
28,8%. Skammt undan koma freyði-
vín og kampavín. Alls seldust
243.000 lítrar af freyði- og kampa-
víni á árinu, 27,5% meira en árið á
undan. Þá jókst sala á bjórteg-
undum, öðrum en lagerbjór, um
14,9% og seldust tæplega 470.000
lítrar.
Eini flokkurinn þar sem sala
dregst saman á milli ára er ávaxta-
vín. Sala á ávaxtavíni dregst saman
um 13,9%, en alls seldust tæplega
250.000 lítrar af ávaxtavíni á árinu.
Tveir söluhæstu dagar Vínbúðar-
innar voru báðir í desember. Mest
var umferðin á Þorláksmessu þegar
46.000 viðskiptavinir gerðu sér ferð
í áfengisverslunina, en næstmest
30. desember er 43.000 versluðu.
Freyðivín er sívinsælt í jólamán-
uðinum og seldust alls rúmlega 44
þúsund lítrar freyðivíns í mánuð-
inum eða 10,6% meira en í fyrra.
Þar af kom um helmingur þeirrar
sölu, um 21,7 þúsund lítrar, til milli
jóla og nýárs.
Sala á freyðivíni í desember og fyrir áramót
Seldir lítrar desember 2018 og 2019
Sala á freyðivíni í desember 2019
Annasömustu dagar
í vínbúðunum í
desember 2019
Þús. viðskiptvina
Seldir lítrar í desember
Þar af milli jóla og nýárs
Champagne, 9,5%
Asti freyðivín, 8,4%
Önnur freyðivín, 82,1%
46 43
Þorlálsmessa 30. desember
Sala í desember 2018 2019 Breyting
Champagne 4.300 4.223 -1,8%
Asti freyðivín 4.272 3.741 -12,4%
Önnur freyðivín 31.637 36.497 15,4%
Samtals í des. 40.209 44.462 10,6%
Milli jóla og nýárs 2018 2019 Breyting
Samtals 26.-31. des. 21.112 21.693 2,75%
2018 2019
40,2
21,1
44,5
21,7
H
ei
m
ild
: V
ín
bú
ði
n
22,7 milljónir lítra
seldar í ÁTVR
Lagerbjór var 77% af áfengissölu
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Vínsala Landsmenn drukku meira
á síðasta ári en árið þar áður.
Fjarskiptamiðstöð ríkislögreglu-
stjóra (FMR) bárust 210 símtöl frá
neyðarlínunni 112 frá klukkan
19.00 á gamlárskvöld og fram til
7.00 á nýársmorgun en venjulega
fær miðstöðin um 200 símtöl frá
neyðarlínunni á sólarhring. Þá eru
ótalin öll önnur samskipti starfs-
manna miðstöðvarinnar við lög-
reglulið landsins í gegnum talstöð
og síma.
„Ríkislögreglustjóri starfrækir
fjarskiptamiðstöð sem er stoðdeild
við lögregluumdæmin í landinu og
sinnir samræmingarhlutverki við
lögregluliðin. FMR tekur við sím-
tölum og verkefnum frá 112 sem
ætluð eru lögreglu og forgangs-
raðar þeim og annast stýringu alls
útkallsliðs lögreglu til verkefna.
FMR er því tengiliður borgaranna
við lögregluna og jafnframt við
lögreglumenn sem starfa úti á
vettvangi,“ segir á vef lögregl-
unnar. Þar segir að ríflega 70%
allra erinda sem berist neyðarlín-
unni flokkist sem lögregluverkefni
og séu því flutt yfir til FMR til úr-
lausnar.
Miðstöðin veiti einnig lögreglu-
mönnum á öllu landinu ýmsa þjón-
ustu, til að mynda með uppflett-
ingum í landskerfi lögreglunnar,
LÖKE. Stöðugildi FMR séu 22 og
þar af starfi 19 manns á sólar-
hringsvöktum.
210 símtöl á tólf tímum
Mikið annríki hjá fjarskipamiðstöð RLS á nýársnótt