Morgunblaðið - 03.01.2020, Side 17
FRÉTTIR 17Erlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 3. JANÚAR 2020
Gæðavörur frá Ítalíu
Ferskleiki og gæði
Rana ferskt pasta
– Suðutími 2 mínútur
Pastasósurnar frá Cirio
Auðveldar í notkun. Hitaðu sósuna við lágan hita í 2-3 mínútur
á meðan pastað sýður og hrærðu svo saman við fulleldað pasta.
Verið er að undirbúa brottflutning
tuga þúsunda íbúa og ferðamanna í
Nýja Suður-Wales-fylki og Viktor-
íufylki í Ástralíu vegna gróðurelda
sem loga nú á yfir 200 stöðum á
suðausturströnd landsins.
Herskip og þyrlur verða notuð til
að flytja fólk frá svæðum sem ein-
angrast hafa vegna eldanna.
Fylkisstjóri Nýja Suður-Wales
lýsti í gær yfir vikulöngu neyðar-
ástandi vegna eldanna. Gerir það
stjórnvöldum kleift að rýma svæði
og loka vegum. Búist er við að eld-
arnir muni halda áfram að breiðast
út um helgina en veðurspár gera þá
ráð fyrir hvassviðri og yfir 40 stiga
hita.
„Við tökum svona ákvarðanir
ekki af léttúð en við viljum tryggja
að gripið verði til ýtrustu ráðstaf-
ana til að undirbúa það sem gæti
orðið hræðilegur dagur á laugar-
dag,“ sagði Gladys Berejiklian
fylkisstjóri. Í Viktoríufylki hefur
einnig verið lýst yfir neyðarástandi
á nokkrum svæðum.
Að minnsta kosti 18 hafa látist af
völdum skógareldanna á síðustu
vikum, þar af átta á nýársdag. Þá er
17 saknað í Viktoríufylki. Áætlað er
að yfir 1.200 hús hafi orðið eldunum
að bráð.
Stjórnvöld í Nýja Suður-Wales
skipuðu í gær ferðamönnum að yfir-
gefa stór strandsvæði fyrir laug-
ardag. Þá hefur ferðamönnum og
íbúum á tveimur svæðum innar í
landinu verið skipað að flýja eldana.
Herskip er nú komið að strandbæn-
um Mallacoota í Viktoríufylki og
verður það notað til að flytja fólk á
brott.
Langar bílaraðir mynduðust á
vegum sem liggja í átt að borgunum
Sydney og Canberra. Einnig mynd-
uðust bílaraðir við bensínstöðvar í
bænum Batemans Bay.
Íbúar í Nýja Suður-Wales hafa
gagnrýnt áströlsk stjórnvöld harð-
lega fyrir að hafa ekki brugðist með
viðunandi hætti við ástandinu á
austurströnd landsins.
Hróp voru gerð að Scott Morr-
ison, forsætisráðherra Ástralíu, í
gær þegar hann kom til bæjarins
Corargo í Nýja Suður-Wales en þar
létust tvær manneskjur fyrr í vik-
unni og fjöldi húsa varð eldinum að
bráð.
Tugir þúsunda flýja gróðurelda
Eldar loga á 200 stöðum í Ástralíu Átján hafa látið lífið af völdum eldanna og sautján er saknað
AFP/New South Wales Rural Fire Service
Heiðraður Shane Fitzsimmons, slökkviliðsstjóri Nýja Suður-Wales, nælir
orðu á Harvey, 19 mánaða gamlan son slökkviliðsmannsins Geoffreys Keatons
sem lét lífið í baráttu við gróðurelda, en Keaton var borinn til grafar í gær.
AFP
Slökkvistarf Þyrlur voru notaðar við slökkvistarf við bæinn Batemans Bay
í Nýja Suður-Wales í gær. Íbúum hefur verið skipað að yfirgefa svæðið.
Umfangið 2. janúar
Sydney
Port
Macquarie
Mallacoota
Kjarreldar í Ástralíu
Heimild: Vic Govt/ NSW Govt
50 km
50 km100 km
NÝJA
SUÐUR-
WALES
NÝJA
SUÐUR-
WALES
CANBERRA
VICTORIA
Sydney
Wollongong
Kanangra-Boyd
Yengo
Blue
Mountains
Central Coast
Mallacoota
Bruthen
Buchan
Corryong
Nýja Suður-Wales
Victoria
Leitað var úr þyrlum og flugvélum í
gær að tveimur sjómönnum sem
féllu fyrir borð af maltversku flutn-
ingaskipi í Noregshafi um 180 sjó-
mílur vestur af Sandnessjøen í Nor-
egi.
Björgunarmiðstöðin í Norður-
Noregi fékk tilkynningu um málið
laust fyrir hádegi að norskum tíma í
gær. Fram kemur á heimasíðu mið-
stöðvarinnar að mennirnir tveir hafi
aðeins verið íklæddir vinnufötum en
hvorki verið í björgunarbúningum
né björgunarvestum þegar þeir féllu
í sjóinn en þeir voru við vinnu á þil-
farinu. Björgunarhringjum var
kastað til mannanna en ekki var ljóst
hvort þeir hefðu náð þeim. Ekki lágu
fyrir nánari upplýsingar um það
hvernig slysið varð.
Aðstæður til leitar voru ekki góðar
í gær, hvassviðri og 8 metra öldu-
hæð.
Þyrla frá olíuborpallinum Heidrun
hélt til leitar og SeaKing, björgunar-
þyrla fór einnig á svæðið. Til stóð að
senda Orion-eftirlitsflugvél frá
Andøya til að aðstoða við leitina í
gærkvöldi.
Skipið heitir Stara Planina og er í
eigu búlgarska skipafélagsins Navi-
bulgar en er skráð á Möltu.
Féllu fyrir borð Sjómennirnir voru á flutningaskipinu Stara Planina sem er
186 metra langt og er með malarfarm. Þyrlur voru við leit á svæðinu í gær.
Leitað að sjómönn-
um í Noregshafi
Féllu fyrir borð af flutningaskipi